Suðurlandsbraut 14
Verknúmer : BN019712
3480. fundur 1999
Suðurlandsbraut 14, Lóðamarkabreyting
Vífill Magnússon, arkitekt óskar eftir skiptingu lóðarinnar nr. 14 við Suðurlandsbraut samkvæmt meðfylgjandi mæliblaði mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 7. september 1999.
Lóðin er 6061 ferm., sbr. lóðarsamning nr. 14411/79 dags. 25. janúar 1979. Lóðin skiptist í tvær lóðir:
Suðurlandsbraut 14 verður 3393 ferm., Ármúli 13 verður 2668 ferm.
Sjá samþykkt borgarráðs dags. 10. ágúst 1999.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.