Mávahlíð 3
Verknúmer : BN019419
93. fundur 1999
Mávahlíð 3, Trjáfelling
Sótt er um leyfi til þess að fella grenitré á lóðinni nr. 3 við Mávahlíð.
Umsögn garðyrkjustjóra dags. 6. júlí 1999 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Með vísan til umsagnar garðyrkjustjóra.
Í bréfi umsækjanda kemur fram að einn eigandi sé frekar móttfallinn því að fella umrætt tré. En með vísan til 3. töluliðar B 41. gr. fjöleignahúsalaga nr. 26/1994 sbr. einnig 2. mgr. 30. gr. sömu laga er nægjalegt að 2/3 eigenda samþykki trjáfellinguna.
Sé ágreiningur um þessa túlkun byggingarfulltrúa má skjóta málinu til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.