Hörpugata 1

Verknúmer : BN017716

3458. fundur 1998
Hörpugata 1, Lóðamarkabreyting
Ofanritaður sækir um leyfi til þess að breyta mörkum lóðanna nr 1 og 2 við Hörpugötu, samkvæmt meðfylgjandi mæliblaði frá mælingadeild borgarverkfræðings dags. 6. október 1998.
Tillaga að breytingu lóðamarka:
Hörpugata 1: Lóðin er 776 ferm., sbr. séruppdrátt úr mæliblaði 1.635.5 dags. 13. ágúst 1996.
Tekið af lóðinni og bætt við Hörpugötu 2, 94 ferm.
Viðbót við lóðina frá Hörpugötu 2, 9 ferm.
Lóðin verður 691 ferm.
Hörpugata 2: Lóðin er 802 ferm., sbr. séruppdrátt úr mæliblaði 1.635.5 dags. 13. ágúst 1996.
Tekið af lóðinni og bætt við Hörpugötu 1, 9 ferm.
Viðbót við lóðina frá Hörpugötu 1, 94 ferm.
Lóðin verður 887 ferm.
Sjá samþykkt skipulags og umferðarnefndar 10. nóvember 1997 og samþykkt borgarráðs 11. nóvember 1997.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.