Köllunarklettsvegur 3

Verknúmer : BN017663

3458. fundur 1998
Köllunarklettsvegur 3, Stakstætt skilti við Sæbraut
Sótt er um leyfi til að koma fyrir stakstæðu skilti úr stáli og/eða áli með tveim myndflötum, Sæbrautarmegin á lóðinni nr. 3 við Köllunarklettsveg. Hvor myndflötur er um 8 ferm., og heildarhæð skiltis 645 cm og vísað er til kafla 9 í reglum um skilti í lögsögu Reykjavíkur vegna stærðar.
Gjald kr. 2.500
Synjað.
Samræmist ekki skiltareglum, að auki er byggingarnefnd andvíg stakstæðum skiltum við norðanverða Sæbraut.