Laugavegur 53B

Verknúmer : BN017477

3455. fundur 1998
Laugavegur 53B, Kæra til úrskurðarnefndar
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 21. ágúst 1998, þar sem óskað er eftir umsögn byggingarnefndar vegna kæru frá eigendum Laugavegar 53a og fjórum eigendum eignarhluta að Hverfisgötu 70, þar sem kært er leyfi byggingarnefndar til að byggja verslunar- þjónustu- og íbúðarhús á lóðinni nr. 53b við Laugaveg.
Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.