Hafnarstræti 20

Verknúmer : BN017469

3455. fundur 1998
Hafnarstræti 20, Lagt fram bréf Úrskurðarnefndar
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 14. ágúst 1998 þar sem einn eigandi hússins Hafnarstrætis 20 kærir samþykkt byggingarnefndar frá 25. júní s.l., um að fella úr gildi uppdrætti sem samþykktir voru 26. febrúar 1998 varðandi austurenda og miðrými 1. hæðar Hafnarstrætis 20 og að uppdrættir frá 14. nóvember 1996 taki gildi að nýju.
Jafnframt lagt fram bréf Lögfræðiþjónustunnar ehf. dags. 11. ágúst 1998 og umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags. 25. ágúst 1998.
Umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa samþykkt.
Guðlaugur Gauti Jónsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.