Vesturlandsv. Ártúnsbrekka

Verknúmer : BN017421

3455. fundur 1998
Vesturlandsv. Ártúnsbrekka, Breytingar
Sótt er um leyfi til að innrétta vinnustofu, verkstæði og sýningarsal í jarðhúsi á lóðinni Vesturlandsvegur, Ártúnsbrekka.
Jafnframt er sótt um leyfi til að stækka húsið til vesturs, grafa frá og gera nýjan inngang á austurhlið, breyta lóð og gera ný bílastæði.
Stækkun: Millipallar 62 ferm., 126 rúmm.
Gjald kr 2.500 + 1.575
Synjað.
Samræmist ekki bókun umhverfismálaráðs frá 7. janúar 1997.