Sólheimar 19-21

Verknúmer : BN017379

3454. fundur 1998
Sólheimar 19-21, Lóðarbreyting
Ágúst Jónsson, skrifstofustj. borgarverkfræðings óskar eftir samþykki byggingarnefndar til að skipta lóðinni Sólheimar 19 og 21 eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti mælingadeildar Reykjavíkurborgar dags. 7. ágúst 1998. Lóðinni er skipt í þrennt: Sólheimar 19 og 21 verður 11677 ferm., Sólheimar 21B verður 1798 ferm., og götu og stígstæði sem verður 1365 ferm., og verður sameinað öðru óráðstöfuðu landi Reykjavíkur.
Sjá samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 5. júní 1998 og samþykkt borgarráðs 23. júní 1998.
Sjá einnig samþykkt á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 7. júlí 1998 um tölusetningu lóðarinnar Sólheimar 21B.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.