Síðumúli 28

Verknúmer : BN016610

3446. fundur 1998
Síðumúli 28, Lagt fram kærubréf
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 11. mars 1998 vegna kæru Önnu Maríu Einarsdóttur, Háaleitisbraut 117, þar sem hún kærir og krefst ógildingar á ákvörðun byggingarnefndar frá 18. desember 1997 um leyfi til þess að reisa 30 m hátt fjarskiptamastur á lóðinni nr. 28 við Síðumúla.
Jafnframt lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags. 24. mars 1998.
Umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa samþykkt.