Breiðavík 2-6

Verknúmer : BN016551

3445. fundur 1998
Breiðavík 2-6, Lóðarmarkabreyting
Árni Friðriksson óskar eftir f.h., Víkurhverfis ehf, leyfi til þess að skipta lóðinni nr. 2-6 við Breiðuvík samkvæmt meðfylgjandi mæliblaði mælingadeildar borgarverkfræðings.
Lóðin er 3151 ferm., sbr. lóðarsamning B-19507/96, dags. 24. september 1996, um Breiðuvík 2 og B-19557/96 um Breiðuvík 4.
Lóðin skiptist í tvær lóðir:
Breiðavík 2-4 verður 1988 ferm., og Breiðavík 6 verður 1163 ferm. Sjá samþykkt skipulags- og umferðarnefndar 9. mars 1998.
Samþykkt.
Samræmist skipulagsáætlunum.