Grettisgata 64

Verknúmer : BN016542

3445. fundur 1998
Grettisgata 64, Lagður fram úrskurður
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 4. mars 1998 ásamt úrskurði ráðuneytisins dags. 2. mars 1998 í kærumáli húseigenda og íbúa húseigna við Grettisgötu og Barónsstíg þar sem kærð er samþykkt byggingarnefndar frá 31. júlí s.l., vegna breytinga á húseigninni Grettisgötu 64.
Úrskurðarorð:
Hið kærða byggingarleyfi byggingarnefndar frá 31. júlí 1997 um leyfi til að innrétta kaffistofu í húsinu nr. 64 við Grettisgötu er fellt úr gildi.