Breiðavík 21-25

Verknúmer : BN016451

57. fundur 1998
Breiðavík 21-25, Breytingar á hurðum í herbergi við hlið stofu.
Sótt er um leyfi til þess að breyta til samræmis við sérteikningar og leiðrétta skráningu hússins á lóðinni nr. 21-25 við Breiðuvík.
Leiðrétt stærð frá 29. maí 1997: kjallari húss nr. 21 minnkar um 21 ferm., og kjallari húss nr. 25 minnkar um 25 ferm. Gjald kr. 2.500
Byggingarfulltrúi leggur til að hús nr. 25 verði tölusett nr. 23 í stað 25 við Breiðuvík.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.