Baldurshagablettur 1

Verknúmer : BN015443

3430. fundur 1997
Baldurshagablettur 1, Niðurrif
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings f.h. borgarsjóðs sækir um leyfi til niðurrifs á ósamþykktum sumarbústað á Baldurshagabletti 1. Húsið er einnar hæðar timburhús u.þ.b. 23 ferm., talið byggt 1964 að auki er um að ræða u.þ.b. 12 ferm., geymsluskúr og lítið jaðrhús. Fastanúmer eignar er 205-3764.
Mannvirki þessi samræmast ekki skipulagi og voru keypt til niðurrifs.
Samþykkt.