Skúlagata 42

Verknúmer : BN015439

3430. fundur 1997
Skúlagata 42, Lóðamarkabreyting
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar á minnkun lóðarinnar Skúlagötu 42 eins og sýnt er á uppdrætti mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 25. júlí 1997.
Lóðin var sbr. samþykkt byggingarnefndar frá 10. ágúst 1989, 2827 ferm.
Lóðin minnkar um 201 ferm.
Lóðin verður eftir breytingu 2626 ferm.
Vísað er til samþykktar skipulags- og umferðarnefndar dags. 27. janúar 1997.
Byggingarfulltrúi leggur jafnframt til að lóðin verði tölusett við Skúlagötu 42-44-46.
Samþykkt.
Með fyrirvara um opinberar kvaðir. Samþykktin öðlast gildi við þinglýsingu á mæliblaði.