Óðinsgata 8 og 8C

Verknúmer : BN015438

3430. fundur 1997
Óðinsgata 8 og 8C, Lóðamarkabreyting
Óskað er eftir breyttum lóðamörkum milli lóðanna Óðinsgötu 8 og 8C eins og sýnt er á uppdrætti mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 21. júlí 1997.
Lóðin Óðinsgata 8 var fyrir breytingu 425 ferm.
Við lóðina bætist úr lóð Óðinsgötu 8C 55 ferm.
Lóðin Óðinsgata 8 verður eftir breytingu 480 ferm.
Lóðin Óðinsgata 8C var fyrir breytingu 254 ferm.
Frá lóðinni dregst skv. ofanskráðu 55 ferm.
Lóðin Óðinsgata 8C verður eftir breytingu 199 ferm.
Vísað er til samþykktar skipulags- og umferðarnefndar frá 24. apríl 1995 og samþykktar borgarráðs frá 25. apríl 1995.
Samþykkt.
Með fyrirvara um opinberar kvaðir. Samþykktin öðlast gildi þegar afsali vegna lóðarhluta Óðinsgötu 8C hefur verið þinglýst.