Bergþórugata 15a
Verknúmer : BN015034
3426. fundur 1997
Bergþórugata 15a, Breytingar úti og íbúð í kj.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara, norðursvölum
á 2. hæð og breytingum í þaki (kvistir og franskar svalir) á
lóðinni nr. 15A við Bergþórugötu.
Stærð: ris 9,0 ferm., 23 rúmm.
Gjald kr. 2.387.oo + 549.oo.
Skoðunarskýrslur byggingarfulltrúa dags. 30.10 1996, vottorð
heilbrigðiseftirlitsins dags. 07.05.1997, og bréf
meðeigenda dags. 15. maí 1997 fylgja erindinu.
Jafnframt lögð fram fundargerð húsfélagsins dags. 18.03.1997.
Erindið var kynnt fyrir meðeiganda með bréfi dags. 28. apríl
1997. Mótmæli hafa borist með bréfi dags. 15.05.1997.
Samþykkt.