Hafnarstræti 20

Verknúmer : BN014743

3424. fundur 1997
Hafnarstræti 20, Úrskurður
Lagt fram bréf umhverfismálaráðuneytisins dags. 30. apríl 1997.
Lagður fram úrskurður umhverfismálaráðuneytisins dags. 2. maí
1997, í kærumáli Valdimars Jóhannessonar þar sem hann kærir
samþykkt byggingarnefndar frá 14. nóvember 1996 um
innréttingarbreytingu í Hafnarstræti 20.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 14. nóvember 1996, um
veitingu leyfis til breytinga á miðrými hússins nr. 20 við
Hafnarstræti og breytingu á inngönguleiðum í austurhluta 1.
hæðar, er úr gildi felld.
Jafnframt lagt fram bréf Lögfræðiþjónustunar ehf,
dags. 5. maí 1997.

Byggingarnefnd óskar eftir lögfræðilegu áliti borgarlögmanns
á úrskurði umhverfisráðuneytisins fyrir næsta fund
byggingarnefndar.
Guðlaugur Gauti Jónsson vék af fundi við umfjöllun málsins.