Borgartún 29

Verknúmer : BN014241

3419. fundur 1997
Borgartún 29, Byggingarleyfi fellt úr gildi
Á fundi byggingarnefndar þann 29. ágúst 1996 var fellt úr gildi
byggingarleyfi til handa Eureka hf / Borgartún 29 s.f., sem
samþykkt var í byggingarnefnd 14. mars 1996.
Þar sem breytingar samkvæmt fyrrnefndu byggingarleyfi höfðu þegar
átt sér stað, reyndar unnar í óleyfi, verður að færa
byggingarhluta til upprunalegs horfs.
Með bréfi dags. 18. október 1996 var Eureka hf, gefinn 30 daga
frestur til þess að vinna það verk.
Ekki hefur verið orðið við þeirri kröfu.
Byggingarfulltrúi leggur því til að eigendum Borgartúns 29 s.f.,
verði gefinn 30 daga frestur með vísan til 36. gr. byggingarlaga
nr. 54/1978 til þess að fjarlægja innkeyrsludyr á suðurhlið í
vesturenda koma glugga fyrir í opinu sbr. aðra glugga í hliðinni
og fjarlægja loftræstirör af bakhlið hússins. Verði ekki orðið
við þessum fyrirmælum verði beitt dagsektum kr. 30.000 á hvern
dag sem það dregst að ljúka verkinu og þær innheimtar í samræmi
við 3. mgr. 36. gr. fyrrnefndra laga.
Jafnframt lagt fram bréf Eureka hf. dags. 25. febrúar 1997 svo
og afrit af bréfi lögmanns Borgartúns 29 sf. dags. 21. febrúar
1997 til Eureka hf.

Byggingarnefnd samþykkti tillöguna með þeirri breytingu að
frestur til þess að fjarlæga loftræstirör er gefinn til 10. júní
1997.