Vesturgata 5a

Verknúmer : BN014031

3417. fundur 1997
Vesturgata 5a, Tillaga til aðgerða
Tillaga til aðgerða vegna seinagangs við byggingarframkvæmdir á
Vesturgötu 5A.
Hinn 24. febrúar 1994 samþykkti byggingarnefnd byggingarleyfi
fyrir flutningshús á lóðinni nr. 5A við Vesturgötu. Botn var
úttekinn hinn 6. júní 1994 og síðasta úttekt er skráð 11. október
1996. Síðan hafa framkvæmdir legið niðri utanhúss. Með vísan til
2.mgr. 15. gr. byggingarlaga nr. 54/1978 með síðari breytingum
svo og 36 gr. sömu laga er lagt til að eiganda hússins Jarðvegi
ehf. verði gefinn frestur til 1. ágúst n.k. til þess að ljúka
öllum framkvæmdum við húsið að utan og fullgera lóð. Verði þessum
fyrirmælum ekki sinnt verði beitt dagsektum kr. 30.000 á hvern
dag sem það dregst að ljúka verkinu. Dagsektir og kostnaður verði
innheimt samkvæmt ákvæði í 3. mgr. 36. gr. byggingarlaga. Með
vísan til 13. gr. stjórnsýslulaga er jafnframt lagt til að
forsvarsmönnum Jarðvegs ehf. verði gefinn frestur til þess að tjá
sig um málið til 12. febrúar nk.

Samþykkt.