Vesturhús 6

Verknúmer : BN014030

3417. fundur 1997
Vesturhús 6, Tillaga til aðgerða
Tillaga til aðgerða vegna seinagangs við byggingarframkvæmdir í
Vesturhúsum 6.
Með bréfi dagsettu 16. ágúst 1996 til eigenda Vesturhúsa 6 þeirra
Daða Þ.Ólafssonar Miðhúsum 44 og Nóns ehf. Suðurlandsbraut 6 var
þeim gefinn frestur til októberloka 1996 til þess að ljúka við
frágang hússins að utan og jafna lóð. Nú í janúar 1997 er staða
framkvæmda óbreytt. Með vísan til 36. gr. byggingarlaga nr.
54/1978 með síðari breytingum er lagt til að eigendum Vesturhúsa
6 þeim Daða Þ. Ólafssyni Miðhúsum 44, 112 Reykjavík og Nón ehf.
Suðurlandsbraut 6 verði gefinn frestur til 1. júní n.k. til þess
að ljúka við frágang hússins að utan og ganga frá lóð í rétta
hæð. Verði ekki orðið við þessum fyrirmælum verði beitt
dagsektum kr. 50.000 fyrir hvern dag sem það dregst að ljúka
verkinu. Dagsektir og kostnað skal innheimta eftir ákvæðum í 3.
mgr. 36. gr. byggingarlaga. Með vísan til 13. gr.
stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er lagt til að málsaðilum verði
gefinn frestur til þess að tjá sig um málið til 12. febrúar n.k.

Samþykkt.