Fellsmúli 24 - 26

Verknúmer : BN012948

3407. fundur 1996
Fellsmúli 24 - 26, Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Þreks ehf, dags. 23.08.1996 þar sem óskað er eftir
afnotum af landskika meðfram lóð samanber uppdrátt Guðna
Pálssonar dags. 23.08.1996. Ennfremur lagt fram samþykki
meðeigenda dags. 22.08.1996 og nágranna dags. 01.08.1996.

Byggingarnefnd mælir með erindinu við borgarráð, enda falli
afnotin niður bótalaust þegar borgarráð ákveður.
Verði lóðarafnot afturkölluð skal endurskoða fjölda bílastæða á
lóð. Framangreindu skal þinglýsa sem kvöð á lóðina.
Jafnframt leggur byggingarnefnd til að felld verði úr gildi
samþykkt borgarráðs frá 25.06.1996 um stækkun lóðar sbr. samþykkt
skipulagsnefndar dags. 24.06.1996.