Hafnarstræti 7

Verknúmer : BN011496

3397. fundur 1996
Hafnarstræti 7, Breyta innréttingu 1. hæðar
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 1. hæð úr
skrifstofum í veitingastað í húsinu á lóðinni nr. 7 við
Hafnarstræti.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Þar sem umsækjandi hyggur á veitingastarfsemi í húsnæðinu er
honum bent á að sækja ber um leyfi fyrir slíkri starfsemi til
lögreglustjórans í Reykjavík. Embætti lögreglustjóra fjallar um
slíkar leyfisveitingar að fenginni umsögn borgarráðs. Rétt er að
taka fram að samþykki byggingarnefndar felur ekki í sér neinar
skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar til veitingareksturs.