Klapparstígur 35

Verknúmer : BN011295

3395. fundur 1996
Klapparstígur 35, Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 8. febr. sl., ásamt
úrskurði ráðuneytisins dags. 6. febr. sl., vegna kæru Jóhannesar
B. Björnssonar hdl. fh. eigenda Laugavegar 24 bakhúss og
Laugavegar 24 þar sem kærð er samþykkt byggingarnefndar frá 27.
júlí 1995 um byggingarleyfi fjölbýlishúss á lóðinni nr. 35 við
Klapparstíg.
Í úrskurðarorðum segir að ákvörðun byggingarnefndar frá 27. júlí
1995 skuli óbreytt standa að öðru leyti en því að ekki verði
komið fyrir bílastæðum á baklóð hússins að Klapparstíg 35 nema
samið hafi verið um umferðarétt við eigendur Laugavegar 24
bakhúss og Laugavegar 24b.

Byggingarfulltrúi upplýsti að nú þegar hefði bílastæði á baklóð
verið fellt niður.