Sigtún 42

Verknúmer : BN008656

3373. fundur 1995
Sigtún 42, Skrifstofuhús
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofuhús úr steinsteypu og
gleri á lóðinni nr. 42 við Sigtún.
Stærð: kjallari 442,1 ferm., 1. hæð 1061,6 ferm., 2. hæð 988,4
ferm., 8886 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 193.715.oo.
Málið var kynnt með bréfi dags. 10.03.95 og athugasemdir hafa
borist dags. 21.03.95.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Bókun byggingarnefndar:
Vegna athugasemda nágranna um umferðarmál, sem fram komu við
grenndarkynningu, óskar byggingarnefndar eftir því að embætti
borgarverkfræðings og borgarskipulag efni til fundar með íbúum
götunnar um mögulegar lausnir á umferðarmálum.