Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 8 og 10, Reitur 1.154.3, Barónsreitur, Fossvogsvegur (Vigdísarlundur), Þórsgata 27, Sturlugata 5, Háskólinn í Reykjavík, Grundarstígsreitur, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Austurbakki 2, Austurbakki 2, Fossagata 2, Grettisgata 4, Alþingisreitur, Vitastígur 13, Veghúsastígur 1 og Klapparstígur 19, Brautarholt 18 og 20, Grjótagata 14B, Bogahlíð 7-9, Hlíðarendi 6-10, Gjaldskrá og reglur um bílastæði í Reykjavík, Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Hlíðarendi, Gvendargeisli 16, Göngugötur 2016, Laugavegur 32B og 34B, Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, miðborgin, Afnot af borgarlandi vegna viðvarandi viðburða sumarið 2016,

139. fundur 2016

Ár 2016, miðvikudaginn 24. febrúar 2016 kl. 09:00, var haldinn 139. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Kerhólum Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gísli Garðarsson, Sverrir Bollason, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Ólafur Kr. Guðmundsson og Sigurður Ingi Jónsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Nikulás Úlfar Másson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Stefán Agnar Finnsson, Magnús Ingi Erlingsson og Helena Stefánsdóttir Fundarritari er Erna Hrönn Geirsdóttir.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10070
1.
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, dags. 19. febrúar 2016.





Umsókn nr. 160060 (01.26.21)
531107-0550 Arkís arkitektar ehf.
Kleppsvegi 152 104 Reykjavík
2.
Suðurlandsbraut 8 og 10, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Arkís arkitektar ehf., mótt. 21. janúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst sameining lóða. Einnig eru lagðir fram uppdr. Arkís arkitekta ehf., dags. 12. september 2015. Jafnframt er lögð fram yfirlýsing Eikar fasteignafélags hf., dags. 9. desember 2015, minnisblað Hnit verkfræðistofu hf., dags. 15. desember 2015 og bréf Arkís arkitekta, 8. ágúst 2015 og 20. janúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Umhverfis og skipulagsráð gerir ekki athugasemd við að umsækjandi láti vinna breytingu á deiliskipulagi i samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016, á eigin kostnað.

Umsókn nr. 150370 (01.15.43)
130272-5769 Halldór Eiríksson
Fífusel 26 109 Reykjavík
3.
Reitur 1.154.3, Barónsreitur, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunnar, dags. 22. janúar 2016, þar sem gerð er athugasemd við birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda. Einnig er lögð fram umsögn Isavia, dags. 10. febrúar 2016. Jafnframt er lögð umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. febrúar 2016 og uppdrættir T.ark arkitekta, dags. 6. júlí 2015 síðast breyttir 10. febrúar 2016.

Sigurborg Ó Haraldsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:30.

Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. febrúar 2016, samþykkt.
Vísað til borgarráðs


Umsókn nr. 150641 (01.84.9)
4.
Fossvogsvegur (Vigdísarlundur), lýsing deiliskipulags
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing vegna deiliskipulags svæðis í vestanverðum Fossvogi sem afmarkast af Fossvogsvegi, Árlandi og göngustígum, dags. 28. október 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. nóvember 2015. Jafnframt er lögð fram bókun hverfisráðs Háaleitis- og Bústaða frá 18. janúar 2016 og bréf Skipulagsstofnunar, dags. 22. janúar 2016.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.

Umsókn nr. 150690 (01.18.13)
441109-0240 Stáss Design ehf.
Nóatúni 17 105 Reykjavík
5.
Þórsgata 27, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Stáss Design ehf., mótt. 16. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Lokastígsreits 3 vegna lóðarinnar nr. 27 við Þórsgötu. Í breytingunni felst að breyta notkun jarðhæðar hússins úr íbúðarhúsnæði í veitingastað/Kaffihús í flokki I, samkvæmt uppdr. Stass Design ehf. dags. 13. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf Stáss Desing ehf. og eiganda að Þórsgötu 27, dags. 16. nóvember 2015 og tillaga að staðsetningu og útliti skiltis, dags. 2. desember 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. janúar til og með 4. febrúar 2016. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ása Jóhannesdóttir, dags. 1. febrúar 2016, Sigurveig Kristjánsdóttir, Sigrún Sandra Ólafsdóttir og Albert Björn Lúðvíksson, dags. 1. febrúar 2016, Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir og Jónas Geirsson, dags. 2. febrúar 2016, Jón Ingi Gíslason og fjölsk., dags. 3. febrúar 2016, Bylgja E. Stefánsdóttir, dags. 3. febrúar 2016, Kári Sölmundarson, dags. 4. febrúar 2016, Eva Birgisdóttir, dags. 4. febrúar 2016 Loftur Ásgeirsson, dags. 4. febrúar 2016 og Auður Harpa Þórsdóttir, dags. 4. febrúar 2016. Að loknum athugasemdarfresti barst athugasemd frá Jóakim Reynissyni og Hildi Jóhannesdóttur, dags. 8. febrúar 2016. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016, með vísun í a-lið 1. gr. viðauka fyrir umhverfis- og skipulagsráð í samþykkt um breytingu á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 715/2013.

Umsókn nr. 160119
561204-2760 Landmótun sf.
Hamraborg 12 200 Kópavogur
6.
Sturlugata 5, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Landmótunar sf., mótt. 15. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vegna lóðarinnar nr. 5 við Sturlugötu. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar til norðurs og suðurs og fella niður hringtorg sem sýnt er á mörkum Sæmundargötu og Sturlugötu, samkvæmt uppdr. Landmótunar sf., dags. 14. janúar 2016.

Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 160110 (01.75.1)
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
681194-2749 Kanon arkitektar ehf
Laugavegi 26 101 Reykjavík
7.
Háskólinn í Reykjavík, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 10. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík. Í breytingunni felst stækkun á deiliskipulagssvæðinu þar sem gert er ráð fyrir tveimur lóðum í krika Flugvallarvegar og Nauthólsvegar. Annars vegar lóð fyrir skólahúsnæði og hins vegar lóð fyrir íbúðarbyggð, samkvæmt tillögu Kanon arkitekta ehf. dags. 18. febrúar 2016.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri og Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Helga Bragadóttir, Halldóra Kristín Bragadóttir og Birkir Einarsson frá Kanon arkitektum kynna.

Umsókn nr. 150738 (01.18)
8.
Grundarstígsreitur, lýsing
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 4. desember 2015, vegna gerð nýs deiliskipulags reits 1.183.3, Grunndarstígsreits, sem afmarkast af Grundarstíg, Spítalastíg, Þingholtsstræti og Skálholtsstíg. Einnig er lagður fram tölvupóstur Lofts Reimar, dags. 12. janúar 2016 og bréf Skipulagsstofnunar, dags. 22. janúar 2016.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.

Umsókn nr. 45423
9.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari eru fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 864 frá 23. febrúar 2016.



Umsókn nr. 50485 (01.11.980.1)
530513-1060 Kolufell ehf.
Borgartúni 19 108 Reykjavík
10.
Austurbakki 2, Hótel
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 6 hæða hótel, einangrað og klætt að utan með flísum/gluggakerfi, 253 herbergi fyrir 512 gesti, á tveggja hæða kjallara á reit 5A og verður matshluti 06 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 21. janúar og skýrsla um hönnunarforsendur hljóðvistar dags. 21. janúar 2016.
Stærð A-rýma: 18.447,6 ferm., 68.426,9 rúmm.
B-rými: 490 ferm., 2.005,8 rúmm.
Gjald kr. 10.100

Ásgeir Ásgeirsson og Fríða Sigurðardóttir frá T.ark arkitektum kynna.

Umsókn nr. 50486 (01.11.980.1)
530513-1060 Kolufell ehf.
Borgartúni 19 108 Reykjavík
11.
Austurbakki 2, Fjölbýlishús - verslunarhúsnæði
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 6 hæða fjölbýlishús á tveggja hæða kjallara, einangrað og klætt að utan með flísum/málmklæðningu, sjö stigahús með 106 íbúðum og verslun og þjónustu á jarðhæð á reit 5B og verður matshluti 05 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 21. janúar og skýrsla um hönnunarforsendur hljóðvistar dags. 21. janúar 2016.
Stærð A-rými: 17.408,1 ferm., 62.902,2 rúmm.
B-rými: 2.107,8 ferm., 7.110,5 rúmm.
C-rými: 64,8 ferm.
Gjald kr. 10.100

Ásgeir Ásgeirsson og Fríða Sigurðardóttir frá T.ark arkitektum kynna.

Umsókn nr. 50070 (01.63.670.7)
660315-0120 Ágúst hinn mikli ehf.
Fossagötu 2 101 Reykjavík
110727-4889 Ágúst Ingimundarson
Furugerði 1 108 Reykjavík
12.
Fossagata 2, Einbýlishús
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, kjallara, hæð og ris, einangrað að utan og klætt standandi borðaklæðningu á lóð nr. 2 við Fossagötu. Einnig er lagt fram skuggavarp Arkþings í júní og september, ódags. og í ágúst, dags. 6. október 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 24. nóvember til og með 22. desember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Elín Brimdís Einarsdóttir og Gísli Kristinsson, dags. 21. desember 2015, Hrafnhildur Sigurðardóttir, dags. 21. desember 2015 og Hrafnhildur Sigurðardóttir f.h. 99 aðila á undirskriftarlista, dags. 22. desember 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. október 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. október 2015. Erindi fylgir útreikningur á varmatapi dags. 6. október 2015 og lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. apríl 2014. Stærð A-rými: 216 ferm., 666,2 rúmm. C-rými: 36,9 ferm. Gjald kr. 9.823

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 50578 (01.18.210.4)
130122-2649 Ólafía Sigurðardóttir
Hringbraut 50
13.
Grettisgata 4, Niðurrif
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. febrúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að rífa þríbýlishús á lóð nr. 4 við Grettisgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. febrúar 2016.
Erindi fylgir þinglýst umboð til handa Eyjólfi Bergþórssyni og Bergþóri Andréssyni dags. 18. júní 2014. Niðurrif: Fastanr. 200-6184 merkt 01 0101 Einbýlishús, 156,6 ferm., 433,0 rúmm. Gjald kr. 10.100

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki er gerð athugasemd við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 18. febrúar 2016.

Umhverfis- og skipulagsráð bókar: "Skipulagsyfirvöldum í Reykjavík ber skylda til að vinna eftir gildandi skipulagsáætlunum og telur mikilvægt að borgarbúar geti treyst þeim áætlunum sem fyrir liggja. Ef ekki væri fyrir ákvæði í gildandi skipulagi væri áhugavert að skoða verndun umræddar byggingar. Minjastofnun hefur það verkefni með höndum að sinna verndun húsa og bygginga, einnig í miðborg Reykjavíkur. Telji Minjastofnun að ástæða sé til að friða umrædda byggingu nú er það ákvörðun sem stofnunin getur tekið.."

Hjálmar Sveinsson víkur af fundi kl. 12:25 og Sigurborg Ó. Haraldsdóttir tekur sæti.


Umsókn nr. 150685 (01.14.11)
690906-1390 Batteríið Arkitektar ehf.
Hvaleyrarbraut 32 220 Hafnarfjörður
14.
Alþingisreitur, (fsp) fækkun bílastæða og hækkun á tengibyggingu
Lögð fram fyrirspurn Sigurðar Einarssonar arkit. mótt. 11. nóvember 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Alþingisreits sem felst í fækkun bílastæða á reitnum og hækkun á tengibyggingu milli lóðanna nr. 8B og 10 við Kirkjustræti, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta dags. 27. október 2015. Einnig er lagt fram bréf Batterísins arkitekta ehf. dags. 10. nóvember 2015 og greinargerð, dags. 27. október 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 18. desember 2015 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 19. febrúar 2016. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Umsókn nr. 150764 (01.17.42)
470498-2699 Hornsteinar arkitektar ehf
Ingólfsstræti 5 101 Reykjavík
15.
Vitastígur 13, (fsp) stækkun húss og fjölgun íbúða
Lögð fram fyrirspurn Hornsteina arkitekta ehf., mótt. 16. desember 2015, varðandi stækkun hússins á lóð nr. 13. við Vitastíg. Í húsinu verða sex litlar íbúðir á 2. og 3. hæð, en óbreytt starfsemi á 1. hæð, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf., dags. 11. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf Hornsteina arkitekta ehf., dags. 15. desember 2015. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Umsókn nr. 150729 (01.15.242.1)
531107-0550 Arkís arkitektar ehf.
Kleppsvegi 152 104 Reykjavík
16.
Veghúsastígur 1 og Klapparstígur 19, (fsp) uppbygging
Lögð fram fyrirspurn Arkís arkitekta ehf., mótt. 30. nóvember 2015, um að byggja lágreistar byggingar með 6-7 litlum sérbýlis íbúðum á lóð nr. 1 við Veghúsastíg, samkvæmt tillögu Arkís arkitekta ehf., dags. 27. nóvember 2015. Einnig er lagt fram bréf Arkís arkitekta ehf., dags. 27. nóvember 2015, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 19. janúar 2016 og 22. janúar 2016, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 22. janúar 2016, varðandi fornleifar á lóðinni og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 11. febrúar 2016. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.

Umsókn nr. 160056 (01.24.22)
441109-0240 Stáss Design ehf.
Nóatúni 17 105 Reykjavík
17.
Brautarholt 18 og 20, (fsp) hækkun húsa, útbygging o.fl.
Lögð fram fyrirspurn Stáss Design ehf., mótt. 19. janúar 2016, um að hækka húsin á lóðunum nr. 18 og 20 við Brautarholt um eina inndregna hæð þannig að húsin verði allt að fimm hæðir í stað fjögurra, byggja 120 cm breiða útbyggingu (svalagang) við húsið á lóð nr. 20 við Brautarholt á 2. til 4. hæð o.fl., samkvæmt tillögu Stáss Design ehf., ódags. Einnig er lögð fram greinargerð Stáss Design ehf., ódags. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Umsókn nr. 150734 (01.13.6)
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
18.
Grjótagata 14B, (fsp) flutningshús
Lögð fram fyrirspurn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 2. desember 2015, varðandi hugsanlegan flutning og endurbyggingu húss sem áður stóð við Laugaveg 36 (bakhús) á lóð við Grjótagötu 14B. Einnig er lagt fram bréf, dags. 1. desember 2015. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 15. desember 2015 og umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 6. janúar 2016 ásamt greinargerð Borgarsögusafns Reykjavíkur, dags. 18. desember 2015 varðandi fornleifar á lóð nr. 14B við Grjótagötu. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.

Umsókn nr. 160096 (01.71.12)
570500-3170 Bogahlíð 7-9,húsfélag
Bogahlíð 7 105 Reykjavík
19.
Bogahlíð 7-9, málskot
Lagt fram málskot Ólafs G. Jónssonar f.h. Húsfélagsins að Bogahlíð 7-9, dags. 4. febrúar 2016, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2016 um að fjölga bílastæðum á lóð nr. 7-9 við Bogahlíð um eitt.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Fyrri afgreiðsla skipulagsfulltrúa frá 22. janúar 2016 staðfest.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Herdís Anna Þorvaldsdóttir og Ólafur Kr. Guðmundsson og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 160120 (01.62.88)
501193-2409 ALARK arkitektar ehf
Dalvegi 18 201 Kópavogur
20.
Hlíðarendi 6-10, málskot
Lagt fram málskot Alark arkitekta, dags. 11. febrúar 2016, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar2016 á fyrirspurn um rekstrarleyfi í flokki III fyrir samkomusal í húsinu á lóð nr. 6-10 við Hlíðarenda.

Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Fyrri afgreiðsla skipulagsfulltrúa frá 5. febrúar 2016 staðfest.

Umsókn nr. 150247
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
21.
Gjaldskrá og reglur um bílastæði í Reykjavík, tillögur starfshóps
Lagðar fram að nýju tillögur starfshóps umhverfis- og skipulagssviðs að nýjum reglum um bílastæðagjald í Reykjavík unnar með hliðsjón af nýju aðalskipulagi. Einnig lögð fram tillaga að nýrri gjaldskrá fyrir bílastæði. Jafnframt er lögð fram umsögn bílastæðanefndar, dags. 11. febrúar 2016.



Umsókn nr. 160055
22.
Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, rýmka reglur um hollustuhætti og matvæli
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Hildur Sverrisdóttir leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:
Á fundi borgarstjórnar þann 19. maí 2015 var svohljóðandi tillaga samþykkt: "Borgarstjórn samþykkir að beina þeim tilmælum til ríkisvaldsins að rýmka reglur um hollustuhætti og matvæli svo það sé hverju sveitarfélagi í sjálfsvald sett hvernig það kýs að haga reglum um á hvaða stöðum sé leyfilegt að hafa dýr, svo sem á kaffihúsum, veitingastöðum, líkamsræktarstöðvum, samkomuhúsum o.s.frv. Það er réttlætismál að sveitarfélög hafi svigrúm gagnvart eigendum slíkra staða að leyfa dýrahald ef þeir óska." Bréf þessa efnis var sent Umhverfisráðuneytinu í maí 2015. Óskað er upplýsinga um hvar þetta mál er statt og eftir atvikum að rekið sé á eftir viðbrögðum.

Frestað.

Umsókn nr. 160044
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
23.
Betri Reykjavík, fá fleiri skilti sem birta hámarkshraða í hverfið (USK2016020025)
Lagt fram erindið ¿fá fleiri skilti sem birta hámarkshraða í hverfið" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum samgöngur.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeildar.

Umsókn nr. 160045
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
24.
Betri Reykjavík, Laugaveg að göngugötu í sumar frá Vitastíg (USK2016020026)
Lagt fram erindið ¿Laugaveg að göngugötu í sumar frá Vitastíg" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var önnur efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum samgöngur.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeildar.

Umsókn nr. 160046
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
25.
Betri Reykjavík, ný virðingarröð í umferðinni (USK2016020027)
Lagt fram erindið ¿ný virðingarröð í umferðinni" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var þriðja efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum samgöngur.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeildar.

Umsókn nr. 160047
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
26.
Betri Reykjavík, umferðaljós skynji nálægða umferð betur (USK2016020028)
Lagt fram erindið ¿umferðaljós skynji nálægða umferð betur" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var fjórða efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum samgöngur.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngudeildar.

Umsókn nr. 160048
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
27.
Betri Reykjavík, að gróðursetja tré við Austurberg í Breiðholti, minni mengun (USK2016020029)
Lagt fram erindið ¿að gróðursetja tré við Austurberg í Breiðholti, minni mengun" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var fimmta efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum umhverfismál.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlands.

Umsókn nr. 160049
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
28.
Betri Reykjavík, hálkuvörn á göngu- og hjólabrú yfir Kringlumýrarbraut (USK2016020031)
Lagt fram erindið ¿hálkuvörn á göngu- og hjólabrú yfir Kringlumýrarbraut" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum framkvæmdir.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

Umsókn nr. 160050
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
29.
Betri Reykjavík, setja upp hlið á göngustíg á milli Rimaskóla og Miðgarðs - Langarima (USK2016020034)
Lagt fram erindið ¿setja upp hlið á göngustíg á milli Rimaskóla og Miðgarðs - Langarima" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum ýmislegt.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu framkvæmda og viðhalds.

Umsókn nr. 160051
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
30.
Betri Reykjavík, endurnýja léleg hús með uppkaupum og reglugerðum
Lagt fram erindið ¿endurnýja léleg hús með uppkaupum og reglugerðum" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2016. Erindið var efsta hugmynd janúarmánaðar 2016 í málaflokknum skipulag.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa.

Umsókn nr. 160053 (01.62)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
31.
Hlíðarendi, kærur 5 og 7/2016
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 18. janúar 2016 ásamt kærum 5/2016 og 7/2016 þar sem kært er deiliskipulag á Hlíðarenda.
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra.

Umsókn nr. 160121 (05.13.52)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
32.
Gvendargeisli 16, kæra 19/2016
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 16. febrúar 2016 ásamt kæru þar sem kærð er ákvörðun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur að samþykkja umsókn um leyfi til að hækka þak og byggja setustofu á 2. hæð, á lóð nr. 16 við Gvendargeisla.

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra.

Umsókn nr. 160011
33.
Göngugötur 2016, lokun Laugavegar fyrir umferð vegna HönnunarMars
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2016, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á lokun Laugavegar fyrir umferð frá gatnamótum Vatnsstígs að gatnamótum Þingholtsstrætis og Bankastrætis dagana 10.-13. mars nk. Borgarráðs samþykkti erindið með þeirri breytingu að lokun er heimiluð frá kl. 15:00 á fimmtudeginum 10. mars og föstudeginum 11. mars.



Umsókn nr. 150782 (01.17.22)
500191-1049 Arkþing ehf
Bolholti 8 105 Reykjavík
630513-1460 Lantan ehf.
Skólavörðustíg 18 101 Reykjavík
34.
Laugavegur 32B og 34B, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2016, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.172.2 vegna lóðanna nr. 32B og 34B við Laugaveg.



Umsókn nr. 160076
35.
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, miðborgin, breyting á aðalskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2016, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á verklýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030, sem felst í starfsemi við götuhliðar í miðborg, markmið um virkar götuhliðar, skilgreiningu landnotkunar og sérákvæði um starsemi, göngugötur og torg og almenn markmið um miðborgina.



Umsókn nr. 160031
36.
Afnot af borgarlandi vegna viðvarandi viðburða sumarið 2016, auglýsing
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 11. febrúar 2016, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á afnotum af borgarlandi fyrir lengri viðvarandi viðburði í borgarlandi með stórskjám, sviði og annarri meðfylgjandi umgjörð sumarið 2016.