Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Gylfaflöt 2-4, 6-8, 10-12 og 14, Háteigsvegur 1 og 3, Laufásvegur 65, Háskólinn í Reykjavík, Vegamótastígur 7 og 9, Örfirisey, Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Kirkjusandur, Kirkjusandur 2, Íslandsbanki, Sigtún 38 og 40, Sigtúnsreitur, Kennaraháskóli, reitur 1.254, Hverfisskipulag, Hlíðar 3.1 Háteigshverfi, Hverfisskipulag, Hlíðar 3.2 Hlíðarhverfi, Hverfisskipulag, Hlíðar 3.3 Öskjuhlíðarhverfi, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Korngarðar 1, Vesturgata 24, Brekkugerði 4, Langagerði 20, Ránargata 29A, Fossagata 6, Skúlagata 4, Sorpa bs., Reykjanesfólkvangur, Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga og Umhverfisstofnun, Göngugötur, Kirkjustræti, Dómkirkjan, Laufásvegur 53-55, Laufásborg, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagssvið, Rauðagerði 40, Kjalarnes, erindisbréf, Umhverfis- og skipulagsráð, tillaga varðandi handbók, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Flókagata 67, Laufásvegur 59, Brautarholt 7, Túngötureitur, Stóragerði 40-46, Njarðargata 25, Grundarstígsreitur, Austurbakki 2, Hraunbær 103-105, Kjalarnes, Melavellir, Gamla höfnin - Vesturbugt, Akurholt í Úlfarsfellslandi, Baldursgata 32 og 34, Kjalarvogur 12, Vistvæn vottun bygginga Reykjavíkurborgar,

123. fundur 2015

Ár 2015, miðvikudaginn 21. október kl. 09:06, var haldinn 123. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, S. Björn Blöndal, Gísli Garðarsson, Sverrir Bollason, Júlíus Vífill Ingvarsson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Sigurður Ingi Jónsson, og Sigurborg Ó Haraldsdóttir áheyrnarfulltrúi. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Örn Sigurðsson, Björn Axelsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Stefán Finnsson, Oddrún Helga Oddsdóttir og Marta Grettisdóttir Fundarritari var Björgvin Rafn Sigurðarson. Þetta gerðist:
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10070
1.
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 16. október 2015.






Umsókn nr. 140686 (02.57.83)
501213-1870 Veitur ohf.
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík
2.
Gylfaflöt 2-4, 6-8, 10-12 og 14, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Orkuveitu Reykjavíkur - Veitur ohf., dags. 17. desember 2014, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 2-4, 6-8, 10-12 og 14 við Gylfaflöt. Í breytingunni felst að mörkum lóðanna nr. 2-4, 6-8, 10-12 og 14 við Gylfaflöt er breytt og heimildir til uppbyggingar eru skilgreindar. Ný innkeyrsla er áformuð um hringtorg frá Hallsvegi. Einnig er skilgreind lóð fyrir dreifistöð Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. dags. 20. maí 2015, breytt eftir auglýsingu 23. september 2015. Tillaga var auglýst frá 5 júní 2015 til og með 17. ágúst 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Vignir Bjarnason dags. 3. júlí 2015 þar sem meðal annars er óskað eftir framlengingu á athugasemdafresti, Landsnet, dags. 11. júlí 2015, íbúasamtök Grafarvogs, dags. 16. júlí 2015, og Árni Guðmundsson, dags. 19. júlí 2015. Einnig er lögð fram bókun hverfisráðs Grafarvogs frá 10. júlí 2015 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti. Jafnframt er lagður fram tölvupóstur Vegagerðarinnar dags. 27. ágúst 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 9. október 2015.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. október 2015.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 140621 (01.24.42)
691101-2580 Bakkastaðir eignarhaldsfél ehf.
Pósthólf 17 121 Reykjavík
660298-2319 Teiknistofan Tröð ehf
Hávallagötu 21 101 Reykjavík
3.
Háteigsvegur 1 og 3, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Bakkastaða eignarhalsfélags ehf. dags. 21. nóvember 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.244.2, Egilsborgarreits, vegna lóðanna nr. 1 og 3 við Háteigsveg. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka núverandi byggingu um eina hæð, byggja eina hæð og kjallara að lóðarmörkum norðan við húsið fyrir verslun og þjónustu, tilfærsla á byggingarlínum, aukning á byggingarmagni o.fl. Kvöð um holræsi og graftrarrétt á norðurmörkum lóðanna nr. 1 og 3 fellur út, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Traðar ehf. dags. 1. júní 2015. Einnig er lagt fram bréf skipulagsfulltrúa til umsækjanda dags. 3. mars 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. apríl 2015. Tillagan var auglýst frá 27. júlí 2015 til og með 16. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðrún B. Birgisdóttir ásamt beiðni um framlengingu á fresti, dags. 7. september 2015, Kristján Andrésson og Hrafnhildur Einarsdóttir, dags. 7. september 2015, Þorkell Pétursson dags. 7. september 2015, stjórn húsf. Rauðarárstíg 41, dags. 7. september 2015, Elfa Sif Logadóttir og Marinó A. Jónsson, dags. 7. september 2015, Guðrún Helga Magnúsdóttir, dags. 7. september 2015, Þrúður Helgadóttir, dags. 9. september 2015 og Svava María Atladóttir dags. 9. og 10. september 2015, húsfélag Rauðarárstíg 41 dags. 14. september 2015 og eigendur Háteigsvegi 2 og 4 ásamt Rauðarárstíg 41, dags. 16. september 2015.

Hildur Gunnarsdóttirverkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Athugasemdir kynntar.
Frestað.


Umsókn nr. 49673 (01.19.701.0)
181266-4309 Aðalsteinn Egill Jónasson
Laufásvegur 65 101 Reykjavík
060768-4049 Ásdís Halla Bragadóttir
Laufásvegur 65 101 Reykjavík
4.
Laufásvegur 65, Bílskúr o.fl.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að gera nýja innkeyrslu við eystri lóðarmörk, byggja tvöfaldan bílskúr með tröppum í bakgarð, gera þaksvalir á bílskúr og koma þar fyrir setlaug við tvíbýlishús á lóð nr. 65 við Laufásveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júlí 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 20. ágúst til og með 24. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Jóhanna Helga Halldórsdóttir, dags. 17. september 2015, Hermann Kristjánsson og Guðborg Auður Guðjónsdóttir, dags. 18. september 2015, Skúli Gunnarsson og Dagný Björnsdóttir dags. 23. september 2015, Ástráður Eysteinsson og Anna Jóhannsdóttir dags. 23. september 2015, Hanna Gunnarsdóttir og Sigurður Steinþórsson, dags. 23. september 2015 og Dagný Hermannsdóttir og Ólafur Loftsson dags. 24. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags.20. október 2015.
Stærð: 58 ferm., 203 rúmm. Gjald kr. 9.823

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2015.
Vísað til borgarráðs.




Umsókn nr. 150214 (01.75.1)
681194-2749 Kanon arkitektar ehf
Laugavegi 26 101 Reykjavík
5.
Háskólinn í Reykjavík, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kanon arkitekta ehf. dags. 16. apríl 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskólans í Reykjavík í samræmi við niðurstöðu hugmyndasamkeppni um deiliskipulag Háskólans í Reykjavík, Háskólagarða. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 16. apríl 2015 og uppdrættir dags. 16. apríl 2015, uppfærðir 14. maí 2015. tillagan var auglýst frá 5. júní 2015 til og með 17. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Birkir Ingibjartsson dags. 17. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júlí 2015. Jafnframt er lagt fram bréf skipulagsstofnunar dags. 14. september 2015 og uppf. greinargerð og skilmálar dags. 16. apríl 2015, síðast uppf. 14. október 2015.

Uppdr. 01
Uppdr. 02
Uppdr. 03

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 150286 (01.17.15)
550305-0380 Reir ehf.
Skólavörðustíg 18 101 Reykjavík
500191-1049 Arkþing ehf
Bolholti 8 105 Reykjavík
6.
Vegamótastígur 7 og 9, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Reir ehf. dags. 15. maí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5 vegna lóðanna nr. 7 og 9 við Vegamótastíg. Í breytingunni felst m.a. í að hætt er við að endurreisa gamla steinbæinn á þaki nýbyggingar og hætt er við að færa gamla húsið á Vegamótastíg 9 upp á þak o.fl., samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. 29. júní 2015. Tillagan var auglýst frá 20. júlí til og með 24. september 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Rut Agnarsdóttir f.h. eigenda að Grettisgötu 3, 3a og 5, Arna Kristín Gísladóttir, dags. 31. ágúst 2015 og Gísli Petersen, dags. 16. september 2015. Einnig er lagt fram bréf Gísla Petersen, Helgu Björnssonar og Rutar Agnarsdóttur dags. 15. september 2015 þar sem óskað er eftir framlengingu á athugasemdarfresti, athugasemd íbúa að Grettisgötu 3, 3a og 5, dags. 21. september 2015, tölvupóstur Landslaga f.h. eigenda fasteigna að Grettisgötu 3, 3A og 5 þar sem farið er fram á lengri athugasemdarfrest og svar/tölvupóstur umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 24. september 2015. Jafnframt er lögð fram athugasemd Landslaga f.h. Helgu Björnssonar, Rutar Agnarsdóttur og Önna Kristínar Gísladóttur, dags. 24. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2015.

Borghildur Sölvey Sturludóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2015.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir og fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins og bóka:
"Á horni Vegamótastígs og Grettisgötu stendur reisulegt timburhús sem er prýðilegur fulltrúi timburhúsa á svæðinu. Húsið setur mikinn svip á umhverfi sitt enda staðsetningin áberandi og iðulega sjást ferðamenn munda myndavélar sínar í nágrenni þess. Það kallast á við sambærileg hús frá svipuðu byggingarskeiði á mótum Klapparstígs og Grettisgötu. Ekki er fallist á deiliskipulag sem gerir ráð fyrir að umrætt hús víki. Miklu frekar ætti það að vera útgangspunkturinn í frekari þróun þeirra opnu svæða sem standa sitt hvoru megin við það og styrkja með þeim hætti tengingu við sögulega timburhúsabyggð hverfisins."
Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar S. Björn Blöndal, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísli Garðarsson og áheyrnarfulltrúi Pírata Sigurborg Ósk Haraldsdóttir bóka:
" Í núgildandi deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir að umrætt bárujárnshús standi áfram á þeim stað sem það er nú heldur sé það fært ofan á þak nýbyggingar. Deiliskipulagið sem nú er verið að samþykkja er í samræmi við sitt nánasta umhverfi og er heldur til bóta frá núverandi skipulagi að mati meirihluta ráðsins. Búið er að finna umræddu bárujárnshúsi stað í nágrenninu komi til uppbyggingar samkvæmt skipulagstillögunni."

Vísað til borgarráðs.



Umsókn nr. 140611 (01.1)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf.
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
7.
Örfirisey, deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf Faxaflóahafna sf. dags. 14. nóvember 2014 ásamt tillögu Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 11. nóvember 2014 að deiliskipulagi Örfiriseyjar. Á fundi skipulagsfulltrúa 10. apríl 2015 var tillögunni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi Faxaflóahafna dags. 29. júní 2015 og breyttum deiliskipulagsuppdráttum dags. 29 júní 2015. Tillagan var auglýst frá 20. júlí til og með 31. ágúst 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Íbúasamtök Vesturbæjar, dags. 31. ágúst 2015, GP arkitektar f.h. eigenda Fiskislóðar 31, dags. 26. ágúst 2015, Berglind Svavarsdóttir og Jón Ármann Guðjónsson f.h. Lindbergs ehf., dags. 25. ágúst 2015, Kjartan Rafnsson f.h. S.K.Ó., dags. 31. ágúst 2015 og Guðjón Sverrir Rafnsson f.h. Miðfells ehf., dags. 31. ágúst 2015. Einnig er lögð fram lagfærð umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2015.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.


Leiðrétt er bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015 svohljóðandi: "samþykkja framlagða tillögu með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2015.
Rétt bókun er:
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2015

Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar S. Björn Blöndal og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísli Garðarsson samþykkja afgreiðslu erindisins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir og fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson sitja hjá við afreiðslu erindisins og bóka:
"Ekki er lagst gegn lagfræringu á bókun fulltrúa meirihlutaflokkanna í umhverfis og skipulagsráði frá síðustu viku. Minniháttar breyting á orðalagi bókunarinnar er fyrst og fremst formlegs eðlis og skýrir nánar afstöðu fulltrúanna til deiliskipulags Örfiriseyjar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina greiddu atkvæði gegn deiliskipulaginu. Sú afstaða er óbreytt".

Vísað til borgarráðs.





Umsókn nr. 150548
8.
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Kirkjusandur, breyting á aðalskipulagi
Lögð fram tillaga umhverfis og skipulagssviðs dags. í október 2015 varðandi breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 varðandi Kirkjusand miðsvæði M6b vegna fjölda íbúða og magn atvinnuhúsnæðis.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu umhverfis- og skipulagssviðs sbr. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs




Umsókn nr. 150109 (01.34.51)
420299-2069 ASK Arkitektar ehf.
Geirsgötu 9 101 Reykjavík
9.
Kirkjusandur 2, Íslandsbanki, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Ask arkitekta ehf. f.h. lóðarhafa dags. 20. febrúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kirkjusands vegna lóðarinnar nr. 2 við Kirkjusand. Í breytingunni felst uppbygging á reitnum þar sem áhersla er lögð á blandaða byggð atvinnu- og íbúðahúsnæðis í samræmi við markmið aðalskipulags Reykjavíkur, skv. uppdr. Ask arkitekta ehf., dags. 19. október 2015. Einnig er lögð fram greinargerð Ask arkitekta ehf., dags. október 2015.
uppdráttur 01
uppdráttur 02
uppdráttur 03.

Páll Gunnlaugsson arkitekt og Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.



Umsókn nr. 150236 (01.36.60)
450913-0650 Atelier Arkitektar slf.
Skaftahlíð 16 105 Reykjavík
630169-2919 Íslandshótel hf.
Sigtúni 38 105 Reykjavík
10.
Sigtún 38 og 40, Sigtúnsreitur, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Íslandshótels hf., dags. 28. apríl 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 38 og 40 við Sigtún. Í breytingunni felst að lóð nr. 38 er stækkuð og heimiluð er aukin uppbygging hótels á henni og lóð nr. 40 er minnkuð og heimiluð er uppbygging íbúðarhúsa í sex byggingum á henni í stað gróðurskála. Skrifaðir eru nýir sérskilmálar fyrir báðar lóðirnar miðað við breytta uppbyggingu. Einnig eru lagðir fram uppdrættir Atelier Arkitekta slf., dags. apríl 2015. Tillagan var auglýst frá 29. maí 2015 til og með 10. júlí 2015. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Helga Ágústsdóttir, dags. 3. júní 2015, Jón Viðar Gunnarsson, dags. 4. júní 2015 og Salvör Gissurardóttir, dags. 11. júní 2015, Halla Sif Guðlaugsdóttir, dags. 7. júlí 2015, Hildur Bjarnadóttir, dags. 7. júlí 2015, Hjörtur Þór Hauksson, dags. 7. júlí 2015, Anna Halldóra Þórðardóttir, dags. 7. júlí 2015, Þórhallur Jóhannesson, dags. 7. júlí 2015, Axel Eiríksson og Stefanía Sigurjónsdóttir, dags. 8. júlí 2015, Verkfræðingafélag Íslands Árni B. Björnsson, dags. 9. júlí 2015, Kristbjörn Helgason, dags. 9. júlí 2015, Málfríður Kristjánsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Elísabet Magnúsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jesús Rodríguez, dags. 9. júlí 2015, Inga María Leifsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jón Ágúst Eiríksson, dags. 9. júlí 2015, Sigrún Drífa Jónsdóttir og Árni Sören Ægisson, dags. 9. júlí 2015, Karl Frank Sigurðsson, dags. 9. júlí 2015, Svala Bryndís Jónsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Hjalti Þórisson og Guðrún Björk Tómsdóttir, dags. 9. júlí 2015, Jón V. Gunnarsson, dags. 10. júlí 2015, undirskriftalisti 336 íbúa, dags. 9. júlí 2015, Bjarney Jónsdóttir og Guðrún Einarsdóttir, dags. 9. júlí 2015, íbúasamtök Laugardals dags. 10. júlí 2015, Haukur Karlsson og Áslaug Karlsdóttir, dags. 10. júlí 2015, Ásgeir Björgvinsson og Þórhildur Þórhallsdóttir, dags. 13. júlí 2015, Ásgeir Jónsson og Gerður Bolladóttir, dags. 13. júlí 2015, Birkir Fjalar Viðarsson, dags. 13. júlí 2015, Heiðlóa Ásvaldsdóttir, dags. 13. júlí 2015 og Landssamtök hjólreiðarmanna, dags. 13. júlí 2015. Einnig er lögð fram umsögn hverfisráðs Laugardals, dags. 23. júní 2015, umsögn/svar skóla og frístundasviðs, ódags
Jafnframt eru lagðar fram fundargerðir umhverfis- og skipulagssviðs frá íbúafundi 13. október 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2015.

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2015.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson bóka:
"Uppbyggingar á opnu svæðum við Sigtún 38 -40 (Blómavalsreit) og Kirkjusandi 2 (Kirkjusandsreit) munu hafa veruleg áhrif á gamalgróið skólahverfi. Enn liggur ekki fyrir hvernig byggt verður á stórum þróunarreit við Köllunarklettsveg. Þétting í hverfi Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla er veruleg fram til 2020 eða 789 íbúðir á tímabilinu. Laugarnesskóli er þegar yfirfullur svo að viðbót á allra næstu árum mun valda erfiðleikum, ekki bara í kennslurými heldur einnig í mötuneyti skólans og í frístundaheimili. Leikskólarnir Hof og Laugasól eru báðir fullnýttir miðað við rekstrarleyfi. Það er því ljóst að fyrirhugaðar uppbyggingar á þróunarsvæðum kalla á fjárfestingar af hálfu borgarinnar. Mikilvægt er að þær fjölskyldur sem flytja munu í hverfið hafi fullvissu um að borgin muni standa við sínar skuldbindingar við börnin bæði á leik- og grunnskólaaldri. Fjárhagsáætlanir til fimm ára eiga að endurspegla það og best fyrir alla sem hlut eiga að máli að borgin lýsi því yfir strax á þessu stigi."

Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar S. Björn Blöndal og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísli Garðarsson og áheyrnarfulltrúi Pírata Sigurborg Ósk Haraldsdóttir bóka:
"Lóðir þeirra skóla sem þjóna svæðinu (Laugalækja- og Laugarnesskóla) bjóða upp á möguleika á stækkun. Sýni nákvæm rýni á þróun nemendafjölda að auka þurfi við húsnæði skólanna verður sett af stað áætlun um það og þær framkvæmdir rúmaðar innan fjárfestingaramma borgarinnar."

Vísað til borgarráðs.



Umsókn nr. 150130 (01.27)
11.
Kennaraháskóli, reitur 1.254, lýsing, deiliskipulag
Lögð fram lýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. 18. mars 2015 samkv. 1. mgr. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 varðandi uppbyggingu á hluta af þróunarsvæði 33 í Aðalskipulagi Reykjavíkur, deiliskipulagi reits 1.254, Kennaraháskóli, Einnig er lögð fram umsögn Skipulagsstofnunar dags. 15.apríl 2015. Lögð fram umsögn hverfisráðs Hlíða, dags. 26. maí 2015. Lagðar fram athugasemdir sem bárust: Magnús V. Guðlaugsson, dags. 8. maí, Björn J. Björnsson, dags. 20. maí, Tryggvi Thorsteinsson, dags. 24. maí, Marín Hrafnsdóttir, dags. 25. maí og Ásgeir Beinteinsson, dags. 28. maí 2015.
Einnig er lögð fram drög að tillögu A2f arkitekta, að deiliskipulagi reits 1.254, Kennaraháskólinn. Í tillögunni felst uppbygging á hluta núv. lóðar Kennaraháskóla Íslands fyrir byggingu 50 íbúða fyrir eldri borgara og allt að 100 íbúða fyrir námsmenn. Auk þess sem skilgreindar verða upp á nýtt byggingarheimildir fyrir lóð Kennaraháskóla Íslands.

Fulltrúar A2f Aðalheiður Atladóttir og Falk Krüger Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.




Umsókn nr. 150530 (03.1)
12.
Hverfisskipulag, Hlíðar 3.1 Háteigshverfi, skipulags- og matslýsing
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Hlíðar hverfi 3.1 Háteigshverfi dags. 15. september 2015.

Sverrir Bollason víkur af fundi undir þessum lið.

Fulltrúar ráðgjafateymis Helga Bragadóttir og Sigríður Magnúsdóttir, Ævar Harðarson og Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjórar, og formaður hverfisráðs Hlíða Margrét Norðdahl sitja fundinn undir þessum lið.

Frestað.

Umsókn nr. 150531 (03.2)
13.
Hverfisskipulag, Hlíðar 3.2 Hlíðarhverfi, skipulags- og matslýsing
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Hlíðar hverfi 3.2 Hlíðarhverfi dags. 15. september 2015.

Sverrir Bollason víkur af fundi undir þessum lið.

Fulltrúar ráðgjafateymis Helga Bragadóttir og Sigríður Magnúsdóttir, Ævar Harðarson og Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjórar, og formaður hverfisráðs Hlíða Margrét Norðdahl sitja fundinn undir þessum lið.

Frestað.

Umsókn nr. 150532 (03.3)
14.
Hverfisskipulag, Hlíðar 3.3 Öskjuhlíðarhverfi, skipulags- og matslýsing
Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að skipulags- og matslýsingu fyrir Hlíðar hverfi 3.3 Öskjuhlíðarhverfi dags. 15. september 2015.

Sverrir Bollason víkur af fundi undir þessum lið.

Fulltrúar ráðgjafateymis Helga Bragadóttir og Sigríður Magnúsdóttir, Ævar Harðarson og Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjórar, og formaður hverfisráðs Hlíða Margrét Norðdahl sitja fundinn undir þessum lið.

Frestað.

Herdís Anna Þorvaldsdóttir víkur af fundi kl:12:11, Ólafur Kr. Guðmundsson tekur sæti á fundinum. á sama tíma.



Umsókn nr. 45423
15.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa nr. 847 frá 20. október 2015.




Umsókn nr. 150411 (01.33.2)
220564-4369 Guðmundur Oddur Víðisson
Litla-Tunga 276 Mosfellsbær
16.
Korngarðar 1, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Odds Víðissonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka Klettasvæði vegna lóðar nr. 1 við Korngarða. Í breytingunni felst að bæta við byggingarreit sunnan megin á lóð nr. 1 við Korngarða að lóðarmörkum Klettagarða 4, samkvæmt uppdrætti Dap ehf., dags. 3. september 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 10. september til og með 8. október 2015. Engar athugasemdir bárust.

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 150413 (01.13.20)
051055-7219 Þorgeir Jónsson
Laugarnesvegur 96 105 Reykjavík
17.
Vesturgata 24, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Þorgeirs Jónssonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 24 við Vesturgötu. Í breytingunni felst uppbygging á lóð, samkvæmt uppdrætti Þorgeirs Jónssonar arktekts, dags. 12. október 2015. Einnig er lagt fram umboð Þórðar Magnússonar f.h. Eignarhaldsfélagsins Norma ehf., mótt. 23. júlí 2015.

Skuggav. 21. júní
Skuggavarp 8. ágúst
Skuggavarp 23. mars
Skuggav. öll kl 17:30

Margrét Þormar verkefnisstjór tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.




Umsókn nr. 49668 (01.80.440.4)
120479-4829 Hjalti Gylfason
Brekkugerði 4 108 Reykjavík
18.
Brekkugerði 4, bílageymsla, stoðveggur, kjallararými
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. ágúst 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr að vestanverðu, koma fyrir geymslukjallara undir verönd 0102 og steypa lágan stoðvegg á lóðarmörkum nr. 6 og 8 við Brekkugerði á lóð nr. 4 við Brekkugerði. Erindi var grenndarkynnt frá 10. september til og með 8. október 2015. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram samþykki hluta hagsmunaaðila mótt. 14. september 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. ágúst 2015. Bílaskúr stærð: 33,4 ferm., 84,9 rúmm. Geymslukjallari: 36,3 ferm., 98,0 rúmm. Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 49811 (01.83.201.0)
171264-3919 Þorgeir Adamsson
Langagerði 20 108 Reykjavík
19.
Langagerði 20, Viðbygging/sólskáli
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 18. ágúst 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja sólskála með steyptum sökkli við húsið á lóð nr. 20 við Langagerði. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. ágúst 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 3. september til og með 1. október 2015. Engar athugasemdir bárust.
Erindi BN048250 er dregið til baka með þessu erindi.
Óundirskrifuð umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 20. nóvember 2014 fylgja erindi. Stækkun: 5,18 ferm., 13,6 rúmm. Gjald kr. 9.823

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 49696 (01.13.520.7)
691112-0200 Black Sheep ehf.
Hallveigarstíg 1 101 Reykjavík
20.
Ránargata 29A, Breytingar utanhúss, kvistur og fl.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að fjarlægja kvist sem fyrir er, byggja nýjan stærri og svalir á vesturhlið og nýjar tröppur og pall við aðalinngang einbýlishúss á lóð nr. 29A við Ránargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015. Erindi var grenndarkynnt frá 3. september til og með 1. október 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Húseigendur að Ránargötu 29 og 31, Stýrimannastíg 4, 6 og 8 og Bárugötu 30, dags. 24. september 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2015.
,Stækkun: 6,27 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 31. júlí 2015 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júlí 2015 einnig fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands. Gjald kr. 9.823

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt með þeim ábendingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2015.
Vísað til borgarráðs.





Umsókn nr. 49336 (01.63.670.9)
140880-3379 Hrefna Rósa Jóhannsd. Sætran
Fossagata 6 101 Reykjavík
21.
Fossagata 6, Endurnýja þak - portbyggja efri hæð
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og portbyggja þak og byggja nýtt bíslag við einbýlishús á lóð nr. 6 við Fossagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 24. júlí til og með 22. ágúst 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hrafnhildur Sigurðardóttir og Atle Vivås, dags. 2. ágúst 2015 og 20. ágúst 2015. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2015.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2015. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. júní 2015. Stækkun: 29,7 ferm., 178,8 rúmm. Gjald kr. 9.823

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.


Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. október 2015.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 130498 (01.15.03)
530269-3889 Sjávarútvegshúsið (Skúlagata 4)
Skúlagötu 4 101 Reykjavík
22.
Skúlagata 4, (fsp) hækkun húss
Á fundi skipulagsfulltrúa 14. mars 2014 var lögð fram fyrirspurn Sjávarútvegshússins dags. 17. október 2013 varðandi hækkun skrifstofuálmu til suðurs um tvær hæðir á lóð nr. 4 við Skúlagötu.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Frestað.




Umsókn nr. 130002
23.
Sorpa bs., fundargerðir
Lagðar fram fundargerðir Sorpu bs. nr. 354 frá 24. september 2015 og 355 frá 16. október 2015.



Umsókn nr. 130107
24.
Reykjanesfólkvangur, fundargerðir og ársreikningur
Lagðar fram fundargerðir Reykjanesfólkvangs frá 25. júní og 23. september 2015.



Umsókn nr. 150218
25.
Náttúruverndarnefndir sveitarfélaga og Umhverfisstofnun, ársfundur 2015
Lagt fram bréf umhverfisstofnunar, dags. 14. október 2015, varðandi ársfund náttúruverndanefndar sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar 2015 sem haldinn verður þann 12. nóvermber 2015.



Umsókn nr. 150226
26.
Göngugötur, tímabundin lokun vegna hátíðarinnar Icelandic Airwaves
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, verkefnisstjóra borgarhönnunar, dags. 15. október 2015 um að að Laugavegur, frá Vatnsstíg að mótum Bankastrætis og Þingholtstrætis, og Skólavörðustígur, frá gatnamótum Bergstaðastrætis að Bankastræti, verði tímabundið gerð að göngugötusvæði dagana 4-8. nóvember 2015 vegna hátíðarinnar Icelandic Airwaves.

Fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Sverrir Bollason, fulltrúi Bjartrar framtíðar S. Björn Blöndal og fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs Gísli Garðarsson samþykkja framlagða tillögu
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Ólafur Kr. Guðmundsson og fulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina Sigurður Ingi Jónsson sitja hjá við afreiðslu erindisins. .

Vísað til borgarráðs



Umsókn nr. 150230
27.
Kirkjustræti, Dómkirkjan, bílastæði
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 14. október 2015, þar sem lagt er til að heimilt verði að merkja tvö bílastæði innan lóðar Dómkirkjunnar að Kirkjustræti.

Samþykkt.


Umsókn nr. 150228
28.
Laufásvegur 53-55, Laufásborg, bílastæði fyrir hreyfihamlaða
Lagt fram erindi umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 15. október 2015, um að merkt verði bílastæði fyrir hreyfihamlaða við leikskólann Laufásborg að Laufásvegu 53-55.

Samþykkt með fyrirvara um samþykki lögreglustjóra Höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn nr. 130118
29.
Umhverfis- og skipulagssvið, yfirlit yfir innkaup
Lagt fram yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs á verkum yfir milljón í ágúst 2015.




Umsókn nr. 130185
30.
Umhverfis- og skipulagssvið, mánaðaruppgjör janúar til ágúst 2015
Kynnt uppgjör umhverfis- og skipulagssviðs ES og RK fyrir janúar til ágúst 2015.



Umsókn nr. 150225
31.
Umhverfis- og skipulagssvið, Gjaldskrá fyrir handsömun hesta sem ganga lausir í borgarlandinu
Lögð fram gjaldskrá dags. í október 2015 fyrir handsömun hesta sem ganga lausir í borgarlandinu.


Samþykkt.
Vísað til borgarráðs


Umsókn nr. 150511 (01.82.3)
300949-2319 Sigurjón Guðmundsson
Rauðagerði 40 108 Reykjavík
32.
Rauðagerði 40, málskot
Lagt fram málskot Sigurjóns Guðmundssonar, dags. 1. september 2015, vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 7. ágúst 2015 varðandi viðbyggingu fyrir stigahús á lóð nr. 40 við Rauðagerði, samkvæmt tillögu Arkís arkitekta ehf. dags. 19. júní 2015.

Hildur Gunnarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.



Umsókn nr. 150231
33.
Kjalarnes, erindisbréf, Starfshópur um mótun landbúnaðarstefnu
Kynnt drög að erindisbréfi starfshóps um mótun landbúnaðarstefnu fyrir Kjalarnes.



Umsókn nr. 150227
34.
Umhverfis- og skipulagsráð, tillaga varðandi handbók, tillaga varðandi handbók fyrir framkvæmdaaðila
Fulltrúi Samfylkingarinnar Sverrir Bollason lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Umhverfis- og skipulagsráð felur sviðsstjóra að útbúa handbók fyrir framkvæmdaraðila sem eru að byggja í grónum hverfum. Bæklingurinn geri grein fyrir þeim reglum sem gildi um umgengni á byggingarstöðum og kynni þær með skýrum og aðgengilegum hætti. Þar verði teknar saman og samræmdar kröfur í lögum, reglugerðum og þeim samþykktum sem Reykjavíkurborg hefur sett fram. Leitað skal samstarfs við Vinnueftirlit Ríkisins og Umhverfisstofnunar um fjármögnun, vinnslu og útgáfu bæklingsins. "

Samþykkt.

Umsókn nr. 150208
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
35.
Betri Reykjavík, að setja upp ljós við göngu/hjólagötu meðfram Strandveg (USK2015090064)
Lagt fram erindið ¿að setja upp ljós við göngu/hjólagötu meðfram Strandveg" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. september 2015. Erindið var þriðja efsta hugmynd septembermánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur.

Frestað.

Umsókn nr. 150161
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
36.
Betri Reykjavík, fleiri bekki í hverfi borgarinnar (USK2015060083)
Lagt fram erindið ¿bekkir" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. júní 2015. Erindið var efsta hugmynd júnímánaðar í málaflokknum framkvæmdir.


Frestað.

Umsókn nr. 150206
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
37.
Betri Reykjavík, upphitað strætóskýli til prófunar (USK2015090062)
Lagt fram erindið ¿upphitað strætóskýli til prófunar" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. september 2015. Erindið var efsta hugmynd septembermánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og samgöngusviðs, samgögnustjóra, dags. 13. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150209
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
38.
Betri Reykjavík, halda göngustígum (ekki bara gangstéttum) opnum að vetri (USK2015090065)
Lagt fram erindið ¿halda göngustígum (ekki bara gangstéttum) opnum að vetri" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. september 2015. Erindið var fjórða efsta hugmynd septembermánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra, dags. 13. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150207
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
39.
Betri Reykjavík, grænar götur í Smáíbúðahverfinu (USK2015090063)
Lagt fram erindið ¿grænar götur í Smáíbúðahverfinu" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. september 2015. Erindið var önnur efsta hugmynd septembermánaðar á samráðsvefnum og kemur úr málaflokknum samgöngur. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur , dags. 13. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150125
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
40.
Betri Reykjavík, skrá alla ketti hjá borginni (USK2015040063)
Lögð fram fimmta efsta hugmynd aprílmánaðar úr flokknum umhverfismál "skrá alla ketti hjá borginni" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. apríl 2015 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 14. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150124
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
41.
Betri Reykjavík, gæludýrageldingar á vegum borgarinnar (USK2015040064)
Lögð fram efsta hugmynd aprílmánaðar úr flokknum ýmislegt "gæludýrageldingar á vegum borgarinnar" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 30. apríl 2015 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 14. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150142
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
42.
Betri Reykjavík, meiri gróður í bert og opið land Úlfarsárdals (USK2015060008)
Lögð fram efsta hugmynd maímánaðar úr flokknum umhverfismál "meiri gróður í bert og opið land Úlfarsárdals" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 29. maí 2015 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 14. október 2015.

Frestað.

Umsókn nr. 150528 (01.27.00)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
43.
Flókagata 67, kæra 72/2015, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. september 2015 ásamt kæru, þar sem kærð er synjun á byggingarleyfi vegna lóðar nr. 67 við Flókagötu. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðstjóra, dags. 11. október 2015.



Umsókn nr. 150619 (01.19.60)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
44.
Laufásvegur 59, kæra 53/2015, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 13. júlí 2015 ásamt kæru dags. 9. júlí 2015, þar sem kært er leyfi til framkvæmda við hús á lóð nr. 59 við Laufásveg. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra, dags. 17. ágúst 2015.



Umsókn nr. 140206 (01.24.20)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
45.
Brautarholt 7, kæra 31/2014, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. apríl 2014 ásamt kæru dags. 15. apríl 2014 þar sem kærð er samþykkt borgarráðs frá 20. febrúar 2014 á breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 7 við Brautarholt. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 22. apríl 2014. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 8. október 2015. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildin gu á ákvörðun borgarráðs frá 20. febrúar 2014 um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir reitinn Brautarholt 7.
Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 28. júlí 2015 um að veita leyfi til að byggja stúdentagarða, tvær steinsteyptar þriggja hæða byggingar með 102 íbúðareiningum, sem umlykja innigarð, og bílakjallara fyrir 19 bíla á lóð nr. 7 við Brautarholt.
Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 18. ágúst 2015 um að veita takmarkað byggingarleyfi fyrir aðstöðusköpun og jarðvinnu á lóð nr. 7 við Brautarholt.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.
Rétt bókun er:
Lagt fram
Jafnframt er afturkölluð vísun til borgarráðs af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.


Umsókn nr. 110520 (01.13.74)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
46.
Túngötureitur, kæra 98/2011, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 8. desember 2011 ásamt kæru dags. 30. nóvember 2011 þar sem kært er deiliskipulag Túngötureits. Einnig lögð fram umsögn lögfræðings umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. janúar 2014. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 8. október 2015. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 3. nóvember 2011 um að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi fyrir Túngötureit.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.
Rétt bókun er:
Lagt fram
Jafnframt er afturkölluð vísun til borgarráðs af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.


Umsókn nr. 80395 (01.80.31)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
47.
Stóragerði 40-46, kæra 21/2008, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf frá úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 28. maí 2008 ásamt kæru dags. 19. mars 2008 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagsáætlun Stóragerðis 40-46 sem var samþykkt á fundi skipulagsráðs þann 16. janúar 2008. Breytingin var auglýst þann 26. febrúar 2008. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 22. september 2008. Jafnframt er lagður fram úrskurður umhverfios- og auðlindamála frá 8. október 2015. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 7. febrúar 2008 er lítur að breyttum mörkum deiliskipulags Espigerðis frá árinu 1971.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.
Rétt bókun er:
Lagt fram
Jafnframt er afturkölluð vísun til borgarráðs af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.


Umsókn nr. 130367 (01.18.65)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
48.
Njarðargata 25, kæra 73/2013, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 25. júlí 2013 ásamt kæru, dags. 19. júlí 2013 vegna samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs frá 8. maí 2013 á breyttu deiliskipulagi Nönnugötureits vegna lóðar nr. 25 við Njarðargötu. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 29. október 2013. Jafnframt er lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála frá 29. september 2015. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 30. maí 2013 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi staðgreinireits 1.185.6, Nönnugötureits.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.
Rétt bókun er:
Lagt fram
Jafnframt er afturkölluð vísun til borgarráðs af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.


Umsókn nr. 120012 (01.18)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
49.
Grundarstígsreitur, kæra 100/2011, umsögn, úrskurður
Lögð fram kæra til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 12. desember 2011 þar sem kærð er deiliskipulagsákvörðun fyrir Grundarstígsreit. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 2. apríl 2012. Jafnframt er lagður fram úrskurður umhverfis- og auðlindamála frá 1. október 2015. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 22. september 2011 um að samþykkja deiliskipulag fyrir Grundarstígsreit.

Leiðrétt bókun frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.
Rétt bókun er:
Lagt fram
Jafnframt er afturkölluð vísun til borgarráðs af fundi umhverfis- og skipulagsráðs 14. október 2015.


Umsókn nr. 150513 (01.1)
690906-1390 Batteríið Arkitektar ehf.
Hvaleyrarbraut 32 220 Hafnarfjörður
50.
Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. október 2015 um samþykkt borgarráðs dags. 1. október 2015 varðandi auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka.



Umsókn nr. 150168 (04.33.11)
51.
Hraunbær 103-105, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. október 2015 um samþykkt borgarráðs dags. 1. október 2015 varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðir nr. 103 og 105 við Hraunbæ.



Umsókn nr. 150181
471103-2330 Matfugl ehf.
Völuteigi 2 270 Mosfellsbær
500191-1049 Arkþing ehf
Bolholti 8 105 Reykjavík
52.
Kjalarnes, Melavellir, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 12. október 2015 um samþykkt borgarráðs 8. október 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi jarðarinnar Melavellir á Kjalarnesi.



Umsókn nr. 150499 (01.0)
53.
Gamla höfnin - Vesturbugt, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 12. október 2015 um samþykkt borgarráðs 8. október 2015 varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Vesturbugtar, Gömlu hafnarinnar.



Umsókn nr. 150565 (02.6)
250875-2909 Hanna Björk Kristinsdóttir
Úlffv. 33 Akurholt 113 Reykjavík
54.
Akurholt í Úlfarsfellslandi, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 12. október 2015 um samþykkt borgarráðs 8. október 2015 varðandi auglýsingu á deiliskipulagi fyrir lóðina Akurholt í Úlfarsfellslandi.



Umsókn nr. 130462 (01.18.63)
550305-0380 Reir ehf.
Skólavörðustíg 18 101 Reykjavík
55.
Baldursgata 32 og 34, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 12. október 2015 um samþykkt borgarráðs 8. október 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.186.3 vegna lóðanna nr. 32 og 34 við Baldursgötu.



Umsókn nr. 150209 (01.42)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf.
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
440703-2590 THG Arkitektar ehf.
Faxafeni 9 108 Reykjavík
56.
Kjalarvogur 12, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 12. október 2015 um samþykkt borgarráðs 8. október 2015 varðandi auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina að Kjalarvogi 12.



Umsókn nr. 150198
57.
Vistvæn vottun bygginga Reykjavíkurborgar, (USK2014120009)
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 12. október 2015, vegna samþykktar borgarráðs frá 8. október 2015 á skýrslu starfshóps um vistvæna vottun þar sem lagt er til að umhverfisvottunarkerfið BREEAM verði notað til að votta byggingar Reykjavíkurborgar.