Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Sorpa bs., Hljóðvistarstyrkir, Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 2, Þórunnartún 4 (áður Skúlatún 4), Grandavegur 47, Suður Selás og Norðlingaholt, Hverfisskipulag, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Hverfisgata 28, Hverfisgata 30, Hverfisgata 32, Hverfisgata 34, Laugavegur 17, Laugavegur 19-19B, Aðalstræti 6, Vesturgata 6-10A, Baldurstorg, Háskólinn í Reykjavík, Ferjuvogur 2, Vogaskóli, Höfðatorg, Barónsstígur, Sundhöllin, Brautarholt 7,

57. fundur 2014

Ár 2014, miðvikudaginn 5. mars kl. 09:10, var haldinn 57. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Karl Sigurðsson, Reynir Sigurbjörnsson, Sóley Tómasdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson , Marta Guðjónsdóttir og Óttarr Guðlaugsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Stefán Finnsson, og Marta Grettisdóttir Fundarritari var Harri Ormarsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 140022
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
1.
Betri Reykjavík, hreinsa tjörnina
Lögð fram fjórða efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum umhverfi "hreinsa tjörnina" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. desember 2013 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssvið dags. 27. febrúar 2014.

Þórólfur Jónsson deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið

Tillagan felld með vísan til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs dags. 27. febrúar 2014.

Umsókn nr. 140031
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
2.
Betri Reykjavík, hunda og fjölskyldugarð í miðbæinn
Lögð fram fimmta efsta hugmynd janúarmánaðar úr flokknum umhverfismál "hunda og fjölskyldugarð í miðbæinn" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssvið dags. 27. febrúar 2014.

Þórólfur Jónsson deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið

Tillagan felld með vísan til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs dags. 27. febrúar 2014.




Umsókn nr. 140021
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
3.
Betri Reykjavík, gróðursetja tré í úthverfin
Lögð fram önnur efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum umhverfi "gróðursetja tré í úthverfin" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. desember 2013 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 27. febrúar 2014.

Þórólfur Jónsson deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið


Tillögunni vísað til vinnu í trjáræktarstefnu umhverfis- og skipulagssviðs, deild náttúru og garða og deild opinna svæða.

Umsókn nr. 140027
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
4.
Betri Reykjavík, gámar fyrir einnota gler
Lögð fram efsta hugmynd janúarmánaðar úr flokknum umhverfismál "gámar fyrir einnota gler" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. janúar 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. febrúar 2014.

Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 20. febrúar samþykkt.




Umsókn nr. 130002
5.
Sorpa bs., fundargerðir
Lögð fram fundargerð Sorpu bs. nr. 332 frá 3. mars 2014.



Umsókn nr. 140034
6.
Hljóðvistarstyrkir, reglur
Lagt fram bréf samgöngustjóra umhverfis- og skipulagssviðs dags. 11. febrúar 2014 ásamt tillögu að reglum um veitingu styrkja til úrbóta á hljóðvist í íbúðarhúsnæði í Reykjavík


Samþykkt.

Umsókn nr. 10070
7.
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 21 og 28. febrúar 2014.






Umsókn nr. 140039 (01.26.11)
510907-0940 Reitir I ehf.
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
8.
Suðurlandsbraut 2, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Reita I ehf. dags. 29. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli, fækkun á bílastæðum og að gera grasmanir við lóðarmörk, innan og utan lóðar, samkvæmt uppdr. T.ark dags. janúar 2014.

Helga Lund verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð.
Samþykkt að falla frá frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.






Umsókn nr. 140007 (01.22.00)
571104-3260 Skúlatún 4 ehf
Bolholti 4 105 Reykjavík
9.
Þórunnartún 4 (áður Skúlatún 4), breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Skúlatúns 4 ehf. dags. 8. janúar 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.220.0 vegna lóðarinnar nr. 4 við Þórunnartún. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt lagfærðum uppdr. Gunnlaugs Jónassonar ark. dags. 12. febrúar 2013. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 13. febrúar 2014.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið

Frestað.
Skipulagsfulltrúa falið að hafa samband við hagsmunaaðila vegna umferðarkvaðar.






Umsókn nr. 140068 (01.52.12)
440208-2150 Grand eignir ehf.
Fjarðargötu 13-15 220 Hafnarfjörður
581298-3589 Kristinn Ragnarsson,arkit ehf.
Hlíðasmára 19 201 Kópavogur
10.
Grandavegur 47, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Grand eigna ehf. dags. 19. febrúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grandavegar, Lýsi og Sís vegna lóðarinnar nr. 47 við Grandaveg. Deiliskipulagsbreytingin uppfærir, til samræmis við núverandi stöðu og áður samþykktar breytingar í byggingarnefnd, fjölda íbúða og bílastæða Grandavegar 47 ásamt því að heimila breytingu á notkun rýmis 0104 úr þjónustu í íbúð, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts ehf. dags. 10. febrúar 2014.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið

Óttarr Guðlaugsson vék af fundi kl. 11:38 þá var einnig búið að kynna drög að hverfisskipulagslýsingu fyrir Hlíðahverfi og Árbæjarhverfi.

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð.
Samþykkt að falla frá frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Umsókn nr. 140004
11.
Suður Selás og Norðlingaholt, breyting á deiliskipuagi
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður Seláss og Norðlingaholts. Í breytingunni felst að göngubrú yfir Breiðholtsbraut er lengd, lega reiðleiðar breytist lítillega og fer hún undir nýju göngubrúnna, tekin eru út undirgöng undir gönguleið. Mörk deiliskipulags breytast vegna breyttrar legu reiðleiðar og skipulagssvæðið stækkar, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 26. febrúar 2013. Einnig er lögð fram ályktun Hestamannafélagsins Fáks dags. 12. janúar 2014 vegna breytinga á áður samþykktri tillögu frá maí 2013 og tillaga að göngubrú og legu reiðgötu við nýja göngubrú ódags.

Samþykkt með vísan til 2. mgr. 12. gr. samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð.
Samþykkt að falla frá frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Umsókn nr. 140043
12.
Hverfisskipulag, Árbær, Hlíðar, Grafarholt/Úlfarsárdalur og Laugardalur.
Kynnt drög að hverfisskipulagslýsingu og mati á umhverfisþáttum, Árbæjar, Hlíða, Grafarholts/Úlfarsárdals og Laugardals. Í drögunum koma fram helstu niðurstöður úr gátlista, greining á skipulagsskilmálum auk helstu áherslum og framtíðarsýn fyrir hverfin. Einnig eru kynntar hugmyndir sem eru í mótun fyrir næsta verkhluta.

Hildur Sverrisdóttir tekur sæti á fundinum kl. 13:22


Helga Bragadóttir og Sigríður Magnúsdóttir og Stefán Gunnar Thors, ráðgjafateimi Hlíða kynna.
Gylfi Guðjónsson, .Pétur Jónsson og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, ráðgjafateymi Árbæjar kynna
Oddur Hermannsson, Hilmar Þór Björnsson og Hjördís Sigurgísladóttir ráðgjafateymi Laugardals kynna.
Heiða Aðalsteinsdóttir, Hlín Sverrisdóttir og Kristján Örn Kjartansson ráðgjafateymi Grafarholts/Úlfarsárdals kynna.




Umsókn nr. 45423
13.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð
Fylgiskjöl með fundargerð þessari er fundargerðir nr. 768 frá 25. febrúar 2014 og nr. 769 frá 4. mars 2014.








Umsókn nr. 47078 (01.17.111.6)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
14.
Hverfisgata 28, Br. inni kjallari o.fl.
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta nýsamþykktri endurbyggingu, sjá erindi BN046189, - flóttastigi og svalir á bakhlið eru felld út, útbúinn nýr flóttastigi af þaki Hverfisgötu 30 og innréttuð 7 gistiherbergi og setustofa, sem verða hluti stærra hótels á Hljómalindarreit) í húsi á lóð nr. 28 við Hverfisgötu. Gjald kr. 9.500

Kynnt.

Umsókn nr. 47133 (01.17.110.2)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
15.
Hverfisgata 30, Hótel
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóðum nr. 30, 32 og 34 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.


Kynnt.

Umsókn nr. 47140 (01.17.110.3)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
16.
Hverfisgata 32, Hótel
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóðum nr. 30, 32 og 34 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

Kynnt.

Umsókn nr. 47141 (01.17.110.5)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
17.
Hverfisgata 34, Hótel
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að byggja 2. áfanga hótels á Hljómalindareit, staðsteypt hús á fimm hæðum sem í verða 64 herbergi, fjórar íbúðir, veitingasalur, eldhús og verslunarrými á aðgönguhæðum húsa á lóðum nr. 30, 32 og 34 við Hverfisgötu.
Kynnt.

Umsókn nr. 47129 (01.17.111.1)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
18.
Laugavegur 17, Endurgera hús, viðbygging
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að endurbyggja eldra hús, byggja steinsteypta viðbyggingu með kjallara á bakhlið og innrétta fimm íbúðir og verslunarrými í húsi á lóð nr. 17 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Stækkun: xx ferm. Gjald kr. 9.500

Kynnt.

Umsókn nr. 47130 (01.17.111.0)
671106-0750 Þingvangur ehf.
Hlíðasmára 9 201 Kópavogur
19.
Laugavegur 19-19B, Endurgera hús, ofanábygging, viðbygging
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. febrúar 2014 þar sótt er um leyfi til að endurbyggja eldra timburhús og byggja "Mansard" hæð ofaná, einnig að byggja steinsteypta viðbyggingu , þrjár hæðir og kjallara á bakhlið og innrétta fimm íbúðir og verslunarrými í húsi á lóð nr. 19-19B við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.500

Kynnt.

Umsókn nr. 140041 (01.13.65)
711208-0700 Reitir fasteignafélag hf.
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík
531107-0550 Arkís arkitektar ehf
Höfðatúni 2 105 Reykjavík
20.
Aðalstræti 6, (fsp) breyting á þakhæð
Lögð fram fyrirspurn Reita fasteignafélags hf. dags. 27. janúar 2014 varðandi breytingu á þakhæð hússins á lóð nr. 6 við Aðalstræti, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 10. desember 2013. Einnig er lagt fram skuggavarp Arkís arkitekta ehf. dags. 28. janúar 2014.


Frestað.

Umsókn nr. 140047 (01.13.21)
630785-0309 Kirkjuhvoll sf
Pósthólf 1100 121 Reykjavík
21.
Vesturgata 6-10A, (fsp) gistiheimili
Lögð fram fyrirspurn THG arkitekta f.h. Kirkjuhvols dags. 4. febrúar 2014 um hvort leyft verði að fá að reka gistiheimili í húsunum á lóð nr. 6-10 við Vesturgötu ásamt veitingarekstri í kjallara. Einnig er lögð fram greinargerð hönnuða dags. 4. febrúar 2014 ásamt uppdráttum dags. 4. febrúar 2014.
Frestað

Umsókn nr. 140045
22.
Baldurstorg, forhönnun
Kynnt forhönnun á Baldurstorgi sem afmarkast af Nönnugötu, Baldursgötu og Óðinsgötu.

Pálmi Freyr Randversson verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið

Kristján Örn Kjartansson arkitekt kynnir

Umsókn nr. 140082 (01.75.1)
23.
Háskólinn í Reykjavík, kynning
Kynntar eru hugmyndir að stúdentagörðum við Hlíðarfót.

Sigurður Hallgrímsson og Þorkell Sigurlaugsson kynna

Umsókn nr. 140032 (01.44.01)
24.
Ferjuvogur 2, Vogaskóli, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 14. febrúar 2014 um samþykkt borgarráðs 13. febrúar 2014 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi lóðar Vogaskóla að Ferjuvogi 2.



Umsókn nr. 140036 (01.22.01)
520613-1370 Höfðatorg ehf.
Stórhöfða 34-40 110 Reykjavík
25.
Höfðatorg, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 14. febrúar 2014 um samþykkt borgarráðs 13. febrúar 2014 um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Höfðatorgs.



Umsókn nr. 130179 (01.19.10)
26.
Barónsstígur, Sundhöllin, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. febrúar 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Heilsuverndarreits vegna lóðar Sundhallar við Barónsstíg 43.



Umsókn nr. 130532
27.
Brautarholt 7, nýtt deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. febrúar 2014 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi nýtt deiliskipulag fyrir svæðið Brautarholt 7.