Úlfarsá, Varðveislusetur menningarverðmæta Reykjavíkurborgar, Umhverfis- og skipulagssvið, Pósthússtræti, Umhverfis- og skipulagssvið, Betri hverfi, Sorpa, Vesturlandsvegur- Grundarhverfi, Sæbraut, Umhverfis- og skipulagssvið, Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Mýrargata, Gamla höfnin - Vesturbugt, Einholt-Þverholt, Síðumúli 30, Foldahverfi, 3. áfangi, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Umhverfis- og skipulagsráð, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagssvið, Laugavegur 178 og Ármúli 6, afskráning byggingarstjóra,

41. fundur 2013

Ár 2013, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 9:08 var haldinn 41. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Sverrir Bollason, Sóley Tómasdóttir og Óttarr Guðlaugsson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Ólafur Bjarnason, Harri Ormarsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir og Marta Grettisdóttir Fundarritari var Örn Sigurðsson
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 130253
541170-0149 Veiðifélag Úlfarsár
Hlaðhömrum 2 270 Mosfellsbær
1.
Úlfarsá, fleyga klöpp í árfarvegi
Lagt fram erindi stjórnar Veiðifélags Úlfarsár dags. 15. maí 2013 varðandi leyfi til að fleyga úr klöpp í árfarvegi Úlfarsár til að auðvelda uppgöngu laxa í ánni. Einnig er lögð fram umsögn Veiðimálastofnunar dags. 7. maí 2013. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. október 2013.





Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. október 2013 samþykkt.

Karl Sigurðsson tekur sæti á fundinum kl. 9:14.
Júlíus Vífill Ingvarsson tekur sæti á fundinum kl. 9:15.



Umsókn nr. 130278
2.
Varðveislusetur menningarverðmæta Reykjavíkurborgar, forsögn
Lagt fram bréf Menningar- og ferðamálasviðs dags. 16. október 2013 vegna svohljóðandi bókunar menningar- og ferðamálaráðs frá 14. október 2013 um Varðveislusetur menningarverðmæta Reykjavíkurborgar: "Menningar- og ferðamálaráð ítrekar þörfina á varðveislusetri fyrir menningarverðmæti borgarinnar. Nú sem fyrr er þörfin brýn að finna framtíðarlausn og er uppfærðri forsögn um Varðveislusetur menningarverðmæta Reykjavíkur vísað til kynningar í borgarráði og umhverfis- og skipulagssviði."

Rúnar Gunnarsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Signý Pálsdóttir skrifstofustjóri á menningar- og ferðamálasviði kynnir.





Umsókn nr. 120426
3.
Umhverfis- og skipulagssvið, Götulýsingar
Kynning á stöðu á vinnu starfshóps um götulýsingar í Reykjavík.

Ársæll Jóhannsson tæknifræðingur og Hilmar Jónsson frá OR kynna.

Hildur Sverrisdóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:22.


Umsókn nr. 130233
4.
Pósthússtræti, endurgerð
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. september 2013 þar sem lagt er til að undirbúningur framkvæmda á tillögum að endurgerð Pósthússtrætis, annars vegar sunnan austurstrætis og hins vegar norðan Austurstrætis sem samþykkt voru á fundi umhverfis- og samgönguráðs 13. mars 2012 og 10. apríl 2012 verði haldið áfram. Einnig er lögð fram hugmynd Landmótunar dags. 31. október 2013.

Áslaug Traustadóttir frá Landmótun kynnir
Samþykkt.


Umsókn nr. 130293
5.
Umhverfis- og skipulagssvið, Verkstöðuskýrsla nýframkvæmda jan- sep 2013.
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. nóvember 2013 ásamt verkstöðuskýrslu nýframkvæmda umhverfis- og skipulagssviðs frá janúar til september 2013.

Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri kynnir.

Umsókn nr. 130292
6.
Betri hverfi, Klambratúni og Vesturbær skammdegis- og jólalýsing
Lögð fram og kynnt drög að skammdegis- og jólalýsingu á Klambratúni og í Vesturbænum.

Ámundi V. Brynjólfsson skrifstofustjóri kynnir.

Umsókn nr. 130284
7.
Sorpa, Eigendasamkomulag
Lagt fram til kynningar eigendasamkomulag SORPU dags. 17. september 2013 um meðhöndlun úrgangs í Álfsnesi, gas- og jarðgerðarstöð og mótun framtíðarstefnu og mögulegs samstarfs sorpsamlaga um meðhöndlun og förgun úrgangs.

Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri, Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.

Óttarr Guðlaugsson víkur af fundi kl. 12:00 og Marta Guðjónsdóttir tekur sæti á fundinum á sama tíma.
Hildur Sverrisdóttir víkur af fundi kl. 12:00

Margrét Gauja Magnúsdóttir og Páll Guðjónsson framkv.stj. SSH, kynna






Umsókn nr. 130202
8.
Vesturlandsvegur- Grundarhverfi, breyting á hringvegi
Lögð fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 6. ágúst 2013 ásamt tillögu Vegagerðarinnar varðandi breytingu á hringveginum við Grundarhverfi. Í breytingunni felst að eingöngu verði hægt að beygja út úr Klébergsskólavegi inn á Hringveg til hægri. Klébergsskólavegur verði jafnframt mótaður þannig að aðeins verði hægt að beygja af honum til hægri inn á Hringveg, en ekki verði hægt að beygja af Hringvegi inn á Klébergsskólaveg. Ennfremur felur tillagan í sér að malbika axlir við Klébergsskólaveg og setja vegrið í miðjan Hringveg til að loka fyrir beygjur til vinstri. Tillagan felur einnig í sér að lengja vinstribeygjuvasa á Hringvegi við Brautarholtsveg. Einnig er lagt fram bréf framkvæmdastjóra Miðgarðs, dags. 31. október 2013 vegna bókana í hverfisráði Kjalarness 18. september og 10. október 2013 vegna framkvæmda við Vesturlandsveg og Brautarholtsveg.
Samþykkt.

Umsókn nr. 130282
9.
Sæbraut, hjólastígur
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 24. október 2013 ásamt tillögu að hjólastíg meðfram Sæbraut frá Kringlumýrarbraut að Faxagötu samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti dags. í september 2013.

Frestað.

Umsókn nr. 130286
10.
Umhverfis- og skipulagssvið, Vatnspóstar
Lagt fram bréf Orkuveitu Reykjavíkur dags. 21. október 2013 varðandi vatnspósta í Reykjavík. Einnig er lagt fram minnisblað umhverfis- og skipulagssviðs dags. 28. október 2013.

Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.




Umsókn nr. 10070
11.
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 1. nóvember 2013.





Umsókn nr. 130456
12.
Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030,
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að aðalskipulagi Reykjavíkur dags. í júlí 2013 (apríl útgáfa að viðbættum breytingum samþykktum 3. júní, 10. og 25. júlí 2013): greinargerð A-hluti, sveitarfélagsuppdráttur, þéttbýlisuppdráttur, greinargerð B-hluti og fylgigögn C-hluti (þ.m.t. umhverfisskýrsla og umsagnir sem bárust fyrir 3. júní 2013). Einnig lagðar fram þær umsagnir sem bárust eftir 3. júní 2013: umsögn Seltjarnarnesbæjar dags. 30. maí 2013, Umsögn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 3. júní 2013, umsögn/svar Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða dags. 5. júní 2013, umsögn Vegagerðarinnar dags. 5. júní 2013, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 14. júní 2013, umsögn Eimskips dags. 24. júní 2013 og umsögn umhverfisstofnunar dags. 25. júní 2013. Ennfremur lagður fram breytingarlisti umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 8. júlí 2013 ásamt minnisblaði vegna umsagnar Vegagerðarinnar, dags. 8. júlí 2013. Lagt fram bréf Magnúsar Skúlasonar dags. 18. september 2013 þar sem óskað er eftir framlengingu á fresti til að senda inn athugasemdir um tvær vikur. Tillagan var auglýst frá 9. ágúst til og með 20. september 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Reynir Kristinsson, ásamt breytingartillögum, dags. 13. ágúst 2013, Landbakki, Ingi Guðmundsson, dags. 14. ágúst 2013, Guðbrandur Magnússon og Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir dags. 21. ágúst 2013, Benedikt Geirsson, dags. 23. ágúst 2013, Lilja U. Óskarsdóttir, dags. 25. ágúst 2013, Gauti Kjartan Gíslason, dags. 26. ágúst 2013, ábending Esjustofu, Pjetur Árnason, dags. 28. ágúst 2013, Þorsteinn Kúld, dags. 29. ágúst 2013, ábending Braga Bergssonar, dags. 4. september 2013, ábending Massimo Santanicchia, dags. 9. september 2013, bókun og athugasemd sveitarstjórnar Hrunamannahrepps, dags. 6. september 2013, Ísleifur Gíslason, dags. 10. september 2013, Svavar Stefánsson, dags. 10. september 2013, Ásta Aðalsteins, dags. 10. september 2013, Landbúnaðarháskóli Íslands, Ágúst Sigurðsson dags. 10. september 2013, FSBP2 ehf, Sveinn Hreinsson, dags. 10. september 2013, bókun og athugasemd bæjarráðs Akureyrar dags. 5. september 2013, bókun og athugasemd bæjarráðs Fljótsdalshéraðs dags. 5. september 2013, bókun og athugasemdir Kópavogsbæjar dags. 11. september 2013, Páll T. Jörundsson og Inga.I.S. Vilhjálmsdóttir, dags. 11. september 2013, Jón Óli Ólafsson og Ingibjörg J. Helgadóttir, dags. 11. september 2013, ByggáBIRK, dags. 12. september 2013, Vignir Rafn Gíslason og Laufey Björk Þorsteinsdóttir, dags. 12. september 2013, Björn Arnar, dags. 12. september 2013, Sigmundur Andrésson, dags. 12. september 2013, Alfhild Nielsen, dags. 12. september 2013, Sigurður Ingimarsson, dags. 12. september 2013, íbúar að Seiðakvísl 43, dags. 12. september 2013, Edward H. Finnsson, dags. 12. september 2013, Júlíus Björn Þórólfsson, dags. 12. september 2013, Helgi Rafnsson, dags. 12. september 2013, bókun og athugasemd hreppsnefndar Kjósarhrepps, dags. 12. september 2013, Sigurður Ásgeirsson, dags. 12. september 2013, Bjarni Bærings, dags. 13. september 2013, Kvótasalan ehf. dags. 13. september 2013, Landbakki ehf, dags. 13. september 2013, Hafsteinn Linnet, dags. 13. september 2013, athugasemd og bókun Kópavogsbæjar dags. 13. september 2013, Jón Leví, dags. 13. september 2013, Anna Snjólaug Arnardóttir, dags. 13. september 2013, Ægir Wessman, dags. 15. september 2013, Hestamannfélagið Sprettur, reiðveganefnd, dags. 15. september 2013 og Hestamannafélagið Sprettur stjórn, dags. 15. september 2013, Reiðveganefnd í Kjalarnesþingi hinu forna, dags. 15. september 2013, Hestamannafélagið Hörður, reiðveganefnd, dags. 16. september 2013, Erling Jóhannesson, dags. 16. september 2013, Örn Karlsson, dags. 16. september 2013, Íslenska flugsögufélagið, dags. 16. september 2013, Þorsteinn Kristleifsson dags. 16. september 2013, Sæmundur Eiríksson f.h. reiðveganefndarinnar Harðar í Mosfellsbæ dags. 16. september 2013, Emil Ágústsson mótt. 16. ágúst 2013, Kristján Árnason dags. 16. september 2013, Kristján Árnason, dags. 16. september 2013, bókun og athugasemdir Bláskógarbyggðar dags. 17. september 2013, Siglingarsamband Íslands dags. 17. september 2013, Stefanía Þorgeirsdóttir f.h. starfsmanna tilraunastöðvarinnar á Keldum dags. 17. september 2013, Anna Ósk Kolbeinsdóttir og Hjalti Skúlason dags. 17. september 2013, Guðmundur Sigurðsson og Sigurbjörg Stefánsdóttir, dags. 17. september 2013, íbúasamtökin Betra Breiðholt, dags. 17. september 2013, Elísabet Kristinsdóttir, dags. 17. september 2013, bókun og athugsemdir Sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps, dags. 17. september 2013, Reitir fasteignafélag, dags. 18. september 2013, Snædís Gunnlaugsdóttir hdl. f.h. eig. Hofslands 1, Kjalarnesi, dags. 18. september 2013, Jón Sveinbjörnsson, dag. 18. september 2013, Leifur Magnússon, dags. 18. september 2013, eigendur Hjarðarness, Kjalarnesi, dags. 18. september 2013, eigandi Tindstaða Haukur Óskarsson, dags. 18. september 2013, eigandi Skrauthóla Sigurður Antonsson, dags. 18. september 2013, Arnar Þór Emilsson, dags. 18. september 2013, Knattspyrnufélagið Fram, dags. 18. september 2013, Gunnar Ólafsson, dags. 19. september 2013, Tilraunastöð HÍ að Keldum ásamt samningi, dags. 19. september 2013, Anna Einarsdóttir og Gísli Gíslason, dags. 19. september 2013, Flugklúbburinn Þytur, dags. 19. september 2013, Halldór Frímannsson, dags. 19. september 2013, Garðaflug ehf, dags. 19. september 2013, Stjórn nemendafélags Háskólans í Reykjavík, dags. 19. september 2013, bókun og athugasemdir skipulags- og byggingaráðs Hafnafjarðar dags. 19. september 2013, Fylkir ehf., dags. 19. september 2013, Kristján Guðmundsson, dags. 19. september 2013, Brynjólfur Helgason og Sigríður Kristjánsdóttir, dags. 19. september 2013, Siglingafélagið Brokey, dags. 19. september 2013, Steinunn Haraldsdóttir, dags. 19. september 2013, Samtök ferðaþjónustunnar, dags. 19. september 2013, Skildingar ehf. dags. 19. september 2013, Stólpar ehf., dags. 19. september 2013, Gylfi Rútsson og Ágústa Kristjánsdóttir, dags. 19. september 2013, Skólaráð Sæmundarskóla, dags. 19. september 2013, Knattspyrnufélagið Þróttur, dags. 19. september 2013, Hverfisráð Kjalarness, dags. 19. september 2013, Íþróttafélög í Laugardal, dags. 19. september 2013, Áslaug Skeggjadóttir, dags. 19. september 2013, Icelandair Group, dags. 19. september 2013, Magnús Brimar Jóhannsson, dags. 19. september 2013, Ingibjörg Svavarsdóttir, dags. 19. september 2013, Andrea Þormar og Atli Már Jósafatsson, dags. 19. september 2013, Sigurlína Magnúsdóttir, dags. 19. september 2013, Berglind Aðalsteinsdóttir, dags. 19. september 2013, Ólafur G. Flóvens, dags. 19. september 2013, Bergþóra Kristinsdóttir, dags. 19. september 2013, Íbúasamtök Grafarholts, dags. 19. september 2013, Sigurbjörn Hjaltason, dags. 19. september 2013, Flugmálafélag Íslands, dags. 19. september 2013, Sigurður Ingi Jónsson, dags. 20. september 2013, Árni Jón Sigfússon, dags. 20. september 2013, Siglingafélagið Ýmir og Siglingaf. Reykjavíkur Brokey, dags. 20. september 2013, íbúasamtök Úlfarsárdals, 2 bréf, dags. 20. september 2013, Vogabyggð 2 bréf, dags. 20. september 2013, Olíudreifing ehf. dags. 20. september 2013, Landsbyggðin lifi, dags. 20. september 2013, Vilhjálmur Baldursson, dags. 20. september 2013, Kári Guðbrandsson og Sigrún Sigurpálsdóttir, dags. 20. september 2013, bókun og athugasemdir sameiginlegrar skipulagsnefndar uppsveita BS, dags. 20. september 2013,
Iceland Aviation ehf., dags. 20. september 2013, Þyrlufélagið ehf. dags. 20. september 2013, Vegagerðin, dags. 28 . september 2013, bókun og athugasemdir sveitastjórnar Eyjafjarðarsveitar, dags. 20. september 2013, Fríða Hrönn Elmarsdóttir, dags. 20. september 2013, Skotíþróttasamband Íslands, dags. 20. september 2013, Orkuveita Reykjavikur, dags. 20. september 2013, Júdósamband Íslands, dags. 20. september 2013, Landspítali Háskólasjúkrahús, dags. 20. september 2013, Skógrækt ríkisins, dags. 20. september 2013, íbúar við Rafstöðvarveg, 29 aðilar, dags. 20. september 2013, Akstursíþróttasamband Ísl. dags. 20. september 2013, Bolli Héðinsson, dags. 20. september 2013, Körfuknattleikssamband Íslands, dags. 20. september 2013, Prýðifélagið Skjöldur, dags. 20. september 2013,
Þórður Gíslason og Guðrún Árnadóttir, dags. 20. september 2013, Daníel Friðriksson, dags. 20. september 2013, Björgun ehf, dags. 20. september 2013, Eimskip, dags. 19. september, undirskriftalisti 121 íbúa í Húsahverfi, mótt. 20. september, Björn Kristinsson, dags. 20. september 2013, Lex lögmenn f.h. eig. Stóru Skóga dags. 20. september 2013, Dansíþróttasamband Íslands dags. 20. september 2013, Samtök atvinnul.ferðaþj.iðnaðar og verslunar dags. 20. september 2013, Pétur Bjarnason og Soffía Jóhannsdóttir, dags. 20. september 2013, Hestamannafélagið Fákur, dags. 20. september 2013, Kraftlyftingasambands Íslands, dags. 20. september 2013, dags. 20. september 2013, Kristbjörg Hjaltadóttir, dags. 20. september 2013, Íbúasamtök Grafarvogsdags, dags. 20. september 2013, Gunnlaugur Briem, dags. 20. september 2013, Jónas Bjarnason, dags. 20. september 2013, Egill Guðmundsson, dags. 20. september 2013, Innanríkisráðuneytið, dags. 20. september 2013, Klasi ehf og Elliðaárvogur ehf, dags. 20. september 2013, Magnús K. Bergmann og Drífa Magnúsdóttir, dags. 20. september 2013, Hrafnhildur Sverrisdóttir, Sigurjón Sindrason, Helga Björnsson, dags. 20. september 2013, Þórir Einarsson, dags. 20. september 2013, Kristinn Bjarnason, dags. 20. september 2013, Samtök um betri byggð ásamt 9 viðhengjum, dags. 20. september 2013, Bergljót Rist, dags. 20. september 2013, Rut Agnarsdóttir, dags. 20. september 2013, Ólafur Magnússon og Íris Baldursdóttir, dags. 20. september 2013, Helena Bergmann og Sveinbjörn Sveinbjörnsson, dags. 20. september 2013, eig. Hrafnhóla Kjalarnesi ásamt viðhengi dags. 20. september 2013, Friðþjófur Árnason og Líney Símonardóttir, dags. 20. september 2013, Íbúasamtök Laugardals, dags. 20. september 2013, Stúdentaráð Háskóla Íslands, dags. 20. september 2013, Guðrún Bryndís Karlsdóttir, Félag Ísl. einkaflugmanna, dags. 20. september 2013, Svandís Kjartansd. Gísli Einarss. Guðmundur Einarss., dags. 20. september 2013, Svifflugfélag Íslands 2 viðhengi, dags. 20. september 2013, Fríða Hrönn Elmarsdóttir, dags. 20. september 2013, Björgúlfur Thorsteinsson og Elsa Guðmundsdóttir, dags. 20. september 2013, Hanna Björk Kristinsdóttir, dags. 20. september 2013, Inga M. Friðriksdóttir, dags. 20. september 2013, Þórir Einarsson, dags. 20. september 2013, Þorkell Ásgeir Jóhannsson, dags. 20. september 2013, Inga Dagfinnsdóttir, Íbúasamtök Vesturbæjar, dags. 20. september 2013, Þóra Andrésdóttir, dags. 20. september 2013, Ingimundur Stefánsson, dags. 20. september 2013, Helga Bragadóttir ráðgj.hópur Hlíða, dags. 20. september 2013, Knattspyrnufélagið Víkingur, dags. 20. september 2013, Gísli Gestsson, dags. 21. september 2013, Ólafur Viðarsson, dags. 21. september 2013, Landssamtök hjólreiðamanna , 21. september 2013, Tennissamband Íslands, 23. september 2013, 17 íbúar við Rafstöðvarveg, dags. 23. september 2013, Íþróttasamband fatlaðra, dags. 23. september 2013, Skildingar ehf, dags. 23. september 2013,Hvalfjarðarsveit dags. 23. september 2013 og Andrés Andrésson dags. 23. september 2013.
Einnig lagðar fram undirskriftir sem safnað var á vefsvæðinu lending.is.
Eftirfarandi umsagnir bárust: Umsögn skipulagsstofnunar við drög að aðalskipulagstillögu dags. 16. júlí 2013, umsögn Hvalfjarðarsveitar, dags, 26. ágúst 2013, umsögn/bókun Hverfisráðs Miðborgar dags. 22. ágúst 2013, bréf skipulags- og byggingarfulltrúa Árnessýslu og Flóahrepps, dags. 27. ágúst 2013, umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 11. september 2013 ásamt viðbót 23. september 2013, Umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 19. september 2013, umsögn Isavia dags. 20. september 2013, Umsögn Samgöngustofu, dags. 20. september 2013.
Allar athugasemdir sem bárust: tengill

Haraldur Sigurðsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað.

Umsókn nr. 130115 (01.13)
13.
Mýrargata, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. júlí 2013 um að falla frá stokkalausn á Mýrargötu í aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024. Einnig lögð fram umhverfisskýrsla VSÓ ráðgjafar dags. í júní 2013. Tillagan var auglýst frá 14 ágúst til og með 25. september 2013 Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir/umsagnir: umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 11. júlí 2013, umsögn Vegagerðarinnar dags. 22. júlí 2013, umsögn Umhverfisstofnunar dags. 30. júlí 2013, bréf Skipulagsstofnunar 2. ágúst 2013, bréf Seltjarnarnesbæjar dags. 8. ágúst 2013 ásamt bókun skipulags- og mannvirkjanefndar dags. 23. júlí 2013, Seltjarnarnesbær dags. 24. september 2013, umsögn umhverfisstofnunar dags. 26. ágúst 2013 og íbúasamtök Vesturbæjar dags. 26. september 2013. Einnig er lagt fram bréf Seltjarnarnesbæjar dags. 26. september 2013 ásamt bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 17. september 2013.
Kynnt drög að umsögn verkefnisstjóra aðalskipulags.

Haraldur Sigurðsson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Frestað.

Umsókn nr. 120436 (01.0)
14.
Gamla höfnin - Vesturbugt, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breyttu deiliskipulagi Vesturbugtar sem afmarkast af Ánanaustum í vestri og að Slippnum í austri samkvæmt uppdráttum ALARK arkitekta ehf. dags. 8. júlí 2013. Einnig lögð fram greinargerð og skilmálar dags. 8. júlí 2013. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt, athugasemdir bárust. Tillagan var auglýst frá 14. ágúst til og með 3. október 2013. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Skúli Magnússon dags. 28. ágúst 2013, CCP hf dags. 19. september 2013, umsögn/athugasemd Vegagerðin dags. 19. september 2013, Slippurinn fasteignafélag dags. 19. september 2013, JE Skjanni byggingaverktakar dags. 23. september 2013, Seltjarnarnesbær dags. 24. september 2013, Katrín Harðardóttir dags. 25. september 2013, Lilja Steingrímsdóttir dags. 2. október 2013, Faxaflóahöfn dags. 30. september 2013, íbúasamtök Vesturbæjar dags. 1. október 2013, Sigurður Högni Jónsson dags. 2. október 2013, Lena Cecilia Nyberg dags. 2. október 2013, Villi Símonarson dags. 2. október 2013, Bragi Þorgrímur Ólafsson dags. 2. október 2013, Gunnar Haraldsson dags. 2. október 2013, Brimgarðar ehf. dags. 2. október 2013, Magnús Skúlason dags. 2. október 2013, Sigmundur Traustason dags. 3. október 2013, Jóna Torfadóttir dags. 3. október 2013, Margrét Harðardóttir og Steve Christer dags. 3. október 2013, Nótt Thorberg dags. 3. október 2013, Sigurjón H. Ingólfsson dags. 3. október 2013, Curver Thoroddsen dags. 3. október 2013 og íbúasamtök Vesturbæjar ásamt undirskriftarlista 393 aðila dags. 2. október 2013.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Frestað

Júlíus Vífill Ingvarsson víkur af fundi kl. 13:40, Óttarr Guðlaugsson tekur sæti á fundinum á sama tíma.




Umsókn nr. 130238 (01.24.43)
15.
Einholt-Þverholt, deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi samkvæmt uppdrætti og greinargerð Ask arkitekta dags. 11. ágúst 2013. Einnig lagður fram skýringaruppdráttur dags. 11. ágúst 2013. Svæðið afmarkast af Einholti, Háteigsvegi, Þverholti og Stórholti. Tillagan var hagsmunaaðilakynnt, athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram bréf Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða dags. 21. ágúst 2013 ásamt bókun Hverfisráðs Hlíða frá 19. ágúst 2013. Tillagan var auglýst frá 2. september 2013 til og með 14. október 2013. Athugasemdir og ábendingar sendu: Gláma-Kím f.h. húseigenda Þverholti 11 dags. 9. okt. 2013 og Þórarinn Hauksson dags. 14. október 2013. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. október 2013.

Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. október 2013.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 130497 (01.29.52)
621101-2420 Lýsing hf.
Ármúla 3 108 Reykjavík
16.
Síðumúli 30, lóðarstækkun
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. október 2013 var lögð fram umsókn Lýsingar hf. dags. 17. október 2013 um stækkun lóðarinnar nr. 30 við Síðumúla til austurs, samkvæmt uppdr. Alark arkitekta ehf. dags. 16. október 2013.
Ráðið samþykkir stækkun lóðar með vísan til 12. gr samþykktar um umhverfis- og skipulagsráð.



Umsókn nr. 130289 (02.8)
17.
Foldahverfi, 3. áfangi, breyting á deiliskipulagsskilmálum
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Foldahverfis, 3. áfanga, dags. 16. október 2013.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 45423
18.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð
Fylgiskjöl með fundargerð þessari er fundargerð nr. 754 frá 5. nóvember 2013.








Umsókn nr. 130272
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
23.
Umhverfis- og skipulagsráð, Reykjavíkurráð ungmenna, tillaga um bættan hverfisbrag í Grafarholti
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. október 2013 vegna samþykktar borgarstjórnar og Reykjavíkurráðs ungmenna 8. október 2013 um að vísa svohljóðandi tillögu Sólrúnar Ástu Björnsdóttur frá ungmennaráði Árbæjar, Norðlingaholts og Grafarholts um bættan hverfisbrag í Grafarholtinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs: "Þarf tiltekt á stórum svæðum í Grafarholtinu, hraðbanka og aukna þjónustu, huggulega staði og tengingu Úlfarsárdals og Grafarholt. Einnig þarf skjólsælli og huggulegri útisvæði."

Frestað

Umsókn nr. 130283
33.
Umhverfis- og skipulagssvið, gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavík
Kynnt drög að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Reykjavík dags. í október 2013.



Umsókn nr. 130288
34.
Umhverfis- og skipulagssvið, gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Kynnt drög að gjaldskrá heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. í október 2013.



Umsókn nr. 130289
35.
Umhverfis- og skipulagssvið, gjaldskrá meindýravarna
Kynnt drög að gjaldskrá meindýravarna dags. í október 2013.



Umsókn nr. 130515 (01.25.11)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
41.
Laugavegur 178 og Ármúli 6, afskráning byggingarstjóra, kæra 33/2013, umsögn, úrskurður
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 26. mars 2013 á afgreiðslu starfsmanns byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 25. mars 2013 vegna afskráningar byggingarstjóra að framkvæmdum við Laugaveg 178 og Ármúla 6. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 9. apríl 2013. Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 29. október 2013. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.