Strætó

Verknúmer : US170026

182. fundur 2017
Strætó, kvöld- og næturakstur í Reykjavík - kostnaðarmat USK17020078
Lagt fram minnisblað Strætó, dags. 20. janúar 2017, varðandi kostnaðar- og ábatamat vegna kvöld- og næturaksturs Stætó í Reykjavík. Einnig er lagt fram minnisblað Landspítala, dags. 19. janúar 2017. Jafnframt er lagðar fram tillögur samgöngustjóra um kvöldakstur annars vegar og næturakstur hins vegar, dags. 27. febrúar 2017.
Tillaga samgöngustjóra um kvöldakstur, dags. 27. febrúar 2017, samþykkt.
Tillaga samgöngustjóra um næturakstur, dags. 27. febrúar 2017, samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


177. fundur 2017
Strætó, kvöld- og næturakstur í Reykjavík - kostnaðarmat USK17020078
Kynnt minnisblað Strætó dags. 20. janúar 2017 varðandi kostnaðar- og ábatamat vegna kvöld og næturaksturs Stætó í Reykjavík. Einnig er kynnt minnisblað Landspítala dags. 19. janúar 2017.

Kynning 25. janúar 2017.
Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra.

Umhverfis- og skipulagsráðs bókar:
Umhverfis- og skipulagsráð felur samgöngudeild að undirbúa tillögu með hliðsjón af minnisblaðinu og í samráði við Strætó. Sú tillaga verði jafnframt lögð fyrir borgarráð og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að undirbúningi loknum.