Bílastæðakort íbúa í Reykjavík

Verknúmer : US150079

102. fundur 2015
Bílastæðakort íbúa í Reykjavík, endurskoðaðar reglur
Lagt fram bréf bílastæðasjóðs dags. 16. janúar 2015 vegna samþykktar bílastæðanefndar frá 9. janúar 2015 um að óska eftir umsögn umhverfis- og skipulagsráðs um endurskoðaðar reglur um bílastæðakort íbúa (íbúakort) í Reykjavík. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 23. mars 2015.
Umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 23. mars 2015 samþykkt.

99. fundur 2015
Bílastæðakort íbúa í Reykjavík, endurskoðaðar reglur
Lagt fram bréf bílastæðasjóðs dags. 16. janúar 2015 vegna samþykktar bílastæðanefndar frá 9. janúar 2015 um að óska eftir umsögn umhverfis- og skipulagsráðs um endurskoðaðar reglur um bílastæðakort íbúa (íbúakort) í Reykjavík.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.