Úlfarsfell

Verknúmer : US130327

76. fundur 2014
Úlfarsfell, Akstur
Lagt fram bréf samtaka ferðaþjónustunnar dags. 29. nóvember 2013 varðandi lokun eða takmörkun á akstri um Úlfarsfell. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 17. janúar 2014, umsögn Mosfellsbæjar dags. 14. mars 2014 og bókun hverfisráðs Grafarholts og Úlfarsárdals frá 6. maí 2014. Jafnframt er lögð fram tillaga Landmótunar dags. 25. ágúst 2014.


Þórólfur Jónsson deildarstjóri skrifstofu umhverfisgæða situr fundinn undir þessum lið.

Samþykkt.

59. fundur 2014
Úlfarsfell, Akstur
Lagt fram bréf samtaka ferðaþjónustunnar dags. 29. nóvember 2013 varðandi lokun eða takmörkun á akstri um Úlfarsfell. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. janúar 2014 og umsögn Mosfellsbæjar dags. 14. mars 2014.

Þórólfur Jónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Vísað til umsagnar hverfisráðs Grafarholts- og Úlfarsárdals