Betri Reykjavík

Verknúmer : US130300

42. fundur 2013
Betri Reykjavík, rukkum bíla hjá sundlaugum í stað sundhækkunargjalda
Lögð fram fjórða efsta hugmynd októbermánaðar úr flokknum samgöngur "rukkum bíla hjá sundlaugum í stað sundhækkunargjalda" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. október 2013 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. nóvember 2013.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 8. nóvember 2013 samþykkt.