Betri Reykjavík

Verknúmer : US130223

35. fundur 2013
Betri Reykjavík, einfaldar úti-æfingastöðvar í hvert hverfi
Lögð fram efsta hugmynd júlímánaðar úr flokknum íþróttir "einfaldar úti-æfingastöðvar í hvert hverfi" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 1. júlí 2013 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. september 2013.

Þórólfur Jónsson tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Eins og fram kemur í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs er tekið undir hugmyndina og lagt er til að tekið verði saman hvar slíkar stöðvar eru og í framhaldinu skoðað hvar eða hvort koma mætti fyrir fleiri stöðvum.

34. fundur 2013
Betri Reykjavík, einfaldar úti-æfingastöðvar í hvert hverfi
Lögð fram efsta hugmynd júlímánaðar úr flokknum íþróttir "einfaldar úti-æfingastöðvar í hvert hverfi" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 1. júlí 2013 ásamt samantekt af umræðum og rökum.

Frestað.

33. fundur 2013

Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.