Elliðaár við Breiðholtsbraut

Verknúmer : US130206

35. fundur 2013
Elliðaár við Breiðholtsbraut, göngu- og hjólabrú
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 16. ágúst 2013 ásamt frumdrögum að göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut dags í ágúst 2013. Einnig eru lagðar fram umsagnir Hollvinasamtaka Elliðaárdals dags. 9. september 2013 , Veiðimálastofnunar dags. 2. september 2013 og
umsögn ráðgjafahóps um málefni Elliðaánna dags. 25. september 2013
Umhverfis og skipulagsráð samþykkir tillögu um hengibrú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut.

29. fundur 2013
Elliðaár við Breiðholtsbraut, göngu- og hjólabrú
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 16. ágúst 2013 ásamt frumdrögum að göngu- og hjólabrú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut dags í ágúst 2013.

Umhverfis og skipulagsráð leggur til að tillaga um hengibrú yfir Elliðaár við Breiðholtsbraut verði vísað til umsagnar samráðshóps um Elliðaárdal, hollvinasamtaka Elliðaársdals og Veiðimálastofnunar. Óskað er eftir að umsagnir liggi fyrir innan tveggja vikna.