Heiðmörk

Verknúmer : US130149

26. fundur 2013
Heiðmörk, endurbætur
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. maí 2013 varðandi endurbætur á vegkaflanum frá Hringvegi að Elliðavatnsbænum samkvæmt uppdrætti dags. 16. maí 2013. Einnig lögð fram umsögn Orkuveitu Reykjavíkur dags. 19. júní 2013, umsögn heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 24. júní 2013 og umsögn Umhverfisstofnunar dags. 26. júní 2013. Jafnframt lagt fram bréf Hestamannafélagsins Fáks dags. 10. júní 2013.

Tillögunni vísað í vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Heiðmerkur þegar hún verður tekin upp.

21. fundur 2013
Heiðmörk, endurbætur
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 21. maí 2013 varðandi endurbætur á vegkaflanum frá Hringvegi að Elliðavatnsbænum samkvæmt uppdrætti dags. 16. maí 2013.
Samþykkt að vísa framlagðri tillögu til umsagnar heilbrigðisnefndar og annarra hagmunaaðila.