Ægisíða og Hofsvallagata

Verknúmer : US130080

11. fundur 2013
Ægisíða og Hofsvallagata, bréf íbúa
Lagt fram bréf íbúa dags. 25. febrúar 2013 þar sem óskað er eftir að brugðist verði við með afgerandi hætti að tryggja öryggi óvarinna vegfarenda á Ægissíðu, lækka hraða og koma i veg fyrir aukningu bílaumferðar um götuna áður en framkvæmdir við Hofsvallagötu hefjast. Einnig lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 14. mars 2013.


Bréf umhverfis- og skipulagssviðs samþykkt.

10. fundur 2013
Ægisíða og Hofsvallagata, bréf íbúa
Lagt fram bréf íbúa dags. 25. febrúar 2013 þar sem óskað er eftir að brugðist verði við með afgerandi hætti að tryggja öryggi óvarinna vegfarenda á Ægisíðu, lækka hraða og koma i veg fyrir aukningu bílaumferðar um götuna áður en framkvæmdir við Hofsvallagötu hefjast.

Stefán Finnsson sat fundinn undir þessum lið

Vísað til meðferðar umhverfis-og skipulagssviðs, samgönguskrifstofu.