Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, Sóltún 2-4, Vesturvallareitur 1.134.5, Holtsgöng, byggðasvæði nr. 5, Holtsgöng, nýs Landspítali, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Ránargata 7A, Úlfarsfell, Öskjuhlíð, Skógræktarfélag Íslands, Pósthússtræti 11, Mýrargata 26, Öskjuhlíð, Sögusafn, Betri Reykjavík, Seljavegur 2, Kjalarnes, Móavík, Aragata 15, Fluggarðar, Vættaborgir 27, Bræðraborgarstígur 3, Nauthólsvegur 50,

Skipulagsráð

256. fundur 2011

Ár 2011, miðvikudaginn 9. nóvember kl. 09:05, var haldinn 256. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Marta Guðjónsdóttir og Jórunn Ósk Frímannsd Jensen og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Ólafur Bjarnason, Magnús Ingi Erlingsson og Marta Grettisdóttir Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum:, Lilja Grétarsdóttir, Björn Axelsson, Valný Aðalsteinsdóttir, Margrét Þormar, Björn Ingi Edvardsson og Haraldur Sigurðsson Fundarritari var Harri Ormarsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10070
1.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 28. október og 4. nóvember 2011.



Umsókn nr. 110424
600300-5390 Öldungur hf
Sóltúni 2 105 Reykjavík
130865-3489 Ívar Örn Guðmundsson
Ægisíða 52 107 Reykjavík
2.
Sóltún 2-4, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram erindi Öldungar hf. dags. 13. október 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármannsreits vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Sóltún. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, breytingu á innra rými ásamt breytingu á bílastæðum og lögun byggingarreitar húshluta nr. fjögur og tengibyggingar o.fl., samkvæmt uppdrætti Nexus Arkitekta dags. 11. október 2011. Einnig er lagt fram skuggavarp 1 og 2, Nexus Arkitekta ódags.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 90325 (01.13.45)
3.
Vesturvallareitur 1.134.5, lýsing, deiliskipulag
Lögð fram drög að deiliskipulagi Vesturvallareits 1.134.5. dags. 1. nóvember 2011. Skipulagssvæðið markast af Vesturvallagötu, Sólvallagötu. Framnesvegi og Holtsgötu. Einnig er lögð fram lýsing dags. 1. apríl 2011, húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur dags. í október 2010 og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 20. apríl 2011. Jafnframt er lögð fram ábending eigenda að Framnesvegi 31b dags. 19. maí 2011 og Söndru H. Guðmundsdóttur dags. 1. júní 2011.

Samþykkt að kynna framlagða deiliskipulagstillögu fyrir hagsmunaaðilum á skipulagssvæðinu og þeim aðilum sem sendu inn athugasemdir við forkynningu.

Umsókn nr. 80500
4.
Holtsgöng, byggðasvæði nr. 5, lýsing, breyting á svæðisskipulagi
Lögð fram drög að tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins 2001-2024 vegna byggðasvæðis 5, dagsett 7. nóvember 2011. Einnig lögð fram greinargerð, dags. s.d.

Samþykkt að kynna sbr. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
Vísað til svæðisskipulagsnefndar.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins og óskuðu bókað:
" Í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir tvennum göngum, Öskjuhlíðargöngum og Holtsgöngum sem tengjast Kópavogsgöngum og er þessum þremur göngum sameiginlega ætlað að anna þeirri umferð sem kemur af suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og stefnir niður í miðborg Reykjavíkur. Engin þessara gangna eru á samgönguáætlun en eru inni í skipulagsáætlunum sveitarfélaganna með tilliti til byggðarþróunar og framtíðarlausna fyrir samgöngur. Bæjarstjórn Kópavogs ályktaði fyrr í þessum mánuði um mikilvægi þess að hefja undirbúning að gerð Kópavogsgangna og enn er gert ráð fyrir göngum undir Öskjuhlíð.
Mikil uppbygging er fyrirhuguð á hafnarsvæði og víðar í vestur- og miðbænum sem mun kalla á aukna umferð. Ætla má að um 1.500 íbúðir muni rísa á þessu svæði á komandi árum og tugir þúsunda fermetra af atvinnuhúsnæði.
Augljós hætta fylgir því að umferð á leið niður í miðborg kvíslist um íbúa- og skólahverfi verði ekki hugsað fyrir greiðari leiðum en nú eru í boði. Auk þess hefur umferð um íbúagötur neikvæð áhrif á umhverfisgæði fyrir íbúa og hjólandi og gangandi umferð.
Ekki eru sjáanlegar leiðir fyrir þá auknu umferð sem á leið niður í miðborg samfara þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er. Þar á ofan eru hugmyndir uppi um að þrengja götur eins og Lækjargötu og Snorrabraut.
Aðalskipulag Reykjavíkur er í vinnslu og mun verða kynnt borgarbúum innan skamms. Öllum tillögum að breytingum á því hefur verið vísað inn í heildarendurskoðun skipulagsins með tilliti til þess að halda heildarsýn. Furðu sætir að þetta mál skuli tekið út fyrir rammann og afgreitt sérstaklega".

Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar óskuðu bókað: " Umferðarspá sýnir glögglega að ekki verður þörf á þessum göngum þegar Reykjavíkursvæðið verður "fullbyggt" jafnvel miðað við óbreyttar ferðavenjur.
Einnig er það greinilegt að núverandi gatnakerfi tekur vel við aukinni umferð sem mun fylgja fyrirséðri uppbyggingu á miðborgarsvæðinu".


Umsókn nr. 80245
5.
Holtsgöng, nýs Landspítali, breyting á aðalskipulagi
Lögð fram drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 vegna Holtsganga nýr Landspítala dagsett 7. nóvember 2011. Einnig lögð fram greinargerð, dags. s.d.
Samþykkt að forkynna framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi með vísan til 2. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 á vef skipulags- og byggingarsviðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins og óskuðu bókað:
" Í gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur er gert ráð fyrir tvennum göngum, Öskjuhlíðargöngum og Holtsgöngum sem tengjast Kópavogsgöngum og er þessum þremur göngum sameiginlega ætlað að anna þeirri umferð sem kemur af suðurhluta höfuðborgarsvæðisins og stefnir niður í miðborg Reykjavíkur. Engin þessara gangna eru á samgönguáætlun en eru inni í skipulagsáætlunum sveitarfélaganna með tilliti til byggðarþróunar og framtíðarlausna fyrir samgöngur. Bæjarstjórn Kópavogs ályktaði fyrr í þessum mánuði um mikilvægi þess að hefja undirbúning að gerð Kópavogsgangna og enn er gert ráð fyrir göngum undir Öskjuhlíð.
Mikil uppbygging er fyrirhuguð á hafnarsvæði og víðar í vestur- og miðbænum sem mun kalla á aukna umferð. Ætla má að um 1.500 íbúðir muni rísa á þessu svæði á komandi árum og tugir þúsunda fermetra af atvinnuhúsnæði.
Augljós hætta fylgir því að umferð á leið niður í miðborg kvíslist um íbúa- og skólahverfi verði ekki hugsað fyrir greiðari leiðum en nú eru í boði. Auk þess hefur umferð um íbúagötur neikvæð áhrif á umhverfisgæði fyrir íbúa og hjólandi og gangandi umferð.
Ekki eru sjáanlegar leiðir fyrir þá auknu umferð sem á leið niður í miðborg samfara þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er. Þar á ofan eru hugmyndir uppi um að þrengja götur eins og Lækjargötu og Snorrabraut.
Aðalskipulag Reykjavíkur er í vinnslu og mun verða kynnt borgarbúum innan skamms. Öllum tillögum að breytingum á því hefur verið vísað inn í heildarendurskoðun skipulagsins með tilliti til þess að halda heildarsýn. Furðu sætir að þetta mál skuli tekið út fyrir rammann og afgreitt sérstaklega".

Fulltrúar Besta flokksins og Samfylkingarinnar óskuðu bókað: " Umferðarspá sýnir glögglega að ekki verður þörf á þessum göngum þegar Reykjavíkursvæðið verður "fullbyggt" jafnvel miðað við óbreyttar ferðavenjur.
Einnig er það greinilegt að núverandi gatnakerfi tekur vel við aukinni umferð sem mun fylgja fyrirséðri uppbyggingu á miðborgarsvæðinu".


Umsókn nr. 43689
6.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 658 frá 1. nóvember 2011 og nr. 659 frá 8. nóvember 2011.



Umsókn nr. 43282 (01.13.620.6)
210953-2649 Guðmundur Ingólfsson
Ránargata 7a 101 Reykjavík
7.
Ránargata 7A, byggja svalir
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 2. hæð og á 3. hæð sem snúa í suður að baklóð fjölbýlishússins á lóð nr. 7A við Ránargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 29. september til og með 27. október 2011. Athugasemd barst frá Vilhjálmi S. Símonarsyni dags. 27. október 2011. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 1. nóvember 2011.

Ráðið gerir ekki athugasemd við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 110445 (02.6)
470905-1740 Fjarskipti ehf
Skútuvogi 2 104 Reykjavík
8.
Úlfarsfell, (fsp) uppsetning á fjarskiptabúnaði
Lögð fram fyrirspurn Fjarskipta ehf. dags. 27. október 2011 varðandi leyfi fyrir bráðabirgðauppsetningu fjarskiptamasturs á Úlfarsfelli, samkvæmt fylgigögnum. Einnig er lögð fram greinargerð Fjarskipta ehf. og Ríkisútvarpsins ohf., dags. 26. október 2011.

Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirspurn Fjarskipta ehf., enda verði sótt um byggingarleyfi vegna masturs og tækjaskýlis. Sækja þarf um framkvæmdarleyfi fyrir lagningu rafmagns og ljósleiðara í jörð auk framkvæmda við vegabætur. Skipulagsráð leggur áherslu á að framkvæmdirnar valdi sem minnstum spjöllum á svæðinu enda er Úlfarsfellið vinsælt til útivistar. Skipulagsráð telur ennfremur mikilvægt að hönnun og frágangur á tækjaskýli verði til fyrirmyndar.

Umsókn nr. 110302 (01.76.0)
600269-3809 Skógræktarfélag Íslands
Skúlatúni 6 105 Reykjavík
9.
Öskjuhlíð, Skógræktarfélag Íslands, (fsp) lóðarumsókn
Lögð fram fyrirspurn Skógræktarfélags Íslands, dags. 4. júlí 2011 um lóð fyrir höfuðstöðvar félagsins í Öskjuhlíð ásamt frumdrögum Batterísins að skipulagi, dags. júní 2011. Einnig lögð fram bréf Skógræktarfélagsins til borgarstjóra dags. 31. október 2008 og 27. september 2010 og greinargerð mótt. 14. júlí 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagssjtóra dags. 24. október 2011.

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 24. október 2011.

Umsókn nr. 110407 (01.14.05)
620698-2889 Hótel Borg ehf
Borgartúni 26 105 Reykjavík
440703-2590 THG Arkitektar ehf
Faxafeni 9 108 Reykjavík
10.
Pósthússtræti 11, (fsp) stækkun
Lögð fram fyrirspurn Hótel Borgar dags. 4. október 2011 varðandi aukningu á byggingarmagni lóðarinnar nr. 11 við Pósthússtræti, samkvæmt tillögu THG Arkitekta dags. 12. október 2011.
Frestað.

Umsókn nr. 110425 (01.11.53)
610711-1030 Gláma/Kím ehf
Laugavegi 164 105 Reykjavík
591098-2259 Atafl ehf
Lyngási 11 210 Garðabær
11.
Mýrargata 26, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Lögð fram fyrirspurn Glámu/kím f.h. Atafls dags. 14. október 2011 varðandi fjölgun íbúða og minnkun, breytingu á umfangi byggingarinnar á lóðinni nr. 26 við Mýrargötu og fleira., samkvæmt teikningum Glámu/Kím. Einnig er lagt fram bréf Atafls dags. 13. október 2011.

Jórunn Frímannsdóttir vék af fundi kl. 12:48

Frestað.

Umsókn nr. 110378 (01.76)
160951-3979 Ernst Jóhannes Backman
Lindarflöt 36 210 Garðabær
12.
Öskjuhlíð, Sögusafn, bréf
Lagt fram bréf Menningar- og ferðamálasviðs dags. 13. september 2011 ásamt erindi Ernst Backman dags. 1. september 2011 um hugmyndir um að reisa Sögusafn Í Öskjuhlíðinni. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 24. október 2011.
Umsögn skipulagsstjóra samþykkt.

Umsókn nr. 110450
13.
Betri Reykjavík, Meira skjól í borgina - gróðursetja tré á skipulagðan hátt
Betri Reykjavík
Meira skjól í borgina - gróðursetja tré á skipulagðan hátt - 22
Fjöldi með hugmynd: 197 Fjöldi á móti hugmynd: 6

Rök með hugmynd:
1. Aðskiljum fótgangandi og hjólreiðafólk frá bílaumferð
Davíð Geirsson, changes Davíð Geirsson 9 dagar síðan. Ræðaeða Breyta
Mér þætti gaman að sjá tré aðskilja gangstéttir og hjólastíga frá umferðargötum, líka inni í íbúðahverfum. Þetta dregur úr mengun og gefur skemmtilegri borgarmynd. Það er erfitt að breyta mörgum núverandi stígum, en það væri vel hægt að setja það markmið að hanna nýja stíga eftir þessari uppröðun, og reyna síðan að koma slíkum breytingum við þar sem það er hægt.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.

2. Kominn er tími til að hugsað sé fyrir skjólmyndun í hverfum!
Ýmsar leiðir eru til að mynda gott skjól með skynsamlegri uppstillingu á götum, húsum, trjágróðri o.s.frv. Við Íslendingar eigum sérfræðinga í þessum málum en nýtum þá engan vegin innan borgarkerfisins! Oft þarf ekki mikið að gera til að gerbylta svæði sem sífellt rok er á - yfir í skjólgott og heitt svæði með allt önnur einkenni. Af hverju ekki að slá tvær flugur í einu höggi, grjóðursetja tré á skynsaman hátt víðsvegar um borgina - mynda þannig skjól og um leið fegra umhverfið til muna.
6 aðilum fannst þetta gagnlegt.
Hjálpar þetta? JÁ eða NEI
Nýjustu rök með(engin ný rök)|Öll rök með Já

Rök á móti hugmynd:
1. Tré mega ekki útoloka útsýni til hafs og fjalla
Illa staðsett tré eru verri en engin tré. Í mörgum tilfellum fer betur að nota runna heldur en tré sem verða risavaxin, t.d. til að aðskilja hjólreiðarstíga frá umferðargötum og til að punta upp á bílastæði og torg.
5 aðilum fannst þetta gagnlegt.

Umræður notenda:
Friðrik eyddi 5s í auglýsingu fyrir þessa hugmynd u.þ.b. 22 klukkustundir síðan 1 Athugasemd
Friðrik - u.þ.b. 22 klukkustundir síðan
Það þarf ekki mikið til-en það þarf að byrja!
Friðrik eyddi 1s í auglýsingu fyrir þessa hugmynd 6 dagar síðan 1 Athugasemd
Friðrik - 6 dagar síðan
Það þarf ekki mikið til-en það þarf að byrja!



Frestað

Umsókn nr. 110376 (01.13.32)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
27.
Seljavegur 2, kæra, umsögn
Lögð fram kæra til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála vegna byggingarleyfis fyrir breytingum að Seljavegi 2 í Reykjavík. Í kærunni er gerð krafa um stöðvun framkvæmda. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 16. september 2011. Ennfremur lögð fram umsögn Landslaga ehf. f.h. Hjá OSS ehf. til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 19. október 2011.

Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

Umsókn nr. 110430
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
28.
Kjalarnes, Móavík, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála, dags. 27. september 2011 ásamt kæru, dags. 12. september 2011 þar sem kærð er synjun skipulagsráðs þ. 27. ágúst 2011 á beiðni um skiptingu á landi Móavíkur á Kjalarnesi. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 18. október 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

Umsókn nr. 110329
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
29.
Aragata 15, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 9. ágúst 2011 ásamt kæru dags. 21. júlí 2011 þar sem kærð er synjun á umsókn um leyfi fyrir byggingu bílskúrs á lóð nr. 15 við Aragötu ásamt umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 6. september 2011. Einnig lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 7. október 2011. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 19. júlí 2011 um að synja umsókn um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr með sléttu þaki á lóð nr. 15 við Aragötu í Reykjavík



Umsókn nr. 110363 (01.6)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
30.
Fluggarðar, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 31. ágúst 2011 ásamt kæru 64/2011 dags. 23. ágúst 2011 þar sem kærð er ákvörðun um stærð og afmörkun lóða í Fluggörðum á Reykjavíkurflugvelli. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 6. október 2011. Ennfremur úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 19. október 2011. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.



Umsókn nr. 110002 (02.34.35)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
31.
Vættaborgir 27, kæra, umsögn, úrskurður
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og buggingarmála dags. 29. desember 2010 ásamt kæru dags. 28. desember 2010 þar sem kærð er synjun umsóknar um byggingarleyfi fyrir breytingu á fasteigninni að Vættaborgum 27 í Reykjavík. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 8. febrúar 2011. Ennfremur úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 19. október 2011. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda synjun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 28. september 2010 á umsókn um að setja glugga og dyr á vesturhlið kjallara hússins að Vættaborgum 27 og innrétta þar fyrir innan kalda geymslu í óuppfylltu rými.




Umsókn nr. 100161
32.
Bræðraborgarstígur 3, kæra, umsögn, úrskurður
Lögð fram kæra til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála 7. apríl 2010 þar sem kærð er ákvörðun um veitingu byggingarleyfis fyrir breyttri notkun hússins að Bræðraborgarstíg 3. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu, dags. 8. nóvember 2010. Ennfremur úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 19. október 2011. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 9. mars 2010 um að veita leyfi til að breyta 1. hæð og kjallara hússins nr. 3 við Bræðraborgarstíg í Reykjavík í gistiheimili.



Umsókn nr. 110399
461202-3490 Icelandair ehf
Reykjavíkurflugvelli 101 Reykjavík
710178-0119 Teiknistofan Arkitektar ehf
Brautarholti 6 105 Reykjavík
33.
Nauthólsvegur 50, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 20. október 2011 vegna samþykkt borgarráðs um auglýsingu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 50 við Nauthólsveg.