Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, Kjalarnes, Brautarholt 1, Háskóli Íslands, Borgartúnsreitur vestur, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Sjafnargata 11, Tryggvagata 22, Viðey 204, Vesturgata 27, Hallgrímstorg 3 / Hnitbjörg, Vesturberg 78, Gufunes, Áburðarverksmiðjan, Húsverndarsjóður Reykjavíkur, Skaftahlíð 24, Fellsmúli 28, Hátún 39, Flugvöllur 106748 - gamli flugturninn, Skipulagsráð, Ingólfstorg, Háskóli Íslands, Vísindagarðar, Hólmsheiði, jarðvegsfylling,

Skipulagsráð

236. fundur 2011

Ár 2011, miðvikudaginn 23. mars kl. 09:15, var haldinn 236. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Hjálmar Sveinsson, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og áheyrnarfulltrúinn Torfi Hjartarson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Bjarnason og Marta Grettisdóttir Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar og Lilja Grétarsdóttir. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10070
1.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð
Lagðar fram fundargerðir afgreiðslufunda skipulagsstjóra Reykjavíkur dags. 11. og 17. mars 2011.





Umsókn nr. 100307
250572-3959 Bjarni Pálsson
Brautarholt 1 116 Reykjavík
2.
Kjalarnes, Brautarholt 1, lýsing
Lögð fram lýsing Einars Ingimarssonar fh. lóðarhafa dags 9. febrúar 2011 vegna deiliskipulags golfvallar við Brautarholt á Kjalarnesi. Í lýsingunni koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, fyrirliggjandi stefnu og fyrirhugað skipulagsferli.

Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Fornleifaverndar ríkisins

Lýsingin verður aðgengileg á vef skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 80717 (01.6)
600169-2039 Háskóli Íslands
Sæmundargötu 2 101 Reykjavík
3.
Háskóli Íslands, deiliskipulag vestan Suðurgötu, Árnastofnun
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju erindi Háskóla Íslands dags. 25. nóvember 2008 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands vestan Suðurgötu. Í breytingunni felst að á reit A3 verður byggingarmagn aukið, nýtingarhlutfall á lóð hækkað og hámarkshæð byggingar aukin auk þess sem gert er ráð fyrir þakgarði á húsinu samkvæmt uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 15. nóvember 2008. Tillagan var áður auglýst frá 19. desember 2008 til og með 5. febrúar 2009. Athugasemd barst frá: Kristínu Björgu Helgadóttur dags. 5. febrúar 2009 f.h. húsfélagsins að Birkimel 8, 8A og 8B. Einnig eru lögð fram bréf fulltrúa Háskóla Íslands, Félagsstofnun stúdenta og Þjóðminjasafns Íslands dags. 17. febrúar 2009, bréf Teiknistofu Gylfa Guðjónssonar og félaga dags. 2. febrúar 2009, umsögn skipulagsstjóra dags. 27. febrúar 2009, umsögn umhverfis- og samgöngusviðs dags. 26. febrúar 2009 ásamt bréfi Háskóla Íslands dags. 10. mars 2009 með drögum af samgöngustefnu HÍ. Tillagan var endurauglýst frá 29. desember 2011 til og með 9. febrúar 2011. Engar nýjar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra um eldri athugasemdir dags. 4. mars 2011.

Jórunn Frímannsdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:30 þá var einnig búið að fjalla um mál nr. 7 í fundargerðinni

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 90424 (01.21.6)
4.
Borgartúnsreitur vestur, deiliskipulag staðgreinireitur 1.216
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Vinnustofunnar Þverá að deiliskipulagi Borgartúnsreits vestur samkvæmt uppdrætti dags. 30. nóvember 2010 breytt 13. desember 2010. Í tillögunni felst að byggingarmagn er aukið á reitnum, einkum meðfram Guðrúnartúni/ Sætúni, þar sem gert verður ráð fyrir blandaðri byggð. Gert er ráð fyrir bílageymslum neðanjarðar og fækkun bílastæða ofanjarðar. Innan reitsins verður opinn garður. Tillagan var auglýst frá 29. desember 2010 til og með 9. febrúar 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Þórdís L. Guðmundsdóttir f.h. hverfisráðs Laugardals dags. 24. janúar 2011, Stólpar dags. 8. febrúar 2011, THG arkitektar f.h. Húsfélagsins Sætúni 1 dags. 8. febrúar 2011 og Vegagerðin dags. 25. febrúar 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 22. mars 2011.

Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 42737
5.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 627 frá 15. mars og 628 frá 22. mars 2011.



Umsókn nr. 42400 (01.19.600.8)
111145-2459 Edda Þórarinsdóttir
Birkihlíð 13 105 Reykjavík
6.
Sjafnargata 11, viðbygging og endurbætur
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við úr steinsteypu nýja innganga til austurs og vesturs, byggja flatt þak yfir svalir, lækka gólf í hluta kjallara og fjarlægja klæðningu utan af húsinu og múra með múrkerfi í ljósum lit, sbr. fyrirspurn BN042289, einbýlishúsið á lóð nr. 11 við Sjafnargötu. Lagt fram bréf Þórdísar Arnljótsdóttur dags. 17. febrúar 2011 þar sem óskað er eftir framlengingu á fresti vegna grenndarkynningar. Erindið var grenndarkynnt frá 20. janúar 2011 til og með 1. mars 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Þórdís Arnljótsdóttir dags. 23. febrúar 2011. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 3.mars 2011. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 2. nóvember 2010, umsögn skipulagsstjóra dags. 18. nóvember 2010 ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra dags. 19. nóvember 2010.Stækkun 68 ferm., xx rúmm.Gjald kr. 7.700 + xx

Ráðið gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við athugasemdir á umsóknareyðublaði, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 42299 (01.14.000.4)
7.
Tryggvagata 22, breyta innréttingu og gera verönd
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30.nóvember 2010 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innréttingu 1. hæðar á þann veg aðallega að draga framhlið inn og skapa þar 27 ferm. verönd fyrir útiveitingar og taka glugga og hurðir úr framhlið. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 22. febrúar 2011.Gjald kr. 7.700

Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 42731 (02.04.---.-)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
8.
">Viðey 204, neyðarstigi og brunahólf
Sótt er um leyfi til að setja upp neyðarstiga í norðausturhorni og tryggja brunahólf með endurbótum á hurðum í Viðeyjarstofu í Viðey.
Grunnmyndir, sem sýna breytingarnar eru í 1:50 og meðfylgjandi eru vinnuteikningar, bréf arkitekts dags. 8. mars 2011, bréf Húsafriðunarnefndar dags. 17. maí 2010, bréf Minjasafns Reykjavíkur dags. 7. mars 2011, greinargerð arkitekts vegna flóttaleiða dags. apríl 2010 og minnisblað vegna eldvarna dags. 15. desember 2010. Gjald kr. 8.000

Kynnt.

Umsókn nr. 42440 (01.13.600.1)
080167-4159 Sigríður H Guðmundsdóttir
Vesturgata 27 101 Reykjavík
9.
Vesturgata 27, opið skýli úr timbri
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. desember 2010 þar sem sótt er um leyfi til að byggja opið skýli úr timbri austan við einbýlishúsið á lóð nr. 27 við Vesturgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 12. janúar 2011 til og með 9. febrúar 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Eyjólfur Baldursson og Baldur E. Jensson dags. 11. febrúar 2011. Einnig lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 16. mars 2011.

Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi með vísan til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Umsókn nr. 100409
440269-7969 Listasafn Einars Jónssonar
Pósthólf 1051 121 Reykjavík
10.
Hallgrímstorg 3 / Hnitbjörg, (fsp) viðbygging
Á fundi skipulagsstjóra 21. janúar 2011 var lögð fram fyrirspurn Listasafns Einars Jónssonar dags. 18. nóvember 2010 varðandi leyfi til að byggja viðbyggingu við húsið nr. 3 við Hallgrímstorg Hnitbjörg samkvæmt tillögu Studio Granda dags. í september 2010. Einnig er lagt fram bréf Borgarminjavarðar dags. 4. nóvember 2010, bréf Húsafriðunarnefndar dags. 12. nóvember 2010 og tölvubréf Júlíönu Gottskálksdóttur dags. 20. janúar 2011. Á fundi skipulagsráðs þann 23. febrúar 2011 var umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt og erindi frestað. Lagt fram að nýju ásamt bréfi Skipulagsstofnunar dags. 28. febrúar 2011.

Neikvætt með vísan til umsagnar lögfræði og stjórnsýslu. Erindinu er vísað til skoðunar hjá embætti skipulagsstjóra til ákvörðunar um vinnslu deiliskipulags á svæðinu.

Umsókn nr. 110106
700896-2429 Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf
Akralind 6 201 Kópavogur
11.
Vesturberg 78, málskot
Lagt fram málskot Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf. dags. 3. mars 2011 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsstjóra frá 19. nóvember 2010 varðandi fjölgun bílastæða á lóðinni nr. 78 við Vesturberg.

Fyrri afgreiðsla skipulagsstjóra frá 19. nóvember 2010 staðfest.

Umsókn nr. 110096 (02.22)
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík
12.
Gufunes, Áburðarverksmiðjan, afmörkun lóðar
Lagt fram erindi Orkuveitu Reykjavíkur dags. 25. febrúar 2011 varðandi afmörkun lóðar fyrir dreifistöð við Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi, samkvæmt teikningu dags. 6. janúar 2011. Einnig lögð fram mynd af dreifistöðinni.

Tillaga að lóðarafmörkun samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð

Umsókn nr. 110016
13.
Húsverndarsjóður Reykjavíkur, Úthlutun styrkja 2011
Lögð fram tillaga að úthlutun styrkja úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur fyrir árið 2011.

Framlögð tillaga samþykkt.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 110039 (01.27.42)
14.
Skaftahlíð 24, bréf hverfisráðs Hlíða
Lagt fram bréf Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða dags. 28. janúar 2011 vegna bókunar hverfisráðs Hlíða frá 17. janúar 2011 þar sem óskað er eftir rökstuðningi Skipulags- og byggingasviðs fyrir heimild til viðbyggingar við hús nr. 24 við Skaftahlíð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 4. mars 2011.

Umsögn skipulagsstjóra samþykkt.

Umsókn nr. 42735 (00.00.000.0)
15.
Fellsmúli 28, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 8. mars 2011 vegna óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 28 við Fellsmúla.
Stöðvun byggingarfulltrúa staðfest.


Umsókn nr. 42736 (01.23.511.8)
16.
Hátún 39, bréf byggingarfulltrúa
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 8. mars 2011 vegna óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 39 við Hátún.
Stöðvun byggingarfulltrúa staðfest.

Umsókn nr. 42751 (01.66.--9.9)
17.
Flugvöllur 106748 - gamli flugturninn,
Lagt fram afrit af bréfi Húsafriðunarnefndar dags. 7. mars 2011 til Isavia ohf, þar sem lýst er samþykkt Húsafriðunarnefndar á tillögu um friðun á gamla flugturninum á Reykjavíkurflugvelli.



Umsókn nr. 110112
18.
Skipulagsráð, tillaga vegna sorphirðu
Lögð fram eftirfarandi tillaga skipulagsráð dags. 9. mars 2011.
" Um þessar mundir eru að berast bréf til borgarbúa vegna breytinga ásorphirðu og álagningu nýs sorphirðugjalds en það leggst á þar sem sorpílát eru í meira en 15 metra fjarlægð frá sorphirðubíl. Í bréfinu er viðtakendum bent á að færa sorpílát nær götu á losunardegi eða færa
sorpgerðið/-geymsluna varanlega nær götu. Að öðrum kosti verði lagt á sorphirðugjald.Mál þetta var ekki verið lagt fyrir skipulagsráð til umsagnar sem þó hefði verið eðlileg málsmeðferð.
Samþykktar byggingarnefndarteikningar og lóðaruppdrættir kveða jafnan á um endanlega staðsetningu og gerð sorpgerða og sorpgeymsla í samræmi við byggingarreglugerð og/eða deiliskipulag enda getur staðsetning sorpíláta verið ákveðin í deiliskipulagi.
Þar sem Reykjavíkurborg hefur með áðurnefndu bréfi opnað á flutning og nýja staðsetningu sorpgerða/-geymsla án fyrirvara eða frekari leiðbeininga er óskað eftir minnisblaði skipulagsstjóra og byggingarfulltrúa um þann feril sem slíkar aðgerðir geta kallað á með tilliti til gildandi deiliskipulagsáætlana og samþykktra byggingarnefndarteikninga."
Einnig er lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 14. mars 2011.



Minnisblað skipulags- og byggingarsviðs samþykkt.

Umsókn nr. 110110 (01.14.0)
19.
Ingólfstorg, hönnunarsamkeppni 2011
Lagt fram bréf borgarráðs dags. 17. febrúar 2011 varðandi kostnað vegna hönnunarsamkeppni um Ingólfstorg.
Fh. skipulagsráðs Reykjavíkur voru Hjálmar Sveinsson, Júlíus Vífill Ingvarsson og Kristín Þorleifsdóttir skipuð í dómnefnd vegna hönnunarsamkeppni Ingólfstorgs.



Umsókn nr. 100444 (01.63)
20.
Háskóli Íslands, Vísindagarðar, Aðalskipulag Reykjavíkur
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 10. mars 2011 um samþykkt borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur vegna Vísindagarða á lóð H.Í.


Umsókn nr. 100187 (05.8)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
21.
Hólmsheiði, jarðvegsfylling, kærur, umsögn, úrskurður
Lagðar fram kærur 26/2010, 27/2010 og 30/2010 til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála þar sem kært er deiliskipulag vegna afmörkunar svæðis til jarðvegsfyllingar á Hólmsheiði sem samþykkt var í borgarráði 25. mars 2010. Einnig lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 16. mars 2011. Úrskurðarorð: kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.