Afgreiðslufundir Skipulagsstjóra, Baldursgötureitur 1, Elliðabraut 4-6, 8-10 og 12, Jafnasel 6 - 10, Kárastígsreitur austur, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Urðarbrunnur 42, Úlfarsbraut 30-32, Kjalarnes, Hof, Baldursgata 32, Miðborgarvakt skipulagsráðs, Borgarvernd, húsvernd, Fríkirkjuvegur 11, Kjalarnes, Grundarhverfi, Reykjavíkurflugvöllur, lóðarumsókn fyrir flugskýli, Reynisvatnsvegur, Gamla höfnin, Skólavörðustígur 42, Ægisgata 10, Úlfarsárdalur, Spilasalir og rekstur spilakassa, Suðurlandsvegur, Hólmsheiði við Suðurlandsveg - athafnasvæði A3, Árbæjarsundlaug,

Skipulagsráð

137. fundur 2008

Ár 2008, miðvikudaginn 4. júní kl. 09:00, var haldinn 137. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 3, 4. hæð. Viðstaddir voru: Hanna Birna Kristjánsdóttir, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, Kristján Guðmundsson, Stefán Benediktsson, Björk Vilhelmsdóttir og áheyrnarfulltrúinn Brynjar Fransson. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson, Ágúst Jónsson, Marta Grettisdóttir og Elín Ósk Helgadóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Jóhannes Kjarval og Margrét Þormar. Fundarritari var Helga Björk Laxdal.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 80388
1.
Afgreiðslufundir Skipulagsstjóra,
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur 30. maí 2008.


Umsókn nr. 70031 (01.18.63)
660298-2319 Teiknistofan Tröð ehf
Hávallagötu 21 101 Reykjavík
2.
Baldursgötureitur 1, deiliskipulag, reitur 1.186.3
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram tillaga teiknistofunnar Traðar dags. 29. nóvember 2007, að deiliskipulagi Baldursgötureits ásamt skuggavarpi, forsögn og samantekt skipulagsfulltrúa, dags. 8. mars 2007 og húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur nr. 138, dags. 2008. Reiturinn afmarkast af Freyjugötu, Baldursgötu, Þórsgötu og Njarðargötu. Hagsmunaaðilakynning stóð yfir frá 28. des. 2007 til 11. janúar 2008 og var framlengd til 28. janúar 2008. Athugasemdir bárust frá eftirtöldum aðilum: Björg Finnsdóttir Þórsgötu 20, dags. 7. jan., Áshildur Haraldsdóttir, dags. 7. jan., Helga Þorsteinsdóttir Freyjugata 17b, dags. 3. jan., Guðríður Jóhannesdóttir Þórsgötu 16, dags. 7. jan., Lára V. Júlíusdóttir Freyjugötu 17a, dags. 5. jan., Katla Sigurgeirsdóttir Þórsgötu 22a, dags. 9. jan., 10 íbúar að Þórsgötu 19, dags. 6. janúar 2008, Steinunn Jóhannesdóttir og Einar K. Haraldsson Þórsgötu 18, dags. 11. janúar, Kári Sölmundarson og Auður Þórsdóttir Þórsgötu 18a, dags. 10. janúar, Anna Pálsdóttir Lokastíg 24, dags. 11. janúar, Bergljót Haraldsdóttir og Sigtryggur Magnússon Lokastíg 5, dags. 11. janúar, Kristín B. Óladóttir Þórsgötu 16a, dags. 11. janúar, ályktun frá fundi 10 íbúa á reitnum, mótt. 11. janúar, Borgarlögmenn f.h. eiganda Freyjugötu 17a, dags. 12. janúar 2008.

Sóley Tómasdóttir tók sæti á fundinum kl. 9:12. Gísli Marteinn Baldursson tók sæti á fundinum kl. 9:14
Athugasemdir kynntar.
Frestað.


Umsókn nr. 80281 (04.77.23)
471205-0280 Strengur Byggingar ehf
Lágmúla 6 108 Reykjavík
581298-3589 Kristinn Ragnarsson,arkit ehf
Suðurlandsbraut 4A 108 Reykjavík
3.
Elliðabraut 4-6, 8-10 og 12, breytt deiliskipulag vegna Elliðabraut 12
Á fundi skipulagsstjóra 25. apríl 2008 var lögð fram umsókn og tillaga KRark ehf. dags. 22. apríl 2008 f.h. Strengur byggingar ehf. varðandi breytt deiliskipulag á lóðunum nr. 4-6, 8-10 og 12 við Elliðabraut. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til suðurs og bílageymslu undir neðstu hæð. Erindinu var vísað til umsagnar í austurteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 9. maí 2008. og nýrri tillögu dags. 14. maí 2008.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 80380 (04.99.31)
701277-0239 Brimborg ehf
Bíldshöfða 6 110 Reykjavík
020141-3449 Jón Róbert Karlsson
Hagasel 7 109 Reykjavík
4.
Jafnasel 6 - 10, Breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Arko fyrir hönd Brimborgar móttekin 27. maí 2008 um breytingu á deiliskipulagi á lóð 6-10 við Jafnasel skv uppdrætti.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 70351 (01.18.23)
5.
Kárastígsreitur austur, Reitur 1.182.3, deiliskipulag
Lögð fram tillaga ARKHD dags. 2. júní 2008 að deiliskipulagi reits 1.182.3 sem afmarkast af Skólavörðustíg, Frakkastíg og Kárastíg ásamt húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur nr. 137 og umsögn húsafriðunarnefndar, dags. 29. febrúar 2008.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 38420
6.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 491 frá 3. júní 2008.


Umsókn nr. 38247 (05.05.460.7)
071271-3159 Bjarni Sigurðsson
Katrínarlind 1 113 Reykjavík
140372-3239 Sigurlaug Gissurardóttir
Katrínarlind 1 113 Reykjavík
7.
Urðarbrunnur 42, nýbygging
Sótt er um leyfi til að byggja staðsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu, klætt báruðum álplötum og steinflísum á lóðinni nr. 42 við Urðarbrunn.
Stærð: 1. hæð íbúð 138,3 ferm., 2. hæð íbúð 87,2 ferm., bílgeymsla 43,2 ferm.
Samtals 268,7 ferm., 966 rúmm.
Gjald kr. 7.300 + 70.518
Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við athugasemdir.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 38332 (02.69.840.6)
080757-3449 Gunnar Gunnarsson
Jónsgeisli 15 113 Reykjavík
8.
Úlfarsbraut 30-32, breyting-stækkun kjallara
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. maí 2008 þar sem sótt er um leyfi til að breyta miðað við nýlega samþykkt erindi BN35471 þannig að í kjallara þar sem áður var óuppfyllt rými er er orðrið að notarými að hluta með gluggabreytingu á vesturhlið og gluggalaus geymslurými að hluta á parhúsalóðinni nr. 30-32 við Úlfarsbraut.
Stærðir: Gluggalaust geymslurými xxx ferm. xxx rúmm.
notarými xxx ferm. xx rúmm.
Gjald kr. 7.300 + xxx

Ráðið gerir ekki athugasemdir við að veitt verði byggingarleyfi þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við athugasemdir.
Vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 80178
701294-8909 Skipulags/arkitekt/verkfrst ehf
Garðastræti 17 101 Reykjavík
9.
Kjalarnes, Hof, (fsp) uppbygging, deiliskipulag
Á fundi skipulagsráðs 9. apríl 2008 var lagt fram bréf Gests Ólafssonar f.h. skipulags- arkitekta og verkfræðistofunnar ehf., dags. 3. apríl 2008 ásamt skissum mótt. 3. apríl 2008 um uppbyggingu í landi Hofs á Kjalarnesi. Erindinu var vísað til skoðunar í vinnu við endurskoðun Aðalskipulags Reykjavíkur 2001-2024.
Erindinu er vísað til skoðunar í stýrihóp um endurskoðun skipulags á Kjalanesi.

Umsókn nr. 80336 (01.18.63)
480399-2349 G.Gunnarsson ehf
Lágmúli 7 108 Reykjavík
710178-0119 Teiknistofan ehf
Brautarholti 6 105 Reykjavík
10.
Baldursgata 32, (fsp) uppbygging á lóð
Á fundi skipulagsstjóra 23. maí 2008 var lögð fram fyrirspurn T.ark, dags. 15. maí 2008, um mögulega uppbyggingu á lóðinni nr. 32 við Baldursgötu. Einnig lagt fram skuggavarp dags. 21 ágúst 2006 síðast breytt 18. maí 2008.
Erindinu var vísað til umsagnar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt drögum að umsögn skipulagsstjóra dags. 29. maí 2008.
Vísað til meðferðar í vinnslu deiliskipulagstillögu Baldursgötureits 1.

Umsókn nr. 80387
11.
7">Miðborgarvakt skipulagsráðs,
Hljómalindarreitur kynning.

Laugavegur 4-6 kynning.

Gísli Marteinn Baldursson vék af fundi kl. 11:15. Sóley Tómasdóttir vék af fundi kl. 11:17. Þá var búið að afgreiða alla liði fundargerðarinnar nema lið nr. 11.


Umsókn nr. 70387
12.
Borgarvernd, húsvernd, stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum
Lögð fram 8. drög að skýrslu vinnuhóps um stefnumótun í borgar- og húsverndarmálum dags. 2. maí 2008.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt, kynnti.
Vísað til skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 80385
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
13.
Fríkirkjuvegur 11, lóðabreytingar
Lagt fram bréf skrifstofustjóra Framkvæmda- og eignasviðs, dags. 27. maí 2008, varðandi breytingar á lóð nr. 11 við Fríkirkjuveg skv. mæliblaði, dags.26. maí 2008. Óskað er eftir skiptingu lóðarinnar og afmörkun tveggja nýrra lóða út úr henni.

Samþykkt með vísan til d-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

Fulltrúar Samfylkingarinnar Björk Vilhelmsdóttir og Stefán Benediktsson sátu hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrú Vinstrihreyfingarinnar Græns framboðs Sóley Tómasdóttir greiddi atkvæði gegn tillögunni og óskaði bókað: Fulltrúar Vinstri grænna hafa frá fyrstu tíð lagst gegn sölu hússins við Fríkirkjuveg 11 og er rétt að árétta þá afstöðu nú þegar lóðamörk vegna sölunnar eru afgreidd í skipulagsráði. Hallargarðurinn á, ekki síður en húsið, að vera í eigu og á forræði almennings.




Umsókn nr. 80375
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík
14.
Kjalarnes, Grundarhverfi, framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu aðalfráveitukerfis
Lögð fram umsókn Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 14. maí 2008 um framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu aðalfráveitukerfis í Grundarhverfi á Kjalarnesi með tilheyrandi hreinsi- og dælustöðvum.
Samþykkt með vísan til c-liðar 12. gr. samþykktar um skipulagsráð.

Umsókn nr. 80096 (01.64)
460206-2940 Norðurflug ehf
Kringlunni 4-6 103 Reykjavík
15.
96">Reykjavíkurflugvöllur, lóðarumsókn fyrir flugskýli, Norðurflug ehf.
Á fundi skipulagsstjóra 4. apríl 2008 var lögð fram umsókn Norðurflugs ehf., dags. 31. mars 2008, um lóð í flugvallargeira 3M fyrir flugskýli, ásamt umsögn Flugstoða dags. 12. febrúar 2008. Erindinu var vísað til umsagnar í vesturteymi arkitekta hjá skipulagsstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram orðsending skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. apríl 2008 með ítrekun á erindinu, og minisblað skipulagsstjóra dags. 2. júní 2008.
Minnisblað skipulagsstjóra samþykkt.

Gísli Marteinn Baldursson sat hjá við afgreiðslu málsins.



Umsókn nr. 80381 (05.11.96)
010573-4409 Guðmundur Hrafn Arngrímsson
Katrínarlind 1 113 Reykjavík
16.
Reynisvatnsvegur, erindi frá íbúasamtökum Grafarholts og Úlfarsárdals
Lagt fram bréf Guðmundar Arngrímssonar f.h. Íbúasamtaka Grafarholts og Úlfarsárdals, dags. 19. maí 2008, varðandi Reynisvatnsveg og skipulags á Reynisvatnsheiði/Hólmsheiði.


Umsókn nr. 80373 (01.0)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
17.
Gamla höfnin, hugmyndasamkeppni
Lagt fram bréf Faxaflóahafna, dags. 19. maí 2008, varðandi hugmyndasamkeppni um þróun og framtíð skipulagssvæðis Gömlu hafnarinnar frá D-reit og Ingólfsgarði í austri að Eyjargarði í vestri.
Samþykkt að tilnefna Gísla Martein Baldursson sem fulltrúa skipulagsráðs í stýrihóp um hugmyndasamkeppni Faxaflóahafna.

Umsókn nr. 38427 (01.18.140.5)
18.
Skólavörðustígur 42, lagt fram bréf
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 29. maí sl. vegna stöðvunar óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 42 við Skólavörðustíg.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

Umsókn nr. 38426 (01.13.121.3)
19.
Ægisgata 10, lagt fram bréf
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 28. maí sl. vegna stöðvunar óleyfisframkvæmda á lóðinni nr. 10 við Ægisgötu.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

Umsókn nr. 38429
20.
Úlfarsárdalur, nafngiftir
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 2. júní 2008 vegna nafngifta í Úlfarsárdal.
Bréf byggingarfulltrúa samþykkt.

Umsókn nr. 70037
21.
Spilasalir og rekstur spilakassa, skýrsla samráðshóps
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2008, varðandi samþykkt borgarráðs s.d. um að vísa skipulagsþætti tillagna í skýrslu samráðshóps um forvarnir gegn spilakössum og spilasölum frá 8. apríl 2008 til skoðunar skipulagsráðs.


Umsókn nr. 80133 (05.8)
22.
Suðurlandsvegur, deiliskipulag settjörn
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2008, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi settjarnar við Suðurlandsveg.


Umsókn nr. 60676
671197-2919 Arkís ehf
Aðalstræti 6 101 Reykjavík
23.
Hólmsheiði við Suðurlandsveg - athafnasvæði A3, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 22. maí 2008, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á bókun skipulagsráðs frá 14. s.m. um auglýsingu á tillögu að deiliskipulagi á athafnasvæði A3 á Hólmsheiði.


Umsókn nr. 80392 (04.36.47)
24.
Árbæjarsundlaug, fyrirheit um sölu byggingarréttar
Lögð fram orðsending borgarstjóra dags. 13. maí 2008. Einnig er lagt fram bréf skrifstofustjóra Framkvæmda- og eignasviðs dags. 21. maí 2008, einnig er lögð fram útskrift úr gerðabók Framkvæmda- og eignaráðs dags. 27. maí 2008 þar sem samþykkt var tillaga skrifstofustjóra Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur fyrirheit til Árbæjarþreks ehf. um sölu byggingarréttar fyrir líkamsræktarstöð á lóð Árbæjarsundlaugar við Fylkisveg,