Miklabraut við Rauðagerði,

Embættisafgreiðslufundur skipulagsstjóra Reykjavíkur samkvæmt viðauka 2.4 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

686. fundur 2018

Ár 2018, þriðjudaginn 19. júní kl. 09:00, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 686. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12 - 14, 2. hæð, Stardalur. Fundinn sátu: Björn Axelsson og Helena Stefánsdóttir. Ritari var Erna Hrönn Geirsdóttir
Þetta gerðist:


1.18 Miklabraut við Rauðagerði, framkvæmdaleyfi
Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds, dags. 19. júní 2017, um framkvæmdaleyfi vegna lagningu strætóreinar á Miklubraut frá Skeiðarvogi að rampa að Reykjanesbraut, lagningu göngu- og hjólastígs, gerð hljóðmana og stoð- og hljóðveggja o.fl., samkvæmt teikningum Mílu og verkfræðistofunnar EFLU, dags. mars 2017. Einnig er lagður fram uppdr. verkfræðistofunnar EFLU, dags. 4. maí 2016 br. 9. júní 2017. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. júní 2017.

Samþykkt er að framlengja gildistíma framkvæmdaleyfisins vegna framkvæmda við Rauðagerði, sem gefið var út 20. júní 2017, til 15. október 2018.