Ásendi 1, Laufásvegur 49 og 51, Lóuhólar 2-6, Hólagarður, Malarhöfði 6 og 8, Stangarhylur 4-6, Bíla má hvíla, Egilsgata 5, Elliðavatnsblettur 14, Flugvallarvegur, Bílaleiga Flugleiða, Klukkurimi 6-12, Krókháls 12, Leifsgata 13, Nauthólsvík, Samkeppni um skipul. nýs íbúðahverfis í Grafarholti, Skúlagata 30, Snorrabraut 61, Spöng, Dalhús 2, Suðurhlíð 35, Vesturás 2-16, Þverás 57, Langirimi,

Skipulags- og umferðarnefnd

18. fundur 1996

Ár 1996, mánudaginn 26. ágúst kl. 9.30, var haldinn 18. fundur skipulagsnefndar í Borgartúni 3, 4. hæð. Þessir sátu fundinn: Guðrún Ágústdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðrún Zoëga, Guðrún Ögmundsdóttir og Guðmundur Gunnarsson. Fundarritari var Ágúst Jónsson
Þetta gerðist:


Ásendi 1, lóðarmörk
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 14.8.96, um samþykkt borgarráðs 13.8.96 á bókun skipulagsnefndar frá12. s.m. um lóðarmörk að Ásenda 1.



Laufásvegur 49 og 51, sameining lóða
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags.14.8.96 um samþykkt borgarráðs 13.8.96 á bókun skipulagsnefndar frá 12. s.m. um sameiningu lóðanna nr. 49 og 51 við Laufásveg.



Lóuhólar 2-6, Hólagarður, bílastæði
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags.14.8.96 um samþykkt borgarráðs 13.8.96 á bókun skipulagsnefndar frá 12. s.m. um afmörkun bílastæalóðari við Lóuhóla 2-6.



Malarhöfði 6 og 8, aðkoma, lóðarbreyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags.14.8.96 um samþykkt borgarráðs 13.8.96 á bókun skipulagsnefndar frá 12. s.m. um lóðarstækkun að Malarhöfða 6.



Stangarhylur 4-6, færsla á byggingarreit
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags.14.08.96 um samþykkt borgarráðs 13.08.96 á bókun skipulagsnefndar frá 12.08.96 um færslu á byggingarreit að Stangarhyl 4.



Bíla má hvíla, fækkun einkabílanotkunar borgarstarfsmanna
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 21.8.96, varðandi gerð könnunar á umferðarmáta borgarstarfsmanna og hvort mögulegar séu aðgerðir til hvatningar á fækkun einkabílanotkunar þeirra.

Ingibjörg Guðlaugsdóttir kynnti framvindu bíllausa dagsins 22. ágúst 1996.

Egilsgata 5, bensíndæla
Lagðar fram athugasemdir íbúa Egilsgötu 10-32 og Þorfinnsgötu 2 vegna fyrirhugaðrar bensínsölu við Egilsgötu 5. Einnig lögð fram álitsgerð Gests Ólafssonar, dags. 12.8.96, og fundargerð frá fundi 14.8.96.

Lagt fram og kynnt.

Elliðavatnsblettur 14, nýbygging
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 9.8.96, varðandi viðbyggingu við bústað að Elliðavatnsbletti 14, samkv. uppdr., dags. í janúar 1992.

Frestað.

Flugvallarvegur, Bílaleiga Flugleiða, bílaleiga Flugleiða
Lagt fram að nýju bréf Sæmundar Eiríkssonar f.h. Klappar ehf. og Grétars Kristjánssonar f.h. Flugleiða hf., dags. 12.5.96, varðandi ósk Flugleiða hf. um framtíðaraðstöðu fyrir bílaleigu við Flugvallarveg.

Frestað. Vísað til Borgarskipulags til nánari vinnslu.

Klukkurimi 6-12, gestabílastæði
Lagt fram bréf Ingibjargar Óskar Jóhannsdóttur o.fl., dags. 7.8.96, varðandi gestabílastæði í Klukkurima. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 16.8.96.

Samþykkt.

Krókháls 12, nýbygging
Lagt fram bréf Eiðs H. Haraldssonar, f.h. Háfells h.f. dags. 22.07.96, varðandi fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir á lóðinni nr. 12 við Krókháls. Einnig lagður fram uppdr. Eyjólfs Bragasonar, dags. 01.07.96

Synjað eins og málið er lagt fyrir.

Leifsgata 13, kvistir, risíbúð
Lagt fram bréf Kristins Ragnarssonar, dags. 14.8.96, varðandi gerð kvista að Leifsgötu 13 samkv. uppdr., dags. 16.7.96.

Synjað með tilvísun í rammaskilmála.

Nauthólsvík, veitingasala
Lögð fram bókun umhverfismálaráðs frá 7.8.96 vegna tillögu um staðsetningu veitingasölu í Nauthólsvík.

Skipulagsnefnd felur Borgarskipulagi í framhaldi af bókun umhverfismálaráðs að útbúa skilmála varðandi útlit og umhverfi veitingasölunnar.

Samkeppni um skipul. nýs íbúðahverfis í Grafarholti,
Lögð fram keppnis- og verkefnislýsing fyrir samkeppni um Grafarholt.



Skúlagata 30, stækkun
Lagt fram bréf Jóns Ingólfssonar hrl. dags. 27.06.96, um leyfi til að stækka 2. hæð hússins til suðurs á lóðinni Skúlagötu 30, samkv. uppdr. Arkform, dags. í sept. '94. Einnig bréf Arkform dags. 15.8.96.

Samþykkt. Bílastæðamálum vísað til byggingarfulltrúa.

Snorrabraut 61, endurnýjun byggingarleyfis
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 18.6.96, varðandi endurnýjun á byggingarleyfi fyrir viðbyggingu að Snorrabraut 61.

Synjað með vísan til rammaskilmála.

Spöng, skipulag
Lögð framað nýju tillaga Hrafnkels Thorlacius að deiliskipulagi í Spöng, dags. 24.11.95, br. 19.7.96. Jafnframt lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarverkfræðings til borgarráðs varðandi skipulag Spangarinnar, dags. 2.8.96.

Samþykkt að kynna tillöguna.

Dalhús 2, sundlaug
Vilhjálmur Hjálmarsson arkitekt kynnti tillögulíkan að sundlaugarbyggingu við íþróttahús við Dalhús.

Suðurhlíð 35, breytt lóðamörk, parhús
Lagt fram að nýju bréf Guðmundar Guðmundssonar f.h. Húsfélagsins Suðurhlíð 35, dags. 18.3.96, og bréf Torfa H. Ágústssonar f.h. Gesthúss Dúnu, dags. 16.3.96, varðandi breytingu lóðamarka og byggingu parhúss og bílskúra að Suðurhlíðum 35. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags að breyttu skipulagi lóðarinnar, dags. 29.5.96 og athugasemdir vegna kynningar.
Erindinu synjað með vísan í umsögn Borgarskipulags dags. 15.08.96.

Vesturás 2-16, stígur
Lagt fram bréf Margrétar Gunnarsdóttur og Þóris Sigfússonar, dags. 12.06.96, varðandi ósk um breytta legu göngustígs við Vesturás 16. Ennfremur lagt fram bréf íbúa að Vesturási 10 og 14, dags. 26.06.96. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, dags. 19.8.96.
Frestað. Vísað til umhverfismálaráðs.

Þverás 57, umferð
Lagt fram bréf Ólafar Guðrúnar Kristmundsdóttur, dags. 23.7.96, varðandi umferð og umferðarhraða á Selásbraut við Þverás.

Vísað til garðyrkjudeildar vegna óska um trjágróður.

Langirimi, miðsvæði
Lögð fram tillaga Guðna Pálssonar um lóðamörk á miðsvæði við Langarima og akstur SVR um svæðið, dags. 20.8.96.

Frestað.