Auglýsingaskilti/götugögn,
Borgartún 17-21,
Elliðaárnar,
Fossaleynir,
Háaleitisbraut 1,
Hálsahverfi,
Ingólfsstræti 8,
Kjalarvogur ,
Laugarnes,
Lyngháls 1,
Selásskóli, Selásbraut 109,
Aðalskipulag Reykjavíkur,
Skipulags- og umferðarnefnd
15. fundur 2000
Ár 2000, fimmtudaginn, var haldinn 15. fundur skipulags- og umferðarnefndar. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 3, 4. hæð og hófst kl. 12.00 Viðstaddir voru: Árni Þór Sigurðsson, Guðmundur Haraldsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Halldór Guðmundsson
Fundarritari var Ívar Pálsson.
Þetta gerðist:
497.00 Auglýsingaskilti/götugögn,
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 16. s.m. um auglýsinga- og upplýsingaskilti.
498.00 Borgartún 17-21, br. deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um deiliskipulag að Borgartúni 17-21.
499.00 Elliðaárnar,
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 16. s.m. um lokanir á Vatnsveitubrú og við Höfðabakka.
500.00 Fossaleynir, staðsetning knattspyrnuhúss, aðalskipulagsbreyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um staðsetningu knattspyrnuhúss við Fossaleyni og auglýsingu á breytingu aðalskipulags og deiliskipulags.
501.00 Háaleitisbraut 1, lokun innkeyrslu
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 16. s.m. um lokun innkeyrslu við Háaleitisbraut.
502.00 Hálsahverfi, endurskoðun deiliskipulags
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 16. s.m. um endurskoðun deiliskipulags í Hálsahverfi.
503.00 Ingólfsstræti 8, niðurfelling niðurrifskvaðar
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um niðurfellingu niðurrifskvaðar að Ingólfsstræti 8.
504.00 ">Kjalarvogur , breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 16. s.m. um breytingu á deiliskipulagi í Kjalarvogi.
505.00 Laugarnes, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um deiliskipulag Laugarness og auglýsingu þar um.
506.00 Lyngháls 1, br. deiliskipulag, bráðabirgðahús, dreifistöð
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um breytingu á deiliskipulagi, bráðabirgðahús og dreifistöð að Lynghálsi 1.
507.00 Selásskóli, Selásbraut 109, br. deiliskipulag, lóðarsameining, viðbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27. júní 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um viðbyggingu Selásskóla.
508.00 Aðalskipulag Reykjavíkur, Áhrif svæðisskipulags á endurskoðun aðalskipulags, kynning.
Lögð fram drög, Nes planners, dags. maí 2000, að greinargerð svæðisskipulags fyrir átta sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, skýrsla samvinnunefndar, dags. júlí 2000, "Samfélagsþróun á höfuðborgarsvæðinu 2001-2004 forsendur og horfur", skýrsla Hlínar Sverrisdóttur, dags. júlí 2000, "Nokkur dæmi um þéttleika í íbúðarhverfum Reykjavíkur" og flæðirit um samanburð og áhrif svæðisskipulags á endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.