Austurbæjarskólinn, Fossaleynir, Fossvogsdalur, Kaplaskjólsvegur 2, Miðborg, þróunaráætlun, Vesturhlíð/Sólland, Bitruháls 1, Bleikargróf 11, Hallsvegur, Sóltún, Sævarhöfði 2, Gufuneskirkjugarður, Austurstræti 18, Húsverndarsjóður Reykjavíkur, Barðastaðir 1-5, Drekavogur 10, Grandavegur 38, Grundargerði 22, Hofteigur 21, Sólvallagata 70, Laugavegsreitir, Hálsahverfi, Reykjanesbraut, Umferðarmál, Umferðaröryggisnefnd, Lokinhamrar, Skólabær, Stórhöfði, Umferðarmál, Mörkin 8, Skútuvogur 7-9, Miðborg, þróunaráætlun, Skildinganes 10, Skógarhlíð 6, Malarhöfði 2, Seljahverfi, Skipulags- og umferðarnefnd, Gylfaflöt 5, Stórhöfði,

Skipulags- og umferðarnefnd

11. fundur 2000

Ár 2000, mánudaginn 29. maí, var haldinn 11. fundur skipulags- og umferðarnefndar. Fundurinn var haldinn í Borgartúni 3, 4. hæð og hófst kl. 9:00. Viðstaddir voru: Árni Þór Sigurðsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Júlíus V. Ingvarsson, Inga Jóna Þórðardóttir og Guðmundur Haraldsson Fundarritari var Ívar Pálsson.
Þetta gerðist:


365.00 Austurbæjarskólinn, viðbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. maí 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. auglýsingu að breyttu deiliskipulagi við Austurbæjarskóla og viðbyggingu.


366.00 Fossaleynir, staðsetning knattspyrnuhúss
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. maí 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. um Fossleyni, knattspyrnuhús, tilögu að deiliskipulagi og breytingu á aðalskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi tillögu. Borgarráð samþykkti að vísa erindinu til Borgarskipulags. Jafnframt er Borgarskipulagi falið að skilgreina leyfða starfsemi og stærð viðbótarhúsnæðis. Þá er borgarverkfræðingi falið að leggja fram tillögu að útboðsskilmálum fyrir næsta fund borgarráðs.


367.00 Fossvogsdalur, Fagrilundur
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. maí 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. um að tillaga að deiliskipulagi Fagralundar verði auglýst.


368.00 Kaplaskjólsvegur 2, Félagsbústaðir
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. maí 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. varðandi auglýsingu að breyttu deiliskipulagi að Kapaskjólsvegi 2.


369.00 Miðborg, þróunaráætlun, aðalskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarstjórnar 18. maí 2000 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. um Þróunaráætlun miðborgar, aðalskipulag, sbr. 12. lið fundargerðar borgarráðs frá 16. s.m.


370.00 Vesturhlíð/Sólland, lóðarumsókn
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16. maí 2000 á umsögn Borgarskipulags frá 15. s.m. varðandi umsókn um lóð við Vesturhlíð, Sólland í Leynimýri.


371.00 Bitruháls 1, viðbygging
Að lokinni auglýsingu eru lagðir fram að nýju uppdr. Landslags ehf, dags. 1. mars 2000, að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Bitruháls. Málið var í auglýsingu frá 29. mars til 26. apríl, athugasemdafrestur var til 10. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Augýst tillaga samþykkt sem deiliskipulag fyrir reitinn.

372.00 Bleikargróf 11, br. frá fyrri samþ.
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 29.03.00, þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og stækka grunnflöt hússins nr. 11 við Bleikargróf, samkv. uppdr. Kristins Sveinbjörnssonar, dags. 01.12.99, br. 22.03.00. Bréf Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, dags. 24.02.00 fylgir erindinu og umsögn Borgarskipulags, dags. 06.04.00. Málið var í kynningu frá 13. apríl til 12. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði byggingarleyfi á grundvelli kynntra teikninga.

373.00 Hallsvegur, breyting á deiliskipulagi og br. á aðalskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Borgarskipulags, dags. 17.02.00, að breytingu á aðalskipulagi. Einnig lagt fram að nýju bréf borgarverkfræðings ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra breytinga við Hallsveg, dags. 02.03.00. Málið var í auglýsingu frá 12. apríl til 10. maí, athugasemdafrestur var til 24. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að það samþykki auglýsta breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og auglýsta breytingu á deiliskipulagi.

374.00 Sóltún, deiliskipulag/aðalskipulagsbreyting
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Hróbjarts Hróbjartssonar arkitekts að deiliskipulagi Sóltúns, dags. 18.02.00 ásamt tillögu Borgarskipulags að breytingu á aðalskipulagi. Einnig lagt fram bréf Helgu Guðmundsdóttur dags. 14.02.00. Ennfremur lagt fram bréf Leikskóla Reykjavíkur, dags. 08.03.00 og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, dags. 13.03.00. Málið var í auglýsingu frá 7. apríl til 5. maí, athugasemdafrestur var til 19. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að það samþykki auglýsta breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og auglýsta deiliskipulagstillögu.

375.00 Sævarhöfði 2, nýbygging, lóðarstækkun
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Teiknistofunnar ARKÍS ehf, dags. 09.02.00. varðandi nýbyggingu og lóðarstækkun á lóðinni nr. 2 - 2A við Sævarhöfða. Málið var í ayglýsingu frá 29. mars til 26. apríl, athugasemdafrestur var til 10. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að það samþykki auglýsta tillögu sem deiliskipulag fyrir reitinn með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti dags. 24.5.00.

376.00 Gufuneskirkjugarður, þjónustumiðstöð
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf borgarstjóra, dags. 18.05.99, varðandi staðsetningu þjónustumiðstöðvar í Gufuneskirkjugarði, samkv. uppdr. Landmótunar ehf, dags. 07.07.99. Einnig lagt fram bréf Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, dags. 03.05.99. Einnig uppdr. Y.Þ.L. mótt. 14.7.99. Málið var í auglýsingu frá 12. apríl til 10. maí, athugasemdafrestur var til 24. maí 2000. Engar athugasemdir bárust.
Auglýst tillaga samþykkt sem deiliskipulag fyrir svæðið.

377.00 Austurstræti 18, Kaffihús - viðbygging
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 14.03.00, þar sem sótt er um leyfi til þess að hækka útbyggða glerframhlið að Austurstræti um eina hæð, byggja glerskála fyrir kaffisölu við suðurhlið 2. hæðar, loka þakgluggum á bakbyggingu og breyta þakinu í svalir ásamt samþykki fyrir áður gerðum breytingum á stigum í kjallara og á 1. hæð og opum í plötu 1. hæðar hússins á lóðinni nr. 18 við Austurstræti, samkv. uppdr. Arkitekta Skógarhlíð, dags. 28.02.00. Bréf hönnuðar dags. 1. mars 2000 fylgir erindinu. Málið var í kynningu frá 29. mars til 27. apríl 2000. Athugasemdabréf barst frá Karli Steingrímssyni f.h. Eignarhaldsfélagsins Kirkjuhvols ehf, dags. 10.04.00. Lögð fram drög að umsögn Borgarskipulags, dags. 25.05.00.
Samþykkt að grenndarkynna erindið, með þeim breytingum sem fram koma í umsögn Borgarskipulags, sem breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum á reitnum þegar gerð hafa verið fullnægjandi gögn.
Júlíus V. Ingvarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.


378.00 Húsverndarsjóður Reykjavíkur, úthlutun
Lögð fram tillaga Borgarskipulags og Árbæjarsafns um úthlutun úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur árið 2000.
Samþykkt.

379.00 Barðastaðir 1-5, breyting á landnotkun
Lagt fram bréf Inga Péturs Ingimundarsonar, dags. 18.05.00, varðandi ósk um skiptingu lóðar og breytta landnotkun á lóðinni nr. 1-5 við Barðastaði.
Frestað.

380.00 Drekavogur 10, Ofanábygging
Lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 14.04.2000 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja hæð ofan á húsið á lóðinni nr. 10 við Drekavog, samkv. uppdr. Þormóðs Sveinssonar ark. dags. 19.03.2000. Bréf hönnuðar dags. 22. mars 2000 fylgir erindinu. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 18.05.00.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Drekavogi 8 og 12 og Skipasundi 87 og 92.

381.00 Grandavegur 38, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram að nýju bréf Teiknistofunnar Norðra ehf, dags.09.05.00, breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 38 við Grandaveg, samkv. uppdr. sama, dags. 10.05.00. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 11.05.00 og umsögn Árbæjarsafns, dags. 19.05.00.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Lágholtsvegi 11, 13 og 15 og Grandavegi 36, 37, 39, 40 og 42.

382.00 Grundargerði 22, Bílskúr
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 31.03.00, þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteyptan tvöfaldan bílskúr að austurlóðamörkum á lóðinni nr. 22 við Grundargerði, samkv. uppdr. Halldórs Gíslasonar arkitekts, dags. í júní 1999, br. í mars 2000.
Bréf umsækjanda dags. 10. mars 2000 og samþykki nágranna að Grundargerði 24 dags. 9. mars 2000 fylgja erindinu ásamt samþykki eigenda að Grundargerði 27 og 29, dags. 25.04.00. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 11.05.00.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Grundargerði 19, 20, 21 og 24 og Breiðagerði 25, 27 og 29.

383.00 Hofteigur 21, bílskúr
Lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa, dags. 22.09.99, þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílgeymslu úr steinsteypu á lóðinni nr. 21 við Hofteig, samkv. uppdr. Atelier Arkitekta, dags. 06.09.99, síðast br. 05.05.00. Bílgeymslan verði múruð með kvartssalla að utan. Samþykki meðeigenda fylgir. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags dags. 15.05.00. Ennfremur lagt fram samþykki íbúa á Hofteigi 19 og Silfurteigi 4, dags. 07.05.00.
Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Hofteig 19 og 23, Gullteig 18 og Silfurteig 2 og 4.

384.00 Sólvallagata 70, Íbúð í kjallara, viðbyggingar ofl.
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 26.11.99, þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum inngangsskúr aftan við framhús (matshl. 01) og áður gerðri viðbyggingu við bakhús (matshl.02) á lóðinni nr. 70 við Sólvallagötu. Jafnframt er sótt um leyfi til að nota bakhús fyrir atvinnustarfsemi, fyrir breyttri skráningu og áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi fram- og bakhúss, samkv. uppdr. Teiknistofunnar Túngötu 14, dags. í október 1999. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 12.05.00.
Fallist á umsögn Borgarskipulags. Samþykkt að grenndarkynna erindið fyrir hagsmunaaðilum að Sólvallagötu 68, 72 og 74 sem og að Framnesvegi 31, 31a, 31b og 33.

385.00 Laugavegsreitir, drög að forsögn
Lögð fram að nýju drög Borgarskipulags að forsögn fyrir Laugavegsreiti, deiliskipulagsverkefni 7 og 8 frá Klapparstíg að Snorrabraut.
Höfundar kynntu.

386.00 Hálsahverfi, endurskoðun deiliskipulags
Lögð fram að nýju tillaga ARKÍS ehf, dags. 12.05.00, ásamt minnisblaði, að breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis.
Höfundar kynntu.

387.00 Reykjanesbraut, undirgöng við Mjódd
Lögð fram að nýju tillaga Borgarskipulags, dags. 19.05.00, að breytingu á A.R. 1996-2016 við Mjódd. Einnig lagður fram uppdr. Línuhönnunar, dags. 15.05.00.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að framlögð tillaga verði auglýst sem breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016

388.00 Umferðarmál, umferðaróhöpp/-slys
Lögð fram skýrsla umferðardeildar, dags. 30. mars s.l. um umferðaróhöpp og -slys í Reykjavík 1992-1998.


389.00 Umferðaröryggisnefnd,
Lögð fram að nýju fundargerð 20. fundar umferðaröryggisnefndar frá 17. maí 2000.


390.00 9">Lokinhamrar, tengigata biðskylda
Lögð fram að nýju samþykkt umferðaröryggisnefndar um að setja biðskyldu á tengigötu milli Gullinbrúar og Lokinhamra gagnvart umferð um Lokinhamra.
Samþykkt

391.00 Skólabær, bann við lagningu ökutækja
Lögð fram að nýju samþykkt umferðaröryggisnefndar, um að sett verði bann við lagningu ökutækja austanmegin í götunni.
Samþykkt

392.00 Stórhöfði, biðskylda á Viðarhöfða
Lögð fram að nýju tillaga umferðardeildar um að sett verði stöðvunarskylda á umferð um Viðarhöfða gagnvart umferð um Stórhöfða.
Samþykkt.

393.00 Umferðarmál, staðbundnar aðgerðir
Lagður fram listi umferðardeildar og gatnamálastjóra um staðbundnar aðgerðir fyrir árið 2000 dags. 17.5.00.
Barmahlíð (Langahlíð-Stakkahlíð) 30 km. alda. Samþykkt.
Barónsstígur-Bergþórugata, stöðvunarskylda. Samþykkt.
Bólstaðarhlíð, snjóbræðsla að SVR biðstöð. Samþykkt.
Dunhagi (Hagatorg-Hjarðarhagi), alda, miðeyja og eyru. Samþykkt.
Korpúlfsstaðavegur, tvær gangbrautir og öldur. Samþykkt.
Njarðargata-Bergstaðastræti, alda og eyru. Frestað.
Njarðargata-Laufásvegur, alda og eyru. Samþykkt.
Selásbraut við Reykás, 40 km. steinlögð alda, eyja og útvíkkun. Samþykkt, eldri alda verði fjarlægð samtímis.
Suðurlandsbraut-Skeiðarvogur, þrenging úr austri og breikkun miðeyju. Frestað.
Sogavegur, miðeyja, steinlögð alda og sameining biðstöðva. Samþykkt.
Súðarvogur, (Kleppsmýrarvegur-Knarravogur), tvær 40 km. öldur. Samþykkt að setja tvær samöldur.
Ægissíða við Dunhaga, eyja og útvíkkun. Frestað.
Umfjöllun um aðrar aðgerðir frestað.


394.00 Mörkin 8, stækkun á íbúðarhóteli
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 11. febrúar 2000, þar sem sótt er um leyfi til að byggja samtals átján íbúðarrými til útleigu til suðausturs við húsið á lóðinni nr. 8 við Mörkina. Nýja húsið (matshl. 02) verði byggt úr steinsteypu og einangrað og klætt á utan með xx plötum til samræmis við matshl. 01. Jafnframt er sótt um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi í matshluta 01, sem m.a. fela í sér fjölgun íbúðareininga um tólf í samtals þrjátíu og tvær auk húsvarðaríbúðar, ásamt breyttri skráningu matshlutans, samkv. uppdr. teiknistofu Björns J. Emilssonar, dags. 20.01.00, br. 05.05.00 og dags. 19.05.00. Ennfremur er umsókn nr. 19904 um áður gerðar breytingar í matshl. 01 dregin til baka. Erindinu fylgir yfirlýsing meðlóðarhafa að sameiginlegri aðkomu- og bílastæðalóð dags. 22. des. 1999.
Samþykkt að grenndarkynna erindið sem óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Mörkinni 4.

395.00 Skútuvogur 7-9, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf Reykjavíkurhafnar, dags. 09.05.00, ásamt tillögu Arkitekta Gunnars og Reynis s.f., dags. 08.05.00, að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni nr. 7-9 við Skútuvog.
Samþykkt að grenndarkynna erindið sem óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Skútuvogi 8, 9, 10 og 12 og Kjalarvogi 5-9.

396.00 Miðborg, þróunaráætlun, samgöngustefna
Lögð fram að nýju drög að samgöngustefnu þróunaráætlunar miðborgarinnar, dags. 22. maí 2000.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að það samþykki framlagða samgöngustefnu fyrir miðborgarsvæði Reykjavíkur.

397.00 Skildinganes 10, Bílskýli í kjallara og fl.
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 11.05.00, þar sem sótt er um leyfi til að gera opið bílskýli í vesturhluta kjallara hússins nr. 10 við Skildinganes ásamt tilheyrandi skábraut, samkv. uppdr. Arnar Sigurðssonar arkitekts, dags. 20.08.97, br. 28.06.99. Jafnframt verði bílastæðum á lóð fækkað í eitt. Erindinu var synjað á fundi byggingarnefndar 8. júlí 1999, en er lagt fram að nýju í framhaldi af úrskurði úrskurðarnefndar um skipulags- og byggingarmál dags. 26. apríl 2000. Umsögn Borgarskipulags dags. 30. júní 1999, bréf umsækjenda dags. 28. júní 1999 fylgir erindinu. Jafnframt lagt fram bréf skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags. 10. maí 2000 og úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 26. apíl 2000. Jafnframt lögð fram umsögn Borgarskipulags dags. 29.5.00.
Skipulags- og umferðarnefnd telur umsóknina samræmast skipulagi.

398.00 Skógarhlíð 6, stækkun á lóð og bílastæði
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 23.12.99, þar sem óskað er eftir stækkun lóðarinnar nr. 6 við Skógarhlíð um 1185 ferm. í samræmi við meðfylgjandi gögn. Ef umbeðin lóðarstækkun verður samþykkt mun verða sótt um byggingarleyfi fyrir útfærslu bílastæða og öðrum frágangi á lóð. Einnig lögð fram bréf Fasteigna ríkissjóðs dags. 14.12.99 og 28.02.00 ásamt uppdr. dags. 15.02.00. Málið var í kynningu frá 8. mars til 6. apríl 2000. Athugasemdabréf barst frá Bjarka Magnússyni, dags. 31.03.00. Lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 18.05.00.
Kynnt lóðarstækkun samþykkt með vísan til umsagnar Borgarskipulags.

399.00 Malarhöfði 2, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Greiðabíla, dags. 26.08.99, varðandi stækkun á lóðinni nr. 2 við Malarhöfða til vesturs, samkv. teikningu Vinnustofunnar ARKO. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 25.05.00.
Frestað.

400.00 Seljahverfi, Gilja-, Gljúfra- og Grjótasel, br. á skilmálum
Lögð fram að nýju tillaga Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts að breytingum á skilmálum í Seljahverfi, við Gilja-, Gljúfra- og Grjótasel, dags. 05.05.00.
Frestað.

401.00 Skipulags- og umferðarnefnd, sameining við byggingarnefnd
Lögð fram að nýju tillaga stjórnkerfisnefndar að samþykkt fyrir nýja skipulags- og byggingarnefnd ásamt bréfi skrifst.stj. borgarstjórnar, dags. 17.05.00. Einnig lögð fram drög að umsögn um samþykktinga dags. í maí 2000.
Frestað.

402.00 Gylfaflöt 5, starfsleyfi fyrir bakarí
Lagt fram bréf Lögmanna Laugardal ehf, dags. 08.05.00, varðandi umsókn um starfsleyfi fyrir bakarí að Gylfaflöt 5, ásamt fylgibréfi Café Konditori Copenhagen og samþykki leigjenda og eigenda í húseignunum Gylfaflöt 3, 5 og 7, dags. 03.05.00.
Frestað

403.00 Stórhöfði, þjónustumiðstöð gatnamálastjóra
Lagðar fram teikningar Arkþings, dags. í maí 2000, að þjónustumiðstöð gatnamálastjóra við Stórhöfða.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að það samþykki breytingu á deiliskipulagi í þá veru að byggingarreitur þjónustuhúss stækki til suðurs í samræmi við teikningar. Ekki talin þörf á grenndarkynningu.