Háaleitisbraut 41-43

Verknúmer : SN990667

69. fundur 2002
Háaleitisbraut 41-43, deiliskipulag
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga VST, dags. í ágúst 2001 að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 41-43 við Háaleitsbraut. Einnig lagður fram uppdráttur dags. í nóv. 2000, með samþykki lóðarhafa og Sölva Sveinssonar rektors Fjölbrautarskólans við Ármúla, dags. 27.03.01. Málið var í kynningu frá 18. febrúar til 19. mars 2002. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir skipulags- og byggingarnefnd.

7. fundur 2002
Háaleitisbraut 41-43, deiliskipulag
Lögð fram tillaga VST, dags. í águst 2001 að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 41-43 við Háaleitsbraut. Einnig lagður fram uppdráttur dags. í nóv. 2000, með samþykki lóðarhafa og Sölva Sveinssonar rektors Fjölbrautarskólans við Ármúla, dags. 27.03.01.
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Síðumúla 2 og 4, og Fjölbrautarskólann við Ármúla.