Hólavað 63-71

Verknúmer : SN170074

183. fundur 2017
Hólavað 63-71, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra, dags. 23. febrúar 2017, vegna samþykktar borgarráðs s.d. um auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna raðhúss á lóðum að Hólavaði 63-71.



180. fundur 2017
Hólavað 63-71, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Kjartans Hrafns Kjartanssonar dags. 31. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna raðhúss á lóðum að Hólavaði 63-71. Í breytingunni felst breyting á byggingarmagni/nýtingarhlutfalli, m.a. að bæta við kvist og hækka hús, samkv. uppdrætti Krark., dags. 8. febrúar 2017.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu umhverfis- og skipulagssviðs sbr. 3. mgr. 43. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs



619. fundur 2017
Hólavað 63-71, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Kjartans Hrafns Kjartanssonar dags. 31. janúar 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Norðlingaholts vegna raðhúss á lóðum að Hólavaði 63-7. Í breytingunni felst breyting á byggingarmagni/nýtingarhlutfalli, m.a. að bæta við kvist og hækka hús, samkv. uppdrætti Krark., Kristinn Ragnarsson, dags. 31. janúar 2006.

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

Komi til auglýsingar á breytingu deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. 7.5. gr., sbr. 12. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1193/2016.