Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024

Verknúmer : SN160354

150. fundur 2016
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024, vatnsvernd
Lagt fram bréf Kópavogsbæjar, dags. 5. apríl 2016, þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar á skipulagslýsingu, dags. 3. janúar 2016, sem felst í breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna afmörkunar vatnsverndar í efri byggðum Kópavogs. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 6. maí 2016.



585. fundur 2016
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024, vatnsvernd
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. maí 2016 var lagt fram bréf Kópavogsbæjar, dags. 5. apríl 2016 þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar á skipulagslýsingu, dags. 3. janúar 2016, sem felst í breytingu á aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 vegna afmörkunar vatnsverndar í efri byggðum Kópavogs. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags, dags. 6. maí 2016.

Umsögn deildarstjóra aðalskipulags , dags. 6. maí 2016, samþykkt.

584. fundur 2016
Kópavogur, aðalskipulag 2012-2024, vatnsvernd
Lögð fram skipulagslýsing Kópavogsbæjar vegna endurskoðunar á vatnsvernd, dags. 3. maí 2015 þar sem óskað er umsagnar Reykjavíkurborgar.

Vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags