Tangabryggja 18-24

Verknúmer : SN160114

145. fundur 2016
Tangabryggja 18-24, breyting á deiliskipulagi vegna húss nr. 24
Lgð fram umsókn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 12. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna húss nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Tangabryggju. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum í húsinu úr 40-44 í allt að 63 íbúðir og bílastæðaskilmálum lítillega samkvæmt uppdr. Björns Ólafs arkitekts, ódags.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.


581. fundur 2016
Tangabryggja 18-24, breyting á deiliskipulagi vegna húss nr. 24
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2016 var lögð fram umsókn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 12. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna húss nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Tangabryggju. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum í húsinu úr 40-44 í allt að 63 íbúðir, samkvæmt uppdr. Björns Ólafs arkitekts, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.

Vakin er athygli umsækjanda á að umsóknin fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.


574. fundur 2016
Tangabryggja 18-24, breyting á deiliskipulagi vegna húss nr. 24
Lögð fram umsókn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 12. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna húss nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Tangabryggju. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum í húsinu úr 40-44 í allt að 63 íbúðir, samkvæmt uppdr. Björns Ólafs arkitekts, ódags.

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.