Kjalarnes, Vík

Verknúmer : SN150589

124. fundur 2015
Kjalarnes, Vík, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar, mótt. 1. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vík á Kjalarnesi. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni lóðarinnar ásamt færslu á byggingarreit umhverfis núverandi hús þannig að unnt verði að byggja við og stækka húsið, samkvæmt uppdr. THG arkitekta ehf. dags. 1. október 2015.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis og skipulagsráð samþykkti jafnframt að fela skipulagsfulltrúa að upplýsa íbúa í nágrenninu sérstaklega um auglýsinguna.

Vísað til borgarráðs.


557. fundur 2015
Kjalarnes, Vík, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 2. október 2015 var lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar, mótt. 1. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vík á Kjalarnesi. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni lóðarinnar ásamt færslu á byggingarreit umhverfis núverandi hús þannig að unnt verði að byggja við og stækka húsið, samkvæmt uppdr. THG arkitekta ehf. dags. 1. október 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.

556. fundur 2015
Kjalarnes, Vík, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Ragnars Auðuns Birgissonar, mótt. 1. október 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vík á Kjalarnesi. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni lóðarinnar ásamt færslu á byggingarreit umhverfis núverandi hús þannig að unnt verði að byggja við og stækka húsið, samkvæmt uppdr. THG arkitekta ehf. dags. 1. október 2015.

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.