Austurbakki 2

Verknúmer : SN150513

123. fundur 2015
Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. október 2015 um samþykkt borgarráðs dags. 1. október 2015 varðandi auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka.



119. fundur 2015
Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar mótt. 2. september 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að heimiluð er 7. hæð á reit 5 að hámarki 600 m2 fyrir opna veitingaþjónustu og verður efsta hæðin inndregin frá byggingarlínu um 5 metra. Einnig skulu handrið lúta sömu skipulagskröfum og skjólvirki hvað varðar hámarkshæð og gegnsæi, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf. dags. 13. ágúst 2015.

Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.







554. fundur 2015
Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar mótt. 2. september 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að heimiluð er 7. hæð á reit 5 að hámarki 600 m2 og verður efsta hæðin inndregin frá byggingarlínu um 5 metra. Einnig skulu handrið lúta sömu skipulagskröfum og skjólvirki hvað varðar hámarkshæð og gegnsæi, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf. dags. 13.ágúst 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

553. fundur 2015
Austurbakki 2, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar mótt. 2. september 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðarinnar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að heimiluð er 7. hæð á reit 5 að hámarki 600 m2 og verður efsta hæðin inndregin frá byggingarlínu um 5 metra. Einnig skulu handrið lúta sömu skipulagskröfum og skjólvirki hvað varðar hámarkshæð og gegnsæi, samkvæmt uppdr. Batterísins arkitekta ehf. dags. 13.ágúst 2015.

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.