Hverfisgata 16 og 16A

Verknúmer : SN150482

126. fundur 2015
Hverfisgata 16 og 16A, kæra 67/2015, umsögn
Bréf borgarstjóra dags. 29. október 2015 um samþykkt borgarráðs s.d. varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðanna að Hverfisgötu 16 og 16A.


122. fundur 2015
Hverfisgata 16 og 16A, kæra 67/2015, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. ágúst 2015 ásamt kæru þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna lóðar nr.16 og 16A við Hverfisgötu. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra, dags. 6. október 2015.

Með vísan til úrskurða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í málunum nr. 1/2014, 37/2014 og 51/2014, þar sem kærum var vísað frá á grundvelli þess að viðaukar við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp Borgarstjórnar hafi ekki verið í gildi á þeim tíma þegar þau voru afgreidd í Umhverfis- og skipulagsráði og málin því ekki hlotið endanlega afgreiðslu sveitarstjórnar, er samþykkt Umhverfis- og skipulagsráðs á breytingu deiliskipulags vísað til staðfestingar borgarráðs.



117. fundur 2015
Hverfisgata 16 og 16A, kæra 67/2015, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. ágúst 2015 ásamt kæru þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi vegna lóðar nr.16 og 16A við Hverfisgötu.

Vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra.